blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 6
Græna
Afslattur Eisp
Grænt te igiMBl
Heilsudagar
—.x í Skútuvogi
' Utsala á
pottaplöntum
hdllandi heimur
Skútuvogur - Keflavík - Selfoss - Akureyri
Grafarholt - Kringlan - Smáralind
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÖAR 2007
blaðið
INNLENT
ENDURBÆTUR
Óvissa um fyrsta forsetabílinn
Enn ríkir óvissa um hvað verður um fyrsta forsetabílinn, en vera má að
hann verði seldur á uppboði. Ekki hefur verið greitt að fullu fyrir viðgerð
bílsins, sem stóð yfir í fimm ár og lauk fyrir tveimur árum. Hann hefur
verið í vörslu formanns Fornbílaklúbbs íslands frá því að endurbótum lauk.
Niðurstöðu í málinu má hugsanlega vænta í byrjun næsta mánaðar.
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
Réttarhöld hófust yfir svínabónd-
anum Robert „Willie" Pickton
í New Westminister í Kanada í
gær. Saksóknari segir að Pickton
hafi viðurkennt að hafa nauðgað
og myrt 49 konur og bútað líkin
svo niður. Svínabóndinn á að
hafa sagt að hann hafi verið
einu morði frá takmarki sínu, að
myrða fimmtíu konur. Saksókn-
arinn segir Pickton hafa viður-
kennt að bera ábyrgð á dauða 49
kvenna og að hafa haft áætlanir
um eitt morð til viðbótar fyrir lög-
reglumanni sem villti á sér heim-
ildir sem klefafélagi Picktons.
Þar lýsir hann sjálfum sér sem
raðmorðingja sem eigi heima á
dauðadeild og að upp hafi komist
um hann þar sem hann hafi verið
hroðvirknislegur.
Hinn 57 ára gamli Pickton
er nú ákærður fyrir morð á 26
konum úr fátækrahluta Vancou-
ver-borgar á síðasta áratug.
Byrjað var að rétta yfir honum
vegna morða á sex konum í gær,
en réttað verður vegna morða á
hinum tuttugu síðar í vor. Sak-
sóknari hyggst spila samtalið þar
sem bóndinn viðurkennir morð
á konunum fyrir dómi, en Pick-
ton kveðst hins vegar saklaus af
ásökununum.
Upp komst um Pickton árið
2002 þegar lögregla mætti á bæ
hans til að gera ólögleg skotvopn
upptæk. Við leit lögreglu á heim-
ili mannsins fundust tvö manns-
höfuð í frystikistu. Höfuðin höfðu
verið söguð langsum í sundur og
hafði höndum og fremri hlutum
fóta fórnarlambanna verið komið
fyrir í höfuðkúpunum. Við frek-
ari leit á bænum fannst höfuð
annarrar konu í ruslatunnu, hluti
af mannskjálka í svínastíunni
og fleiri mannabein víða í og á
jörðinni. Þá fannst riffill í þvotta-
húsinu með gervilim áfastan í
hlaupinu. Á gervilimnum fannst
lífsýni Picktons og eins
fórnarlambsins.
Flest fórn-
með pappírsbunka og teppi við
hönd. Talið er að réttarhöldin
geti varað í ríflega eitt ár.
Pickton bjó í Port Coquit-
lam, sextíu kílómetra austur af
Vancouver. Hann hafði að mestu
leyti hætt búskap þegar hann var
handtekinn í upphafi árs 2002 og
var einungis með nokkur svín á
bænum. Hann seldi kjöt til vina
og ættingja, en lögregla hefur
varað fólk við að það kunni í raun
og veru að hafa verið mannakjöt.
Pickton gæti átt yfir höfði
sér lífstíðarfangelsi, en dauða-
refsingu er ekki að finna í kan-
adískum lögum. Verði Pickton
sakfelldur fyrir morðin er hann
mesti fjöldamorð-
ingi sögunnar ..
í Kanada.
arlamba Picktons voru vændis-
konur og fíkniefnaneytendur og
hurfu flestar á síðari hluta tíunda
áratugarins. Talið er að morðin
hafi átt sér stað á rúmlega áratug.
I réttarsalnum sat hann innan í
sérsmíðuðu og skotheldu örygg-
isbúri. Hann var nýrakaður, með
sítt hár, í grárri skyrtu og
Réttarhöld yfir kanadískum svínabónda hefjast
Hefur viðurkennt morð á 49 konum Var með tvö mannshöfuð í frysti
Fórnarlömb svínabóndans Konurnar voru
flestar vændiskonur og eiturlyfjaneytendur.
Robert Pickton Lögregla komst
á sporið fyrir tilviljun þegar tvö
mannshöfuð fundust i frystikistu
mannsins.