blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 blaöiö VEÐRIÐ í DAG A MORGUN VÍÐAUM HEIM Hvasst Vestlæg átt, víða 10-18 m/s, en allt að 23 á annesjum norðan- og norðaustantil. Súld með köflum vestantil, en annars skýjað og þurrt að mestu. Hiti 3 til 10 stig. Kólnar Vestlæg átt, 10-18 m/s. Rigning eða slydda um landið vestanvert, en þurrt að mestu austantil. Kólnar í veðri. 13 Glasgow 3 Hamborg 3 Helsinki ■1 Kaupmannahöfn -5 London 3 Madrid ■1 Montreal 1 New York -1 Orlando 12 OslÓ 1 Palma 3 París 8 Stokkhólmur 10 Þórshöfn Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Frankfurt Heimafæðingum fjölgar um nítján: | Slapp við Hreysti er skilyröi ■ Sjálfar við stjórnvölinn Neytendasamtökin setja upp lista yfir fyrirtæki sem hækka verð: Birgjar hækka vöruverð ísrael: Forsetinn lögsóttur Menachem Mazuz, dómsmála- ráðherra ísraels, hefur mælt með því að Moshe Katsav Isra- elsforseti verði lögsóttur fyrir misbeitingu á valdi, nauðgun og önnur kynferðisbrot. Fjórar konur sem unnu með Katsav í forsetatíð og ráðherra- tíð hans hafa sakað hann um brotin. Katsav hefur neitað öllum ásökunum, en endanleg ákvörðun um hvort hann verður sóttur til saka verður tekin eftir yfirheyrslur á Katsav sjálfum. Mazuz segist nú þegar hafa næg sönnunargögn til að kæra forsetann, sem nýtur þó frið- helgi á meðan hann situr enn í embætti. berum saman verð á milli versl- ana höfum við undanfarið gert sérstakar verðmælingar og kannað þróun vöruverðs innan einstakra verslana. Þetta er gert í tilefni af boðuðum aðgerðum ríkisstjórn- arinnar til lækkunar matarverðs, sem koma til framkvæmda þann 1. mars næstkomandi.“ Hagstofa Islands hefur lagt mat á áhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar til lækkunar matvælaverðs, aðrar en tollalækkanir. Mat Hagstofunnar er að breytingar á virðisaukaskatti og vörugjöldum lækki matarverð um 8,7 prósent. Þegar ríkisstjórnin kynnti tillögur sínar í fyrra áttu þær að leiða til um það bil 16 pró- senta lækkunar matvælaverðs. Þýskaland: Fangi slapp með póstinum Max Friedener, 28 ára Þjóð- verji, slapp úr fangelsi í Darmst- adt í Þýskalandi með því að fela sig í pappakassa inni í pósther- bergi fangelsisins. Kassinn var svo fluttur um borð í póstbíl og tókst Friedener að sleppa úr póstbílnum þegar hann var á ferð. Fyrst var tekið eftir flóttanum þegar póstbíll- inn mætti á póstflokkunar- stöðina þar sem sundurtættur kassinn fannst. Friedener var dæmdur fyrir fjársvik í fyrra, en lögreglu hefur enn ekki tekist að hafa hendur í hári strokufangans. Fjöldi heildsala og innlendra fram- leiðenda, sem selja vörur til matvöru- verslana, hefur hækkað hjá sér verð frá 1. desember síðastliðnum. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtak- anna. Þar má sjá lista yfir þá birgja sem hafa á þessum tíma hækkað verð auk skýringa sem gefnar eru fyrir verðbreytingunum. Hækkan- irnar eru flestar á bilinu 2-8 prósent. „Það getur verið misjafnt hve- nær slíkar hækkanir skila sér inn í verðlagið, enda fer það til dæmis eftir stöðunni hjá birgjum eða smá- sölurn," segir Henný Hinz, verk- efnastjóri verðlags- og neytenda- mála hjá Alþýðusambandi Islands. „Fyrir utan verðkannanirnar sem við gerum reglulega þar sem við seddist heima Bragi i fangi móður sinnar, Gyðu Margrétar Péturs- dóttur. Bladiö'Eyþór Umferðarmál: 3.575 ótryggð ökutæki Ótryggð ökutæki hér á landi eru 3.575 talsins, eða 1,3 prósent af heildarbílaflotanum. Þegar eigendur bifreiða hafa ekki greitt af þeim tryggingar í ákveðinn tíma fellur niður lög- bundin ábyrgðartrygging. Hluti af ótryggðu ökutækj- unum er kominn úr umferð en ljóst er að nokkur hluti þeirra er enn í umferð. Ef ökumaður ótryggðs bíls veldur tjóni á öðrum greiðir tryggingafélagið upp kostnaðinn og krefur öku- mann