blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007
blaAiö
INNLENT
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Tölvunotkun rauf friðinn
Lögreglan var kölluð út í hús á höfuðborgarsvæðinu á mánudag
en unglingspiltar á heimilinu höfðu farið yfir strikið, að mati
foreldranna. Þeir höfðu eytt löngum stundum í tölvuleikjum og
brugðust illa við þegar móðirin ætlaði að taka á málinu. Nokkra
stund tók að laga ástandið. Málið á sér fordæmi.
HÆSTIRETTUR
Haraldur vanhæfur í Baugsmálinu
Hæstiréttur telur Harald Johannessen ríkislög-
reglustjóra vanhæfan í Baugsmálinu. Hann getur
ekki komið að rannsókn á meintum skattalaga-
brotum fimm núverandi og fyrrverandi forsvars-
manna Baugs Group. Aðrir þurfa ekki að víkja.
REYKJAVÍK
Mótmæla hækkun strætógjalda
Fulltrúar minnihlutans í umhverfisráði
Reykjavíkurborgar mótmæla harðlega hækkun
strætófargjalda í Reykjavík. Þetta kemur fram í bókun
sem lögð var fyrir umhverfisráð í fyrradag. i bókuninni
segir að hækkanirnar bitni á þeim sem síst skyldi.
4c i'
r-
Barnaníðingur í Vogunum:
Neitar enn sök
„Ég get því miður ekki gefið
upp hvað kom fram í skýrslutök-
unum í gær en næstu skref verða
ákveðin þegar þeim lýkur,“ segir
Björgvin Björgvinsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn höfuðborg-
arlögreglunnar. 1 gær hófust
skýrslutökur af ungu stúlkunum
sem áreittar voru í Vogahverfi
í byrjun síðustu viku og leikur
grunur á að maður á þrítugsaldri
hafi komið fram vilja sínum gegn
fimm ára stúlku.
Maðurinn verður í gæslu-
varðhaldi fram á föstudag og
skýrslutökum af stúlkunum
verður haldið áfram í dag. Hann
neitar ennþá sök og Björgvin úti-
lokar ekki að farið verði fram á
Mýkra úrræði Reynsla hér á landi af mýkri afplán-
unarúrræðum er góð og hefur ekki orðið til þess
að auka afbrotatiðni manna eftir afplánun. Nýveriö
gerði dæmdur barnaníðingur tilraun til kynferðis-
brota gegn tveimur þrettán ára tálbeitum á meðan
hann afplánaði refsingu á áfangaheimilinu Vernd.
AFPLANUN UTAN
FANGELSA 2005:
DNA-sýnatöku á næstunni. „Við
verðum að klára skýrslutökurnar
áður en við ákveðum hvað verður
svo gert. Meira get ég eiginlega
ekki gefið upp á þessu stigi,“ segir
Björgvin.
Vernd 73
SÁÁ 12
Hlaðgerðarkot 15
Byrgið 2
Krýsuvík 4
Samtals: 106
Brutu skilyrði: 17
Hlutfall: 16%
Ráðist á sofandi mann:
Töldu hann nauðga
Kona hefur lagt fram kæru
vegna tilraunar til nauðgunar í
Þorlákshöfn á sunnudagsmorgun.
Maðurinn hefur hins vegar sjálfur
lagt fram kæru fyrir líkamsárás.
Samkvæmt konunni komu
vinir hennar að manninum uppi
í rúmi hennar þar sem hún svaf
og var hann á nærfötunum einum
klæða. Átök brutust út og hentu
þeir manninum út úr húsinu, á
nærfötunum, þar sem slagsmálin
héldu áfram.
Maðurinn hafði hins vegar aðra
sögu að segja þegar hann lagði
sjálfur fram kæru og segir að ráðist
hafi verið á sig þar sem hann hafði
lagst til hvílu í húsinu, þar sem
hann var gestkomandi. Samkvæmt
Prófessorinn Helgi Gunnlaugsson vill ekki breytt kerfi:
Látum ekki slá
okkur út af laginu
■ Þarf ekki að endurskoða kerfið í heild ■ Mýkri úrræði reynast vel
Árás í Þorlákshöfn Bæði konan
og maðurinn hafa lagt fram kæru.
manninum var honum síðan hent
út úr húsinu þar sem þeir réðust á
hann og skildu hann eftir. Hann
hefði síðan komist í nærliggjandi
hús og leitað aðstoðar en tennur
brotnuðu í honum við átökin.
N- TEPPALÖGN
www.dukur.is
Eftir Trausta Hafsteinsson
traustl@bladid.net
Tuttugu og fjórir fangar eru vistaðir
utan fangelsa. Flestir eru á áfanga-
heimilinu Vernd eða sautján, aðrir
eru á sjúkrahúsum, Barnaverndar-
stofu, Hlaðgerðarkoti og Sólheimum.
