blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 10
blaðið trippen verslun Rauðarárstíg 14 simi: 5515477 www.trippen.is X + DS SUMMER COLLECTION HLAUT HIN VIRTU IF VERÐLAUN FYRIR ÁRIÐ 2DD7 í FLOKKNUM “ I_ÍFSBt(lL” Læknavaktin á Smáratorgi: MIÐVIKUDAGUR 24. JANUAR 2007 Staðfesta tilraunir í geimnum Kínversk stjórnvöld staðfestu í gær að tilraun hafi verið gerð til að eyða gervitungli. Tilraunin vakti mikið umtal víða í heiminum, en hún var sú fyrsta sinnar tegundar í tuttugu ár. Bandarísk, áströlsk og japönsk stjórnvöld gagnrýndu öll. Hæðist að Bandaríkjaforseta Ayman al-Zawahiri, næstráðandi Al Qaeda-samtakanna, hæðist að Bush Bandaríkjaforseta og fjölgun í herliði Bandaríkjamanna í (rak í ávarpi sem birtist á myndbandi á mánudaginn. Al-Zawa- hiri hvatti Bush til að senda allt herlið sitt til fraks, þannig að íraskir uppreisnarmenn gætu eytt Bandaríkjaher að fullu. Hvetja Bush til aðgerða Forstjórar níu af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna, þar á meðal Alcoa, hafa hvatt George Bush Bandaríkjaforseta til að grípa til aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Bush fjallaði um málið í stefnuræðu sinni í gær, en hann boð- aði ekki að settar yrðu bindandi reglur um losun. Suéurlandsbraul 10 Slmi 533 5800 www.simnet.is/strond \STRÖND ' EHF. Auglýsingasíminn er 510 3744 Þungunarpróf á lægra verði * Einfalt í notkun •99,9% öruggt •Niðurstöður eftir 3 mínútur farma Fæst í öllum helstu lyfjaverslunum, verslunum 10/11, Hagkaupa, Esso og Olís SlGU R AFRAM Snyrtiakademían í Kópavogi Formaður Félags íslenskra fóta- aðgerðafræðlnga segir að akademían uppfylli ekki skilyrði til kennslu. akademíaN ^^^-S^ARSKÓLI-FÓTAAÐf Snyrtiakademían hyggst kenna fótaaðgerðir í haust: Fótaaðgerðir verði kenndar í háskóla ■ Segja akademíuna ekki uppfylla kröfur ■ Námiö mun hefjast í ágúst Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net „Eins og Snyrtiakademían hefur hugsað sér að setja námið upp teljum við að hún hafi ekki þau skilyrði sem til þarf til að hefja kennslu," segir Sólrún Ó. Sig- uroddsdóttir, formaður Félags íslenskra fótaaðgerðafræðinga. Félagið berst fyrir því að námið verði kennt á háskólastigi, en ekki á framhaldsskólastigi eins og Snyrtiakademían hyggst gera. Snyrtiakademían hefur fengið vilyrði til að hefja nám í fótaað- gerðafræði í haust en í grein sem Sólrún skrifar í Morgunblaðið á mánudag kemur fram að það vilyrði hafi verið dregið til baka sökum ýmissa galla sem voru á undirbúningi málsins. Þá segir hún að auglýsingar sem Snyrtiaka- demían hafi birt séu ekki byggðar á staðreyndum og séu því ósmekk- legar. Er þá einkum verið að vísa til þess að menntamálaráðuneytið hafi ekki enn gefið út námskrá og því geti Snyrtiakademían ekki full- yrt að nám geti hafist í haust, né heldur að námið verði lánshæft hjá LÍN eins og haldið hefur verið fram. „Þetta nám þarf að undirbúa vel og gera það af kunnáttu og framsýni. Það þarf að kynna hvernig námið fer fram ann- ars staðar og hvaða kröfur eru þar til grundvallar og það finnst okkur Snyrtiaka- demían ekki hafa gert,“ segir Sólrún. I n g a Þ y r í Kjartans- dóttir, eigandi Snyrtiakademíunnar, fullyrðir að vilyrði frá mennta- málaráðuneytinu hafi ekki verið dregið til baka og að námið hefjist í ágúst. „Við höfum bréf upp á það að okkur sé heimilt að reka þennan skóla. Við höfum lagt inn námskrá til ráðuneytisins og erum búin að innrétta húsnæðið fyrir kennsluna. Þrátt fyrir mótmæli FÍF stendur vilyrðið því áfram. Menntamála- ráðherra hefur skorið úr um það í eitt skipti fyrir öll að námið verði á framhaldsskólastigi, en ekki á háskólastigi, og falið þar með starfsgreinaráði að gera nýja námskrá þess efnis.“ Þórir Ólafsson, sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, stað- festi í gær að vilyrði frá ráðuneyt- inu hefði ekki verið dregið til baka og að vinna við gerð námskrár standi yfir í starfsgreinaráði og muni Ijúka á næstu mánuðum. Eins og staðan sé standi ekki til að færa námið á háskólastig eins og FÍF hefur farið fram á. Rukkar 4 ára gamla stúlku , ... , ., . „,. m KO OANKI „Mér finnst það mjög hart þegar heilbrigðiskerfið er farið að rukka börn fyrir þjónustu", segir Bylgja Backman, móðir fjögurra ára stúlku sem fékk sendan heim gíró- seðil fyrir læknisskoðun. Föstudaginn 12. janúar síðastlið- inn hringdi Bylgja í Læknavaktina á Smáratorgi og fékk sendan lækni heim en 17. janúar kom gíróseðill inn um bréfalúguna sem stílaður var á stúlkuna. „Ég skil ekki að stofnun eins og Læknavaktin skuli láta þetta fara út úr húsi“, segir Bylgja. „Viðgengst það ekki í þjóðfélaginu í dag að foreldrarnir séu ábyrgðarmenn fyrir það sem börnin lenda í?“ Bylgja veltir því fyrir sér hvað gerist ef hún borgi ekki reikning- inn, en eindagi hans er 27 janúar næstkomandi. „Ætla þeir þá að gera fjárnám hjá dóttur minni og taka leikföngin hennar? Fjögurra ára gamalt barn hefur nú ekki upp á mikið annað að bjóða.“ Ekki náðist í yfirmann Lækna- vaktarinnar vegna málsins. igat Gíróseðiliinn frá Lækna- vaktinni Móðir stúlkunnar furðar sig á vinnubrögðum stofnunarinnar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.