blaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 19.01.2007, Blaðsíða 1
13. tölublað 3. árgangur föstudagur 19. janúar 2007 FÓLK ætla að byrja laugardaginn á þvi i fara í morgunkaffi til ömmu," segir Hlaðgerður íris sem opnar sýningu um helgina | síða is FRJÁLST, ÓHÁÐ & ''EYPIS! ■ KOLLA OG KULTURINN Bryndís Loftsdóttir segir að um 400 bókatitlar séu komnir á útsölu en líklega eiga þeir eftir að verða helmingi fleiri | s(ða2o Kynlífsmyndband af fyrrum forstööumanni og skjólstæöingi meöferöarheimilisins: Eru ekki búin að kæra ■ Þurfa að kæra birtinguna svo lögregla rannsaki málið ■ Kæra hvort annað fyrir nauðgun Eftir Trausti Hafsteinsson trausti@bladid.net ,Ef menn birta eitthvað um einkamál fólks á Net- inu þá gilda um það sömu refsilög og um aðra birt- ingu. Vandinn með Netið er að finna út hver setur efnið inn og því hver beri ábyrð í málinu. Svona birting getur varðað ærumeiðingar og persónu- verndarlöggjöf,“ segir Þórður Sveinsson, lögfræð- ingur hjá Persónuvernd. Út á Netið hefur verið sett rúmlega hálftíma langt kynlífsmyndband af Guðmundi Jónssyni, fyrrum forstöðumanni Byrgisins, og ungri konu, fyrrverandi skjólstæð- ingi Byrgisins. í myndbandinu má sjá svokallað BDSM-kynlíf milli þeirra. Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn höfuðborgarlögreglunnar, segir enga kæru hafa borist til kynferðisbrotadeildarinnar vegna myndbandsins. Til þess að rannsókn hefjist þurfi annar hvor aðili myndbandsins að leggja fram kæru vegna birtingarinnar. Ólöf Osk hefur nú þegar lagt inn kæru vegna kynferðisbrots gegn sér sem til rannsóknar er hjá sýslumanninum á Selfossi. Guðmundur hefur lýst því yfir að hann muni sjálfur leggja inn kæru gegn henni vegna nauðgunar. Þórður segir óalgengt að til Persónuverndar sé leitað vegna myndbirtinga á Netinu og segist lítið þekkja til þessa máls. „Satt best að segja hafa ekki komið upp mörg tilvik vegna svona mála og ég held að lögreglan hafi ekki fengið mörg slík kærumál. Fólk virðist frekar taka netbirtingum eins og hverju öðru hundsbiti," segir Þórður. Fjárlaganefnd og félagsmálanefnd Alþingis funduðu sameiginlega um fjármálaóreiðu Byrgisins í gær. „Ég tel hér um mjög alvarlegt mál að ræða enda orðið að sakamáli. Af þessu máli þurfum við að læra og grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að svona geti endurtekið sig,“ segir Birkir Jón Jónsson, formaður fjárlaganefndar. ,,Því miður hefur verið alltof algengt að málin liggi ekki fyrir, sérstaklega þegar um er að ræða háar upphæðir," segir Margrét Frímannsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, og gagnrýnir hversu illa var staðið að eftirliti ríkisins með hvernig peningar sem fóru til Byrgisins væru nýttir. Sjá einníg síðu 6 Bóndadagur i dag Landsmenn eiga eftir aö keppast viö aö boröa sviöakjamma og annan þorramat næstu daga og vikur. Þorri hefst í dag með bóndadegi. Hér á árum áöur buöu bænd- ur porrann velkominn til húsa meö þvi aö halda veislur fyrir aöra bændur í sveitinni. Þá þótti tilhlýðilegt að húsfreyja geröi sérstaklega vel við bónda sinn á bóndadaginn. a a a* B * OROi aus » sída 32 II VEÐUR » sida 2 1 » síður 24-25 Frumsýnir Foreldra Víkingur Kristjánsson, leikari hjá Vest- urporti, frumsýnir aðra kvikmynd sína, Foreldra, í kvöld. „Aö vinna í leikhúsi er skemmtilegt en aö vinna í kvikmyndum er bara allt öðruvísi." Léttskýjaö Norðaustan 5-13 m/s og dálítil él norðan- og austantil, en léttskýjað á S- og SV-landi Vaxandi austanátt við suður- ströndina. Frost 1 til 10 stig, en víða kaldara í innsveitum. Laddi á tímamótum Það eru tímamót hjá Ladda um þessar mundir en á morgun verður hann sextugur og skemmtun í vændum. „Það koma nokkrir af þessum karakteru! fram og einnig ég sjálfur.“ Mjódd Dalbraut 1 Hjarðarhaga 45 5 68 68 68 anuar Svið frá Fjallalambi 0% afsláttur ÚR KJÖTBORÐI Þorramatur Rófustappa Soöið hangikjöt Grillaður kjúklingur, franskar og 2 I. Coke Aðeins 998 kr. Opið alla daga frá kl. 10.-20. SP, R Bæjarlind 1 - Sími 544 4510 Hinir vinsælu ge/-arnar komnir aftur • Viður eða gler • Ýmsir litir í boði • Auðveld uppsetning • Hægt að staðsetja nánast hvar sem er • Lyktariaus bruni Reykháfur óþarfur! valencia illkebo '^RAFVER SKEIFAN3E-F SÍMI 581-2333 WWW.RAFVER.IS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.