síðan um endurgreiðslu alls kostnaðarins. Það er því grafalvarlegt mál að keyra um á ótryggðum bíl. Kærur gegn Guðmundi: Kærðar fyrir ásakanirnar „Ég geri fast- lega ráð fyrir að konurnar verði kærðar fyrir rangar sakargiftir. Við höfum ekki enn séð þessar kærur gegn Guðmundi og það er ekki fyrr en að þvi loknu sem við munum leggja fram kæru,“ segir Hilmar Baldursson, lögmaður og verjandi Guð- mundar Jónssonar, fyrrverandi forstöðumanns Byrgisins. Hjá sýslumanninum á Selfossi eru til umfjöllunar tvær kærur vegna kynferðisbrota á hendur Guðmundi. Hilmar segir kær- una verða lagða fram að loknum skýrslutökum hjá sýslumanni í þessari viku. „Ég hef ekki náð að fara alveg yfir þetta með Guð- mundi ennþá.“ Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@þladid.net Fæðingar utan sjúkrastofnana voru 43 árið 2005 og hafði þeim þá fjölgað úr 24 frá árinu áður. Langflestar voru áformaðar heimafæðingar eða 38. Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir tók á móti 24 börnum sem fæddust heima árið 2005 og 22 árið 2006. „Ég held að konur séu farnar að lesa meira um fæðingar og gera sér grein fyrir þvi hvað það er mikill kostur að fæða án inngripa og vera sjálfar við stjórnvölinn í sínu um- hverfi. Skilyrðið fyrir því að fæða heima er þó að engir sjúkdómar séu fyrir hendi,“ segir Áslaug sem hefur verið ljósmóðir í 40 ár. Hún segir konurnar fara í meðgöngueftirlit á sínum heilsugæslustöðvum auk þess sem hún komi heim til þeirra nokkrum sinnum á meðgöngunni hafi þær ákveðið að fæða heima. Áð sögn Áslaugar, sem tekið hefur á móti börnum í heimahúsum í rúm 9 ár, þarf í sumum tilfellum að hætta við að ljúka fæðingu heima þegar frekari aðstoðar er þörf. Gyða Margrét Pétursdóttir er ein þeirra kvenna sem notið hafa að- stoðar Áslaugar við heimafæðingu. „Ég ákvað að fæða þriðja barnið mitt heima. Ég hafði fætt í gegnum kerfið meðganga-fæðing-sængur- lega en þá er það sama ljósmóðirin sem sinnir eftirliti á meðgöngu og eftir fæðingu. Pabbinn getur þá líka verið með á spítalanum allan tím- ann. Svo var þetta kerfi lagt niður og ef fullt hefði verið í Hreiðrinu hefði ég þurft að fara inn á almenna deild. Það fannst mér ekki koma til greina." Gyða, sem fyi átti tvo stráka, 8 og 2 ára, eignað- ist þann þriðja í október síðast- liðnum.„Égheld að það að eiga heima hafi átt stóran þátt í því hversu fljót ég að jafna mig eftir á. Ég hafði barist við fæðingarþunglyndi í hin skiptin en fann ekkert fyrir því núna. Umgjörðin við fæðinguna var allt önnur. Það er þessi tilfinning að vera sjálfur við stjórn og geta ráðið við aðstæður. Að vera í því umhverfi sem manni líður best í hefur svo mikið að segja,“ útskýrir hún. Nú hafi hún ekki þurft að velta því fyrir sér hvort hún færi of snemma upp á fæðingardeild eða of seint og við það hafi hún losnað við vissan streituþátt. er sannfæring mín að fæðingin gangi betur ef konan er ekki stressuð. Ég var líka viss um að allt myndi ganga vel. Svo búum við reyndar nálægt spítalanum," segir Gyða aðspurð hvort hún hafi ekkert velt því fyrir sér hvort of langt væri að fara til að leita aðstoðar færi eitthvað úr- skeiðis. „Fæð- ing er nátt- úrulegur og eðlilegur hluti af lífinu sem í flestum tilvikum þarf ekki tæknileg inngrip í,“ bætir hún við. Ljósmóðir í 40 ár Áslaug Hauksdóttir með Braga litla. Verðhækkanir hjá birgjum Með- I al ástæðna sem gefnar eru fyrir I hækkunum eru gengisbreytingar, ■ launahækkanir, erlendar verð- |^öæWcan/r og kostnaðarhækkanir. 2007 Mazda CX-7 4x4 Grand Touring. 4 cyl. Turbo, 244 hö. 6 þrepa sjálfskipting, leður, glertopplúga, allt rafknúiS, Bose hljómgræjur, "18 álfelgur, loftkæling, ofl. Til sýnis á staðnum. Okkar verð: 4.590 þúsund. www.sparibill.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.