blaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS » síða 36 IWEYTEWDUR Stefán Ásgrímsson kann mörg góð ráð um það hvernig hægt er að komast af með minni rekstrar- kostnað af heimilisbílnum | síða3o 11. tölublaö 3. árgangur miðvikudagur 17. janúar 2007 FRJÁLST, ÓHÁÐ & 0fW 'S! ■ MEWWIWG Hanna Margrét Snorradóttir, söng kona hljómsveitarinnar Lava, ætlar að vera með tónleika í Norræna húsinu Isíða2s Drottningin Mirren Helen Mirren kom, sá og sigraði á Golden Globe-verðlaunahátíðinni. Þar fékk hún tvenn verðlaun sem besta leikkona. Bæði hlutverkin sem hún var heiðruð fyrir voru hlutverk drottningar, Elísabetar I og Elísabetar II. Annar sem vakti athygli var Sacha Baron Cohen sem fór mikinn í þakkarræðu sinni þegar hann var val- inn besti karlleikari í grínmynd fyrir frammistöðu sina í Borat. Forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans: Áhyggjur af viðskiptahalla ■ Viðskiptahalli minnki um þriðjung ■ Hærri en fyrri spá ■ Ágreiningur um verðbólgu Eftlr Höskuld Kára Schram hoskulduri@bladid.net Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður Greining- ardeildar Landsbankans, segir þáð áhyggjuefni hversu miklum viðskiptáhalla er búist við í nýrri spá fjármálaráðuneytisins um þjóðarbúskapinn á þessu ári. í spánni er gert ráð fyrir 14,5 prósenta við- skiptahalla, talsvert meiri halla en upphaflega þegar menn horfðu til þess að viðskiptahallinn við útlönd yrði undir tíu prósentum. „Viðskipta- hallinn er vissulega hár en því miður er líklegt að spá þeirra hvað hann varðar sé rétt,“ segir Edda Rós Karlsdóttir. Viðskiptahallinn nam rúmum 22 prósentum á síðasta ári samkvæmt áætlun fjármálaráðuneyt- isins en búist er við að hann dragist verulega saman á þessu ári. Á næsta ári gera reiknimeist- arar fjármálaráðuneytisins svo ráð fyrir að við- skiptahallinn verði kominn niður í sjö prósent. Ein helsta ástæðan fyrir minnkandi viðskipta- halla er aukinn álútflutningur. Fjármálaráðuneytið spáir að verðbólga fari í 3,8 prósent á þessu ári, rétt innan efri vikmarka i verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Fulltrúa greiningardeilda bankanna greinir á um þessa spá. Edda Rós segir þessa spá eilítið hærri en spá Landsbankans. „Mér finnst þeir heldur bjart- sýnir á verðbólguna á næsta ári,“ segir hins vegar Þóra Helgadóttir, sérfræðingur hjá Greiningu Kaupþings. Sjá einnig siðu 4 MYND/FRIKKI Leiðin að Ingólfi mokuð Þó ekki hafi snjóaö síöustu daga er mikill snjór á höfuðborgarsvæðinu frá slöustu helgi. Meöal þeirra verkefna sem ráðast hefur þurft í er að ryðja gangleiðirnar að styttunni af Ingólfi Arnarsyni landnámsmanni. WM fh » síða 32 Sögumaður í LA Stefán Karl Stefánsson fer með hlutverk sögumanns í kvikmyndinni Night at the Museum ásamt tveimur öðrum Islendingum en myndin verður l frumsýnd á föstudaginn. VEÐUR » síða 2 I Kalt inn til landsins Norðaustan og austan 8-15 á morgun og él norðan- og austanlands. Frost 2 til 20 stig, kaldast inn til landslns en sums staðar frostlaust syðst á landinu. SÉRBLAÐ Sérblað um börn og upp- eldi fylgir með Blaðinu í dag Tvöfalt dýrari matarkarfa Nokkrar algengar matvörur eru allt að helmingi ódýrari annars staðar á Norðurlöndum en hér samkvæmt könnun Blaðsins. Matarkarfa sem kostar 1.630 krónur á Islandi kostar 921 krónu í Danmörku. Matvælin eru því 86 prósentum dýrari á Islandi en í Danmörku. Litlu minna munar á Islandi og Svíþjóð en verð á Islandi og í Noregi er mjög svipað. Jóhannes Gunnarsson, tormaöur Neytendasamtakanna, segir þetta ekki koma á óvart. Niðurstöðurnar koma Finni Árnasyni, forstjóra Haga, ekki heldur á óvart. Hann telur verndartolla á landbúnaðarvörum og einokun meðal annars valda háu matarverði. Skotin og sprengd í loft upp Nær hundrað manns létu lífið í sprengju- og skotárásum í Bagdad, höfuðborg (raks, í gær. Árásirnar voru gerðar sama dag og fulltrúar Samein- uðu þjóðanna kynntu niðurstöður rann- sókna sinna sem sýna að nær hundrað manns að meðaltali létu lífið dag hvern á síðasta ári. Mannskæðasta árásin í gær var í háskóla. Þar létust í það minnsta 65 manns þegar tvær miklar sprengingar kváðu við. Fyrri sprengingin var við einn útgang skólans og sú síöari við annan útgang þegar fjöldi fólks reyndi að flýja. I FRIÁLSI FASTEIGNALÁN í MYNTKÖRFU Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is 3,4%

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.