blaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 1
12. tölublað 3. árgangur
Hgigr
fimmtudagur
18. janúar 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & 0^ '*VS/
M FÓLK
Guðmundur Örn Sverrisson bakar
pítsur daginn inn og út og borðar þær
daglega að auki. Hann segir pepp-
eróní vinsælasta áleggið | síða3o
■ MENWIWG
„Þetta segir sig sjálft, er hvorki
flókið né mikið mál," segir Krist-
inn E. Hrafnsson um sýningu
sína í galleríinu i8 | síða32
Grunur leikur á að maður á þrítugsaldri hafi nauðgað fimm ára stúlku:
Foreldrar óttaslegnir
■ Reyndi að tæla ungar stúlkur ■ Foreldrar láta börn sín ekki ganga ein milli húsa
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
Foreldrar í Vogahverfi í Reykjavík eru margir
hverjir uggandi eftir að fréttist að óttast væri að
karlmaður á þrítugsaldri hefði nauðgað fimm
ára stúlku á leiksvæði í hverfinu. Maðurinn er
jafnframt grunaður um að hafa reynt að tæla
þrjár stúlkur upp í bíl til sín.
Foreldrar fimm ára stúlkunnar leituðu til lög-
reglu sem hóf rannsókn á málinu. Lífsýni hafa
verið tekin úr stúlkunni og manninum. Sama
dag reyndi maðurinn að tæla fjórar ungar stúlkur
inn í bíl til sín og áreita þær kynferðislega. Þetta
reyndi hann á nokkrum stöðum. Stúlkurnar gátu
gefið greinargóða lýsingu á manninum og var
hann handtekinn eftir það. Sjálfur neitar hann
því að hafa brotið nokkuð af sér.
Foreldrar settu sig í samband við Guðbjörgu
Halldórsdóttir, skólastjóri Vogaskóla. „Mér skilst
að hann hafi gefið sig á tal við stúlkurnar og
viljað fá þær upp í bíl til sín en án árangurs. Þetta
var kynferðislegt tal sem maðurinn viðhafði og
tilraun hans til nálgunar var á þann hátt. Ég veit
ekki hvort einhver snerting hefur átt sér stað.“
Harald Kulp, varaformaður foreldrafélags
Vogaskóla, segir hverfið rólegt en nú sé ljóst að
foreldrar þurfi að brýna fyrir börnum sínum að
hafa varann á gagnvart ókunnugum.
„Eðlilega eru foreldrar í hverfinu áhyggjufullir
og okkur stendur ekki á sama um börnin. Þetta
er annað tilvikið á tveimur árum og ég heyri
það á foreldrum í kringum mig að þeir láta ekki
lengur börnin sín ganga ein milli húsa í hverfinu,1
segir Harald.
Sjá einnig síðu 4
MYND/FRIKKI
Síðasta æfingin Leikmenn íslenska handboltalandsliðsins tóku á í gær þegar þeir voru á síðustu æfingu sinni á íslandi fyrir átökin í Þýskalandi þar sem heimsmeistaramótið
í handbolta fer fram. Mótið hefst á morgun og fyrsti leikur íslands verður á laugardag.
» siöa 36
Sárar tískulöggur
Tískuglæpir á Golden Globe,
segja tískulöggurnar um
fatnað stjarnanna. Lögmál
tískunnar voru beygluð,
marin og kramin.
VEÐUR
Frost áfram
Norðan 13-20 og snjókoma
viö austurströndina en
hægari og él eftir hádegi
í dag. Frost 1 til 12 stig,
kaldast inn til landsins.
» sída 2
HM í handbolta
Sextán síðna sérblað
um heimsmeistara-
mótið í handbolta
fylgir með
Blaðinu í dag.
Renault -
öruggari notaðir bílar
☆ ☆☆☆☆
Renault Laguna II
Nýskr. 01.2003,
5 dyra, ssk., ekinn 75 þ.
Verð kr. 1.590.000
Tilboð kr. 1.280.000
Renault Laguna II
Nýskr. 01.2006,
5 dyra, ssk., ekinn 7 þ.
Verð kr. 2.790.000
Veldu 5 stjörnu öryggi
lífsins vegna!
ýf •ixúirú
Renault Megane II Sport T
Nýskr. 09.2004,
5 dyra, bsk., ekinn 42 þ.
Verð kr. 1.680.000
Renault SCENIC II
Nýskr. 06.2005 ,
5 dyra, ssk., ekinn 17 þ.
Verð kr. 2.520.000
,575 1230,