blaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 1
18 Pollapönk á leikskóla 19 Bömin og Netið 20 Börnin hreyfa sig 21 Heilsufar barna • ••*•••••••••• 22 Börnin svæfð 23 Fíkniefnapróf 23 Teikniforrit fyrir börn 24 Hollur matur UTSALAN HAFIN rrir 1 af meðgöngu og barnafatnaði Haust og vetrarlínu tvo^Cíf , 3-foCtasmárí í • © 517 8500 Fyrir verðandi mæður og börn ■ AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA 510 3744 netfang: auglysingariabladid.net Dýrahald í leikskólanum Krakkakoti: Páfagaukar, kanínur og froskar Flestallir leikskólar sérhæfa sig á einhverju sviði, sumir leggja áherslu á tónlist, aðrir á myndlist og svo mætti lengi telja. Á Álftanesi er starfræktur allsérstakur leikskóli sem hefur sniðið sína starfsemi að náttúrunni. í náttúruleikskólanum Krakkakoti er margt að sjá sem er ekki algeng sjón á öðrum leik- skólum landsins. Krakkakot er lík- lega eini leikskólinn á landinu sem er með dýrahald. Hænurnar farnar Hjördís Ólafsdóttir leikskólastjóri segir að dýrahald skólans sé um 14 ára gamalt en sé þó búið að vera að þróast smám saman. „Þetta byrjaði allt á því að okkur voru gefnir hænu- ungar sem ílengdust hjá okkur og urðu að fullvöxnum hænum. Við fengum okkur hús undir þær og svo fjölguðu hænurnar sér og við vorum komin með ansi góðan hænsnastofn hérna.“ Hænsnastofn- inn var bara upphafið á fjölbreyttu dýrahaldi leikskólans þó svo að hænurnar eigi ekki lengur fast heim- ili á leikskólanum. „Síðastliðið vor þegar fuglaflensutalið var sem mest fengum við bónda fyrir austan fjall til að taka hænurnar í fóstur. Við höfum ekki lagt í það að taka hæn- urnar til okkar aftur en við ætlum að sjá til í vor.“ Astarlíf páfagauka Þó svo að hænurnar séu ekki lengur 1 leikskólanum eru þar önnur dýr sem gleðja börnin. „Fyrst vorum við með hamstra en þeir voru að sleppa út um allt hús svo að þegar sá síðasti lagði upp laupana þá tókum við þá ekkert aftur. Við erum með naggrísi, kan- ínur og froska. Við erum með sjáv- ardýrabúr þannig að við getum farið niður í fjöru og fundið okkur krabba og kuðunga til að fara með heim í búrið og þeir lifa þar góðu lífi. Svo erum við með páfagauka, ræði dísarpáfagauka og gára, og )að er mjög fjörugt ástarlífið hjá jeim núna og þeir fjölga sér núna sem aldrei fyrr.“ Hjördís segir að þetta nýfundna ástarlíf páfagauk- anna sé af hinu góða því þarna geti börnin fylgst með allri hringrás lífsins, allt frá fæðingu til dauða. „Við gerum þessu svolítið hátt undir höfði, með þessu skynja þau bæði gleðina við það þegar nýtt líf fæðist og svo sorgina þegar einhver deyr.“ Fengu viðurkenningu Leikskólinn Krakkakot fékk hinn eftirsótta grænfána afhentan við há- tíðlega athöfn þann 1. desember síð- astliðinn. Grænn fáni er viðurkenn- ing fyrir umhverfisvernd í leik- og grunnskólum. „Það eru ákveðin skil- yrði sem skólinn þarf að uppfylla til að hljóta þessa viðurkenningu og við erum búin að vinna að þessu nokkuð lengi.“ Á leikskólanum er allt rusl flokkað og Hjördís segir að þegar hænurnar voru til staðar hafi matarúrgangurinn farið að miklu leyti til þeirra. „Við moltugerum líka hérna svo að lífræni úrgangur- inn hjá okkur fer allur í moltu." Mikill fróðleikur Það er greinilegt að í Krakkakoti fer fram mikið og gott starf og er það nauðsynlegt nú til dags að börn nái að kynnast hinum ýmsu dýra- tegundum, virði öll lífsform og læri um umhverfisvernd. Það er ljóst að með þann bústofn sem er til staðar á Krakkakoti er hægt að miðla alls konar fróðleik til barnanna en þó má alltaf bæta við. Hjördís segir að vissulega hafi komið fram hug- myndir um að fjölga í bústofninum, til dæmis að fá sér kú, en þó verði líklega ekki bætt meira við fánuna hjá leikskólanum. „Ég held nú að þetta sé alveg nóg, en við söknum reyndar hænsnanna mikið.“ Fræðast um dýralífið og hringrás lífsins Þau eru öfundsverö börnin á Krakkakoti af fjölbreyttu dýralifinu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.