blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS
» síöa 36
16. tölublað 3. árgangur
miðvikudagur
24. janúar 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÖKEYPIS!
■ NEYTENDUR
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segist ekki hafa
möguleika til að kanna hvort hækkanir
á matvöru séu óvenjumiklar | síða32
■ FÓLK
Kristbjörg Kjeld leikkona er dugleg í
ræktinni og segir að það geri sér gott
að stunda hana daglega. A sumrin fer
hún auk þess í gönguferðir |síðai4
Fulltrúi í miðstjórn Frjálslynda flokksins gagnrýnir þingmann flokksins:
Magnús Þór sveik okkur
■ Margrét nídd ■ Sameining við Nýtt afl kom aldrei til greina ■ Kjaftæði segir Magnús Þór
Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net
„Magnús var einn af þeim sem fóru á bak við mið-
stjórnina varðandi sameininguna við Nýtt afl,“
segir Sólborg Alda Pétursdóttir, fulltrúi í mið-
stjórn Frjálslynda flokksins, sem býður sig fram í
ritaraembætti flokksins. Hún gagnrýnir Magnús
Þór Hafsteinsson, þingmann flokksins, harðlega
og segir að hann beri ábyrgð á trúnaðarbresti milli
þingflokksins og miðstjórnarinnar.
Sólborg segir að sameiningin hafi verið í óþökk
meirihluta miðstjórnarinnar og að ákvörðunin
hafi verið tekin einhliða af þingflokknum og Jóni
Magnússyni, sem þá var formaður Nýs afls. Að
sjálfsögðu hafi nýju fólki verið frjálst að ganga til
liðs við Frjálslynda flokkinn en sameining stjórn-
málaaflanna hafi aldrei komið til greina af hálfu
miðstjórnarinnar.
„Þetta er kjaftæði og þessi ummæli hennar eru
henni til háborinnar skammar," sagði Magnús er
hann var spurður út í málið. Hann segir að um-
mælin séu eingöngu til þess fallin að lítilsvirða
þingflokkinn og forystu hans líkt og stuðnings-
menn Margrétar hafi gert að undanförnu.
Þá gagnrýnir hún Jón og fylgismenn hans úr
Nýju afli fyrir óbilgjarna gagnrýni á Margréti
Sverrisdóttur sem þingflokkurinn hafi látið óá-
talda. „Jón Magnússon, Höskuldur Höskuldsson
og Eiríkur Stefánsson hafa fengið að leika lausum
hala á Útvarpi Sögu og nítt þar Margréti persónu-
lega niður í svaðið. Enginn af hálfu þingflokksins
hefur gert nokkurn skapaðan hlut til að verja
Margréti.“
Einungis tveir dagar eru í landsþing Frjálslynda
flokksins og má búast við hörðum átökum miðað
við það sem á undan er gengið. Hörð barátta hefur
verið milli Margrétar og Magnúsar sem sækjast eftir
embætti varaformanns og af ummælum Sólborgar
má ráða að sú barátta fari harðnandi. Raddir hafa
verið uppi um klofning innan flokksins en Sólborg
telur að þrátt fyrir háværar deilur innan flokksins
sé enn timi til sátta. „Ég tel að hægt sé að ná sáttum
ef fólk er tilbúið að kyngja niðurstöðunum."
Sjá elnnig síðu 8
RÚV verður
opinbert
hlutafélag
Frumvarp menntamálaráðherra um
Ríkisútvarpið ohf. var samþykkt á
Alþingi klukkan hálf þrjú í gær með 29
atkvæðum gegn 21. Stjórnarandstaðan
lagði til að frumvarpinu yrði vísað frá
og var tillagan felld með 29 atkvæðum
gegn 22 og sömuleiðis tillaga um að
gildistöku laganna yrði frestað fram yfir
kosningar.
Miklar og harðar deilur hafa staðið yfir
á Alþingi um frumvarpið og sendu stjórn-
arandstöðuflokkarnir frá sér yfirlýsingu
síðastliðinn mánudag þess efnis að um-
ræðu um málið væri lokið að sinni, en að
nýrrar ríkisstjórnar biði það verkefni að
taka málefni RÚV til endurskoðunar eftir
kosningar næsta vor. Þingmenn minni-
hlutans lýstu einnig yfir óánægju með
nefskattinn sem lagður verður á þá sem
greiða tekjuskatt og sögðu hann enn eitt
dæmið um aðgerðir ríkisstjórnarinnar til
að auka ójöfnuð í samfélaginu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra sagði enn og aftur á þingi
að upplýsingarnar um frumvarpið ættu
ekki að koma óvart.
Frumvarp um Ríkisútvarpið ohf. samþykkt Frumvarpið um RÚV var samþykkt með 29 atkvæðum stjórnarliða gegn 21 atkvæði
stjórnarandstöðuþingmanna. Hér sést Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og flutningsmaður frumvarpsins, rétt áöur en
atkvæði voru greidd í þingsal. Ekki er að sjá að Árni Mathiesen fjármálaráðherra hlusti á ræðu hennar af miklum áhuga.
FRETTIR
ORÐLA’
» síða 36
Tvífarinn
Rúnar Freyr Gíslason á sér
tvífara en ekki er víst að
hann viti af þvi. Þeir gætu
að minnsta kosti verið
bræður, ef ekki einn og sami
maðurinn!
VEÐUR
Hvasst
Búast má við hvössum
vindhviðum suðaustan- og
austanlands. Súld með
köflum vestantil, en annars
skýjað og þurrt að mestu.
Hiti 3 til 10 stig.
» siða 2 I SÉRBÍ.AÐ
Tólf síðna
sérblað fyrir
húsbyggjand-
ann fylgir með
Blaðinu í dag
Fór Fergie í
fegrunaraðgerðir?
Orðlaus veltir fyrir sér hvort
Fleiri konur fæða heima
Fæðingar utan sjúkrastofnana voru
43 árið 2005 og hafði þeim þá fjölgað
úr 24 frá árinu áður. Langflestar voru
áformaðar heimafæðingar eða 38. Ás-
laug Hauksdóttir Ijósmóðir tók á móti 24
börnum sem fæddust heima árið 2005
og 22 árið 2006.
„Þaö er mikill kostur að fæða án inngripa
og vera sjálfar við stjórnvölinn í sínu
umhverfi,“ segir Áslaug sem hefur verið
Ijósmóðir í 40 ár.
24 fangar utan fangelsa
Tuttugu og fjórir fangar eru vistaðir utan
fangelsa. Flestir eru á áfangaheimilinu
Vernd eða sautján, aðrir eru á sjúkra-
húsum, Barnaverndarstofu, Hlaðgerð-
arkoti og Sólheimum. Á síðasta ári tók
þriðjungur brotamanna út sína refsingu
með samfélagsþjónustu.
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags-
fræði við Háskóla Islands, segir mýkri
afplánunarúrræði reynast samfélaginu
vel fyrir margra hluta sakir.
r- FASTEIGNALÁN „y fc/y S sK rKA AocsiMb
1 FRJÁLSI jpr g g 1 MYNTKORFU Nánari upplýsingar veita lánafulltrúai Frjálsa og á www.frjalsi.is 3,4%