blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 17

blaðið - 24.01.2007, Blaðsíða 17
blaðið MIÐVIKUDAGUR 24. JANUAR 2007 29* Það er fágætt að hjón komi fram saman sem einleikarar á tónleikum en sú verður raunin fimmtudaginn 25. janúar þegar þau Guðrún Birg- isdóttir og Martial Nardeau leika flautukonsert eftir Karólínu Eiríks- dóttur. Martial og Guðrún hófu að leika saman árið 1979, en þau kynnt- ust í Frakklandi þar sem bæði voru við nám. Martial er fæddur þar og hlaut þar sína tónlistarmenntun og Guðrún hafði áður numið við Tón- listarskólann í Reykjavík hjá Jóni Sigurbjörnssyni og Manuelu Wiesl- er og við Tónlistarháskólann í Ósló. Martial hóf flautunám níu ára gam- all við Conservatory of Boulogne S/ •hiihn Sjarnodóttk Saga stæröfræði- náms á íslandi Út er komin hjá Háskólaútgáfunni bókin Mathematical Education in lceland in Historical Context. Socio-Economic Demands and Influences eftir Kristínu Bjarnadóttur. Bókin fjallar um stærðfræðinám og kennslu á íslandi frá þrettándu öld til þeirrar tuttugustu. Rakin eru straumhvörf er urðu þegar stærðfræðingarnir Björn Gunnlaugsson og Ólafur Daníelsson mótuðu kennslu Reykjavíkurskóla hvor á sinni öld og greint frá reglugerð árið 1877 er varð til þess að stofnun stærð- fræðideildar skólans seinkaði um áratugi. Meginefni bókarinnar varðar alþjóðlega umbótahreyf- ingu, sem kennd er við nýstærð- fræði, orsakir hennar og áhrif á íslenska stærðfræðimenntun. Þrátt fyrir margvíslega erfiðleika sem hún olli átti hún veigamikinn þátt í endurnýjun fslensks skóla- kerfis og laðaði fram frumkvæði kennara og sköþunarkraft. Af erlendri rót Út er komin bókin Af erlendri rót. Þýðingar í blöðum og tímaritum á íslensku 1874-1910 eftir Svanfríði Larsen. Mikill vöxtur var í útgáfu prentmiðla á síðustu áratugum nítjándu aldar og í upphafi þeirrar tuttugustu. Þessari útgáfu fylgdi stóraukin þýðingastarf- semi og birtist í tímaritum og blöðum ákaflega fjöl- skrúðugt úrval ~=ar- af þýddu efni. Hér voru á ferð skáldsögur í formi neðanmálssagna, smásögur og Ijóð eftir heimsþekkta sem lítt þekkta höfunda víða að úr heim- inum auk margs konar hagnýtra texta af ýmsum gerðum. í þessari nýju bók er þetta efni skráð og flokkað í fyrsta sinn, svo að loks er hægt að gera sér mynd af þessu víðfeðma þýðingastarfi. í bókinni má sjá hvaða höfundar voru þýddir, hvers konar textar voru vinsælastir til þýðingar og í mörgum tilvikum hverjir voru mik- ilvirkustu þýðendurnir. Skránni fylgir ítarlegur inngangur um þýð- ingar tímabilsins. Ritið er hið 59. í ritröðinni Studia Islandica. Rit- stjóri er Gunnþórunn Guðmunds- dóttir. Útgefandi er Bókmennta- fræðistofnun Háskóla (slands. Hjón leika með Sinfóníunni Mer. Fimm árum síðar útskrifaðist hann með hæstu einkunn og hélt eftir það áfram námi hjá Fernand Caratgé og Roger Bourdin og vann til margra verðlauna. Á árunum 1979 til 1982 var hann fastráðinn við Lamoureux-Sinfóníuhljómsveitinaí París auk þess sem hann kenndi og kom víða fram sem einleikari. Eftir að Guðrún lauk námi í Ósló ákvað hún að halda til Frakklands til frek- ari menntunar við École Normale de Musique í París og lauk Guðrún þaðan einleikaraprófi árið 1979. Þá tók við frekara nám í einkatimum hjá Raymond Guiot og Pierre-Yves Artaud til ársins 1982, en þá fluttu þau Martial til íslands. Hjónin eiga að baki glæstan feril sem dúett. Arið 1992 unnu þau til verðlauna í París og hafa þau leikið marga tvíleikskonserta, m.a. með Kammersveit Reykjavíkur, Sinfóniu- hljómsveit íslands og Orquestra del Estado de Mexico. Þau hafa haldið fjölda tónleika í tíu löndum og mörg íslensk tónskáld hafa samið fyrir þau verk, bæði sem sólista og dúett, og mörg þeirra hafa verið hljóðrit- uð. Guðrún og Martial hafa einnig spreytt sig á barokkflautuleik og sótt námskeið hjá Pierre Séchet sem er einn helsti sérfræðingur Frakka á sviði barokktónlistar. Þau hafa frumflutt margar af perlum barokks- ins á íslandi. Þau hafa gef- ið út nokkra hljómdiska, bæði sam- an og sitt í hvoru lagi og verið virk- ir tónlistar- menn á mörg um sviðum Tónleikarnir hefjast klukk- an 19:30. - ilbúinn fyrir utivistarfðlkið! Suzuki Swift 4x4 99þús. Afborgun á mánudi* kr. 19.676 $ SUZUKI ...er lífsstíll! mk1 LAR HF. ími 568 5100.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.