blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 14
blaðið
14 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Er gengi íslenska handboltalandsliðsins
jafn óútreiknanlegt og íslenskt veður?
„Við veðurfræðingar viljum frekar segja að veðurfarið sé margbreytilegt en að það sé óút-
folk@bladid.net reiknanlegt. Ég myndi því segja að handboltaliðið eigi misjafna daga líkt og íslenska veðrið.
EIin Björk Jónasdóttir,
vcðnrfræðingur
Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska handbolta-
landsliðsins, lét hafa eftir sér eftir sigur liðsins á
Evrópumeistaraliði Frakka að íslenska liðið væri
oft eins óútreiknanlegt og íslenska veðrið.
HEYRST HEFUR...
Handboltaæði er í uppsiglingu
og er það í rökréttu fram-
haldi af góðu gengi
handboltalandsliðsins
okkar í heimsmeistara-
keppninni í Þýskalandi.
Þjóðin virðist eiga i
ástar/haturssambandi
við liðið og er jafnfljót að standa
upp og styðja við bakið á sínum
mönnum þegar vel gengur eins
og hún er fljót að sleppa takinu
þegar illa gengur. Nú gengur vel
og allir standa þéttingsfast við
bakið á „okkar” mönnum. Hand-
boltaliðið gerir sitt besta og greini-
lega aðeins betur þar sem það
er það sem þarf. Eftir sigurinn
á Frökkum á mánudagskvöldið
varð mikill hasar á netsíðum flug-
félaga þegar eldheitir aðdáendur
reyndu að krækja sér í far til
Þýskalands til að verða vitni að
sigurgöngu íslenska liðsins.
Q teingrímur Sævarr fjallar
Oum fyrirhugað framboð
Framtíðarlandsins til Alþingis
á heimasíðu sinni. Hann segir
að það sé næsta víst að framboð
frá samtökunum muni verða að
veruleika sérstaklega í ljósi þess
að byrjað sé að nefna nöfn sem
munu vera á lista. Þær persónur
sem talað er um sem hugsanlega
frambjóðendur eru allt þekktir
einstaklingar í samfélaginu og
nokkur stjörnuljómi yfir þeim
hópi. Þar má nefna Maríu
Ellingsen leikkonu, Jóhann G.
Jóhannsson tónlistarmann og
Andra Snæ Magnason rithöf-
und. Steingrímur segir að hann
sé sannfærður um að Ómar
Ragnarsson muni bjóða sig fram
en þó sé ekki víst að hann fari
endilega fram fyrir
Framtíðarlandið
og nefnir Frjáls-
lynda flokkinn og
Þjóðarhreyfinguna
sem aðra kosti; það
sé hins vegar ljóst að Ómar fari
fram en ekki ljóst með hverjum.
Eitt er víst að komandi kosningar
verða hressandi, þar sem ferskt
og hugmyndaríkt fólk ætlar að
láta til sín taka í íslenskri pólitík.
/vS
Kristbjörgu Kjeld leikkonu
finnst mikilvægt að hreyfa sig
reglulega Feryfirleitt nokkrum
sinnum í viku i ræktina auk þess
sem hún nýtur þess að fara í
langa göngutúra þegar veðrið
ergott. Blallð/Eyþór
■ Hreyfingin mín
Styrkir mig á allan hátt
Kristbjörg Kjeld leikkona byrjaði
að stunda líkamsrækt reglulega
fyrir rúmlega tveimur árum og
segir að sér finnist alveg nauðsyn-
legt að hreyfa sig reglulega.
„Ég byrjaði að æfa í Nordica Spa
og finnst afskaplega gott að vera
þar. Þar lyfti ég lóðum og er í tækja-
salnum bæði til að brenna og styrkja
mig. Þetta styrkir mann á allan
hátt og er bæði gott fyrir skapið og
manni líður betur í skrokknum."
Kristbjörg æfir allt að fimm
sinnum í viku. „Þegar ég er súper-
dugleg geri ég það en mér finnst al-
veg ljómandi ef ég næ að fara tvisvar
til þrisvar í viku.“
Kristbjörg viðurkennir að þegar
mikið er að gera vilji það oft bitna á
líkamsræktinni.
„Þegar ég þykist ekki hafa tíma
sleppi ég stundum ræktinni og upp-
sker samviskubit í staðinn.“
Engir loftfimleikar
Kristbjörg segir þó að það sé bót
í máli að leikarastarfinu fylgi oft á
tíðum nokkuð mikil hreyfing.
Nú er Kristbjörg að æfa nýjan ís-
lenskan söngleik eftir Vesturports-
mennina Gísla Örn Garðarsson
og Víking Kristjánsson. „Þetta er
mjög skemmtilegt verkefni sem er
samstarf milli Borgarleikhússins
og Vesturports. Verkið, sem gengur
undir nafninu Ást, gerist á elliheim-
ili og það er mikið stuð og söngur
í því en kór eldri borgara er með í
verkefninu. Það er heilmikill hasar
á sviðinu en þó ekki loftfimleikar
eins og Gísli Órn er þekktur fyrir,
að minnsta kosti ekki enn sem
komið er. Það er samt aldrei að vita
hvað hann lætur okkur leikarana
gera, kannski verðum við öll komin
upp í loft fyrir frumsýningu,” segir
Kristbjörg og hlær. Frumsýning á
verkinu verður í febrúar en ekki er
kominn ákveðinn frumsýningar-
dagur enn þá.
Gönguferðir í náttúrunni
„Á sumrin er ég mjög dugleg að
fara í gönguferðir og mér finnst
alveg frábært að ganga úti í náttúr-
unni. Sundið er líka alveg yndislegt
og ég fer alltaf af og til í sund,“
segir Kristbjörg sem lætur hreyf-
inguna í líkamsræktarsalnum
og leikhúsinu nægja að sinni en
hlakkar til vorsins þegar hún
getur farið að stunda gönguferðir í
vorsólinni.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
1 4 8 5 2 7
7 8 1 3
9 2 8 4
9 6 5 8
3 9
4 2 6
8 4 7 1 5 2
7 3 6
4 2 3
1 5 8 7 4 9 3 6 2
4 6 9 8 2 3 7 5 1
7 2 3 1 5 6 4 8 9
5 3 1 2 6 4 9 7 8
2 4 6 9 7 8 1 3 5
8 9 7 3 1 5 6 2 4
6 7 2 4 8 1 5 9 3
9 8 4 5 3 7 2 1 6
3 1 5 6 9 2 8 4 7
4-1© LaughingStock Intemational lnc./dist. by United Media, 2004
Eigum við að kíkja í bíó, elskan?
A förnum vegi
Munu matarskatta-
lækkanir skila sér
til neytenda?
Sigríður Jónsdóttir
Ég hef áhyggjur af að svo verði
ekki.
Guðmundur Gíslason,
forstöðumaður
Ég held að það muni skila sér að
einhverju leyti.
Haukur ísaksson,
ellilífeyrisþegi
Ég held að það muni skila sér
að litlu leyti.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
leikskólakennari
Nei, það held ég ekki.
Ingvi Pétursson, nemi
Já, ég vona það.