blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 13

blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 13
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007 13 Út úr banvænu tjóðurbandalagi Samfylkingin er komin í þá vand- ræðalegu stöðu að vera í hugum fólks pólitískur taglhnýtingur Vinstri grænna. Ofuráherslan á pólit- íska samstöðu flokkanna hefur gert markalínurnar á milli flokkanna óskýrari. Það skaðar Vinstri græna lítið. Flokkurinn er afdráttarlaus í sinni einstrengingslegu afstöðu til flestra mála. í þessu kompaníi flokk- anna tveggja líður Samfylkingin hins vegar fyrir þessa stöðu. Skoðanakönnun Fréttablaðsins á sunnudaginn, var sem staðfesting á þessu. Fréttablaðið talar afdrátt- arlaust um könnunina sem von- brigði fyrir Samfylkinguna. Fyrst í forsíðuuppslætti þegar könnunin Samfylkingin er í hugum ■1 fólks pólitískur taglhnýtingur Vinstri grænna. Umrœðan Einar Kristinn Guöfinnsson var kynnt. Svo aftur i dag, í leiðara. Þetta er örugglega ekkert ofmælt. Fimmtungsfylgi - sem er svipað og Vinstri grænir fá - hlýtur að teljast vonbrigði og er þá ekkert ofmælt. Það eru ýmsar vísbendingar um að forystufólk Samfylkingarinnar hafi gert sér grein fyrir þessu ban- væna bandalagi sem tjóðrið við Vinstri græna var flokknum. Eðli málsins samkvæmt eiga Vinstri grænir hægara með að yfirbjóða á vinstri vængnum. I þeim kappleik á Samfylkingarfólkið fá svör, sem eðlilegt er. I ljósi þessa verður að skoða útspil forystu Samfylkingarinnar í Evrópu- og evrumálum. Þar var á ferðinni mál þar sem klárlega skilur á milli Samfylkingar og Vinstri grænna. Og hversu vitlaus sem sú umræða var af hálfu flokksins má til sanns vegar færa að hún hafi getað þjónað hags- munum Samfylkingar við þessar aðstæður. Þarna var þá tilefni til að skerpa skilin - og það tókst; en bara um stundarsakir. Því þá helltist útvarpsumræðan yfir. Þessi málþófsumræða hefur augljóslega skaðað Samfylkinguna. f henni var flokkurinn í hlutverki þess sem dratthalaðist á eftir Vinstri grænum sem alltaf slá skjaldborg sinni utan um óbreytt ástand þegar kemur að ríkisrekstri. Fyrir vikið dofnuðu skilin á milli flokkanna og Samfylkingin hvarf í skuggann. Og þetta gerðist þrátt fyrir að öllum væri ljóst sem skoðuðu málin, að ágreiningsefnin á milli Vinstri grænna og Samfylkingar eru ótelj- andi. En þegar eitt mál, frumvarpið um RÚV, er látið drottna yfir um- ræðunni, hverfa þessi skil á milli flokkanna. Samfylkingin fellur í skuggann við þær aðstæður en Vinstri grænir dafna, rétt eins og Fréttablaðskönnunin sýndi okkur svart á hvítu. Þess vegna varð það niðurstaðan í dag að láta af umræðum um þetta eftirlætismál VG. Þeir voru hvort sem er búnir að mjólka það út úr um- ræðunni sem þeir gátu og gátu látið sér á sama standa, þó félagarnir úr Kaffibandalaginu sitji eftir með sárt ennið. Höfundur er sjávarútvegsráðherra Frjálslyndi karlaflokkurinn Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með væringunum í Frjálslynda flokknum í haust. Mér er minnisstæð stund frá síðasta sumri þegar við Margrét Sverris- dóttir og Kolbrún Halldórsdóttir biðum þess að fara í útsendingu á NFS sálugu. Þá sat Jón Magn- ússon í settinu og lýsti yfir því að sameina ætti karlaklúbbinn Nýtt afl og Frjálslynda flokkinn. Framkvæmdastjóri Frjálslyndra hafði aldrei heyrt á það minnst! Svona geta menn nú brallað á bak við tjöldin og þessir sömu menn þreytast ekki á að lýsa Margréti Sverrisdóttur sem „valdasjúkri konu“. Þetta finnst mér athyglisvert ekki síst í ljósi þess að Margrét er afburðamanneskja í stjórnmálum sem ég hélt að Frjálslyndum þætti sómi að innan sinna raða. En herferðin gegn Margréti, sem nær líklega hámarki á landsfundi Hreki forystan Margréti Sverrisdóttur úr sinum röðum er flokknum varla viðbjargandi. Umrœðan Þórunn Sveinbjarnardóttir flokksins um næstu helgi, var rétt að byrja þarna f sumar. Nú hafa formaður og varaformaður flokksins myndað bandalag gegn framboði Margrétar til varafor- manns Frjálslyndra. Mikill hlýtur ótti þessara manna að vera við „konuna valdasjúku". Takist forystu Frjálslynda flokksins að hrekja Margréti Sverrisdóttur úr sínum röðum er flokknum varla við- bjargandi. En það er jafnljóst að karlarnir bíða í röðum eftir að kom- ast á framboðslista Frjálslyndra um allt land. Kannski þarf að endurnefna flokkinn „Frjálslynda karlaflokkinn“ þegar framboðslist- arnir fyrir alþingiskosningarnar í vor liggja fyrir - hver veit? Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Athugasemd Vegna mistaka við uppsetningu Blaðsins birtist mynd af Birni Inga Hrafnssyni borgarfulltrúa við orð Guðna Ágústssonar land- búnaðafráðherra á síðu 6 í gær. Fréttin var um prófkjör framsókn- armanna í Suðurkjördæmi. Aser Aspire 5051 WXMi TILBOÐ: 79.900 TILBOÐ: \ 109.900- WD MyBook 250GB Utanáliggjandi hysing meö 250GB höröum disk frá Western Digital USB og FireWire 17“ Acer LCD tölvuskjár við fartölvu eöa borðtölvu með 3 ára ábyrgö, 1280x768 upplausn, 8 ms svartíma. TILBOÐ: 16.900- TILRDÐ- fQQ Ofi Logitech X-210 Flott hátalarakerfi frá Logitech viö fartölvur / borötölvu. 5.900- TILBOÐ tækni ALLAR NANARl UPPLYSINGAR A WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 AMD Turion 64 MK-36 2.0GHz ( oáJ J 512MB DDR2 vinnsluminni 60GB Haröur Diskur ^ CD / DVD Skrifari U 14.1" Nettur en bjartur skjár CrystalBrite tækni gefur dýpri liti og betri mynd ATi Radeon X1100 128MB skjákort Windows XP Media Center Kortalesari 5-Í-1 3 ára ábyrgö íjPCjpl ARA ÁÐYRGU AMD Tunon X2 TL-50 DuoCore örgjorvi 1024MB DDR2 533Mhz (mest 4GB) I H 100GB SATA Harð diskur l ! CD / DVD Skrifari 15.4" skjár með 1280x800 upplausn CrystalBrite tækni gefur dýpri liti og betri mynd Innbyggð Acer OrbiCam 0.3MP vefmyndavél ATI Radeon X1100 128MB skjákort Kortalesari 5-Í-1 Jjk Windows XP Home ímF 3 ára ábyrgö AraAbyrgð

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.