Ef einstaklingur fær dóm sem nemur
sex mánuðum eða skemur býðst við-
komandi að taka út sína refsingu
með samfélagsþjónustu. Á síðasta ári
tók þriðjungur brotamanna út sína
refsingu með samfélagsþjónustu, til
dæmis hjá líknarfélögum, iþróttafé-
lögum eða með kirkjustarfi.
Nýverið varð dæmdur barnaníð-
ingur, Ágúst Magnússon, uppvís að
því að gera tilraun til að nálgast tvær
þrettán ára tálbeitur sem hann komst
í samband við á Netinu. Á þeim tíma
var Ágúst að afplána síðasta áfang-
ann af fimm ára fangelsisdómi sem
hann hlaut fyrir gróf kynferðisbrot
gegn sex ungum drengjum. Hann
var vistaður á Vernd og vann eðli-
legan vinnudag utan heimilisins.
Góð reynsla
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í
félagsfræði við Háskóla Islands, segir
mýkri afplánunarúrræði reynast
samfélaginu vel fyrir margra hluta
sakir. Þau gefi jafngóða ef ekki betri
raun en fangelsin. „Þau hafa siður en
svo aukið tíðni þess að afbrotamenn
brjóti af sér eftir afplánun," segir
Helgi. „Þetta er líka mun ódýrara fyrir
samfélagið því hver einstaklingur í
fangelsi kostar margar milljónir á ári.
Þessi aðili brýtur hreinlega gegn allri
þeirri meðferð sem hann hefur fengið
og það hlýtur að vera áfall fyrir þá
sem hafa unnið með hann.“
Strangar reglur
Erlendur S. Baldursson, deildar-
stjóri hjá Fangelsismálastofnun, er
sammála því að afplánunarúrræði
utan fangelsa hafi reynst vel hér á
landi. „Það er engin ákveðin lína í
því hvaða afbrotamenn fara í mýkri
úrræði því í raun er það þverskurður
allra afbrotamanna. Strangar reglur
gilda um vistanir utan fangelsa en
yfirleitt er um að ræða vistun við lok
afplánunar,“ segir Erlendur.
Algjört áfall
Aðspurður segir Helgi að kyn-
ferðisbrotamenn sýni lægstu tíðni
til þess að brjóta aftur af sér eftir
afplánun. Engu að síður telur hann
mikilvægt að huga betur að þeim í
framtíðinni. „Þetta mál er eiginlega
algjört áfall. Hins vegar megum
við alls ekki láta það slá okkur út
af laginu því við þurfum ekki að
endurskoða allt batteríið,“ segir
Helgi. „Dæmið með Ágúst verður
samt líklega til þess að málefni kyn-
ferðisbrotamanna verði skoðuð upp
á nýtt því viðkomandi er haldinn
ólæknandi girnd. Hegðun hans ke-
mur mjög flatt upp á alla sem hafa
verið í samskiptum við hann síð-
ustu fjögur ár.“
Játning dæmds barnaníðings:
Vantar fleiri sannanir
Ágúst Magnússon, dæmdur barnaníöingur, viður-
kenndi í viðtali að hafa komið fram vilja sínum við
mun fleiri fórnarlömb en hann var dæmdur fyrir. í
mars 2004 var hann dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir
gróf kynferðisbrot gegn sex drengjum. Ágúst verður
yfirheyrður í dag hjá kynferðisbrotadeild höfuðborgar-
lögreglunnar vegna þessara fullyrðinga sinna.
Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn,
segir að fleira þurfi að koma til. „I dag verður tekin
skýrsla af honum. Játning er ekki bara játning því slík-
ar fullyrðingar þarf að styðja með öðrum gögnum. Til
dæmis þarf að finna þolendurna sem þarna um ræðir
og við erum að kíkja á þetta mál. Ákæruvaldið þarf
svo að ákveða hvað gera skal að rannsókn lokinni,"
segir Björgvin.
Játning ekki nóg Ágúst
Magnússon, dæmdur barna-
niðingur, segist hafa misnot-
að fleiri fórnarlömb en hann
var dæmdur fyrir.
Greiðslukjör
í allt að 36
mánuði
Sjontækjafræðingur með
réttindi til sjónmælinga og
linsumæiinga
SGleraugað
Bláu húsin við Faxafen
Suöurlandsbraut 50
108 Reykjavík
Sími: 568 1800
s
1
(visa/euro) Engin útborgun
gleraugad@simnet.is
www.gleraugad.is