blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
ÍRAK
Mörg hundruð uppreisnarmenn gripnir
Bandaríkjaher hefur handtekiö sextán leiðtoga og um sex
hundruð uppreisnarmenn í Mehdi-her múslímaklerksins
Moqtada al-Sadr sem staðið hefur fyrir fjölda ofbeldisverka í
(rak að undanförnu. Talsmenn Bandaríkjahers segja að menn-
irnir hafi verið gripnir í 52 aðgerðum á 45 daga tímabili.
AFGANISTAN
Tíu létust í sjálfsmorðssprengjuárás
Tíu manns létust og fjörutíu særðust í sjálfsmorðs-
sprengjuárás fyrir utan herstöð NATO nálægt bænum
Khost í Afganistan í gær. Flestir hinna látnu voru
afganskir verkamenn sem unnu á herstöðinni. Árásin
er sú mannskæðasta í Afganistan pað sem af er ári.
Blaðamaður borinn til grafar
Þúsundir manna söfnuðust saman á götum Istanbúl í Tyrklandi í gær
til að fylgja tyrknesk-armenska blaðamanninum Hrant Dink til grafar.
Ungur tyrkneskur þjóðernissinni hefur viðurkennt að hafa myrt Dink
á föstudaginn. Dink var mjög umdeildur í Tyrklandi vegna skrifa sinna
um þjóðernishreinsanir Tyrkja á Armenum í fyrri heimsstyrjöld.
HIGH AND
MIGHTY k
Hlíðasmári 13 |
ob-drykkur í dós - næstum of góður!
Uppgjör framundan Kosið verður
á milli Magnúsar Þórs Hafsteins-
sonar og Margrétar Sverrisdóttur í
embætti varaformanns á flokksþingi
Frjálslynda flokksins um helgina.
Magnús Þór Hafsteinsson svarar fyrir sig:
Er Sólborgu
til skammar
■ Deilur innan Frjálslynda flokksins harðna
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Sólborg Alda Pétursdóttir, sem býður
sig fram í embætti ritara innan
Frjálslynda flokksins, skýtur föstum
skotum á Magnús Þór Hafsteinsson,
þingmann flokksins, sem hún segir
hafa farið á bak við miðstjórn flokks-
ins. Þá segir hún að Jón Magnússon
sé ábyrgur fyrir þeim ágreiningi sem
á sér stað innan flokksins.
í grein sem hún skrifar í Morgun-
blaðið í gær fjallar hún um trúnað-
arbrest milli miðstjórnar og þing-
flokks Frjálslynda flokksins og segir
hún að ekki sé öllum treystandi til
að fara með völd, allra síst þeim sem
gera hvað sem er til þess að ná þeim.
Sólborg segir að með þessum orðum
eigi hún við að Margréti Sverris-
dóttur sé betur treystandi til að fara
með embætti varaformanns heldur
en Magnúsi . „Þá á ég við Magnús
og er að vísa til trúnaðarbrests milli
þingflokks og miðstjórnar. Margrét
er yfirveguð, skynsöm og myndi
aldrei fara á bak við fólk. Magnús er
hvatvís og framkvæmir oft án þess
að hugsa.“
Nýtt afl olli brestinum
Trúnaðarbresturinn sem Sólborg
vísar til er sameining Frjálslynda
flokksins og Nýs afls sem hún
segir að hafi verið ákveðin af þing-
flokknum í óþökk miðstjórnar
flokksins. Þar hafi Magnús ásamt
Jóni Magnússyni, formanni Nýs afls,
farið fremstur í flokki. „Magnús var
einn af þeim sem fóru á bak við mið-
stjórnina varðandi sameininguna
við Nýtt afl. Það var að sjálfsögðu
öllum velkomið að ganga í flokkinn
en sameining Frjálslyndra og Nýs
afls kom aldrei til greina. Fréttatil-
kynning þess efnis varsaminafjóni
og samþykkt af Magnúsi þaðan sem
hún var send til fjölmiðla.“
Magnús Þór Hafsteinsson vísar
ummælum Sólborgar algjörlega á
bug. „Þetta er kjaftæði. Þessi grein
hennar í Morgunblaðinu er henni
til háborinnar skammar. Hún er full
af rangfærslum og það er einsýnt að
Margrét og hennar stuðningsmenn
ætla að halda uppteknum hætti og
lítilsvirða þingflokkinn og forystu
flokksins. Þau eru búin að standa í
þessu lengi og það ætlar ekkert lát
að verða þar á,“ segir Magnús.
Jón eigi sökina
Sólborg gagnrýnir enn fremur
Jón harðlega fyrir hans framgöngu
Magnús er
hvatvís og fram-
kvæmir án þess
að hugsa
Sólborg Alda
Pétursdóttir,
miðstjórnarfulltrúi
Greinin er henni
til háborinnar
skammar
Magnús Þór Hafsteins-
son, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins
Margrét hvað
eftir annað rægð
á Útvarpi Sögu
Sigurlín Margrét Sigurð-
ardóttir, varaþingmaður
Frjálslynda flokksins
og heldur því fram að með óvæg-
inni gagnrýni á Margréti eigi hann
sök á þeim ágreiningi sem kominn
er upp innan flokksins. „Jón Magn-
ússon, Höskuldur Höskuldsson og
Eiríkur Stefánsson hafa fengið að
leika lausum hala á Útvarpi Sögu og
nítt þar Margréti persónulega niður
í svaðið. Enginn af hálfu þingflokks-
ins hefur gert nokkurn skapaðan
hlut til að verja Margréti. Eg ber
mikla virðingu fyrir Guðjóni Arn-
ari en ég hef orðið fyrir vonbrigðum
með það hvernig hann hefur spilað
með þeim í þessum málum.“
Sigurlín sammála
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir,
varaþingmaður Frjálslynda flokks-
ins, tekur í sama streng og Sólborg
og gagnrýnir á heimasíðu sinni
þingflokkinn fyrir að hafa látið
gagnrýni á Margréti óáreitta. „Það
hefur verið mér harmur að sjá þing-
flokkinn ekki lyfta litla fingri í því
að halda uppi vörnum fyrir Margr-
éti þegar hún er hvað eftir annað
rægð á Útvarpi Sögu af körlum sem
nánast hafa það eitt að markmiði að
ryðja henni úr vegi,“ segir Sigurlín.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um ósættir innan flokksins og telja
margir að klofningur innan flokks-
ins sé óumflýjanlegur. Sólborg telur
svo ekki vera en segir ljóst að leita
verði sátta strax eftir flokksþingið
sem haldið verður um næstu helgi.
„Ég tel að hægt sé að ná sáttum ef
fólk er tilbúið að kyngja niðurstöð-
unum. Það verður að koma í ljós
eftir þingið.“