blaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 1
21. tölublað 3. árgangur miðvikudagur 31. janúar 2007 FRJÁLST, ÓHÁÐ & FOLK Valdís Sigurþórsdóttir kennir heit- ustu nýjung í líkamsræktinni í dag, svokallað jump fit, en það eru æfingar með sippubandi | síða i4 ■ MEWWIWG Ágústa Kristófersdóttir, sýningar- stjóri Þjóðminjasafnsins, boðar sýningu með Mary Ellen Mark ljósmyndara í haust | síða2s Hækkanir á iðgjöldum og kaskótryggingum nema allt að fjörutíu prósentum: Bílatryggingarnar hækka ■ Talsmaður neytenda rannsakar málið ■ Fjöldi alvarlegra slysa skýrir að hluta Eftir Hildi Eddu Einarsdóttir hilduredda@bladid.net Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, ætlar að skoða hvort rétt sé staðið að haekkunum iðgjalda tryggingafélaga. Tryggingafélögin hækka iðgjöld og kaskótryggingar um tugi prósenta í ár. Misjafnt er hversu miklar hækkanirnar eru, en meðal skýr- inga sem gefnar eru á þeim er mikil fjölgun á alvar- legum umferðarslysum á nýliðnu ári auk hækkunar á vísitölu neysluverðs. Böðvar Þórisson, yfirmaður einstaklingssviðs Sjóvár, segir tryggingafélagið hafa breytt afsláttar- kjörum bílatrygginga á síðasta ári. „Við töldum að sú breyting myndi duga,“ segir hann. „En tjóna- þróun á árinu 2006, með tæplega þriðjungi fleiri alvarlegum slysum, hefur gert það að verkum að við urðum að hækka nú í febrúar." Neytendasamtökunum hafa einnig borist ábend- ingar um hækkun iðgjalda. fris Ösp Ingjaldsdóttir, lögfræðingur samtakanna, segir 30 prósenta verð- hækkun eða meiri ekki geta orsakast af verðbólgu- þróun eingöngu. Ung kona í Reykjavík sem tryggir hjá Sjóvá og leitaði til Blaðsins greiðir um 40 prósent meira en áður um næstu mánaðamót þó svo að hún hafi ekki lent í tjóni. Upphæðin fyrir hvort tveggja nemur samtals 111.690 krónum fyrir næstu 12 mánuði, en til samanburðar var verðið fyrir sömu tryggingar samtals 75.683 krónur fyrir tímabilið 17. febrúar 2006 til 1. febrúar 2007. Hjá VfS og Tryggingamiðstöðinni fengust þær upplýsingar að um svipaðar gjaldskrárhækk- anir og hjá Sjóvá væri að ræða á iðgjöldum og kaskótryggingum. Sjá einnig síðu 10 OROLAUS » slða 36 Þórhallur á tvífara Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kast- Ijóss, á tvífara úti í heimi. Þeir þykja keimlíkir, ekki bara hárið heldur líka karlmannlega glottið og augnsvipur- inn. Hvort þessi tvífari hefur komið til (slands og horft á Kastljós er óvíst en kannski yrði honum brugðið ef hann kæmi í viðtal í þættinum og mætti tvífara sínum. En hver er þessi tvífari? Það má sjá á bls. 36. FRÉTTIR » síða 2 Hylltu Superman berar Um nýliðna helgi var haldið Superman- partí á skemmtistaðnum Pravda þar sem meðal annars var í boði undirfata- sýning og Supergirl-keppni. (þeirri keppni fengu konur að láta Ijós sitt skína og máttu gera hvað sem er til þess að heilla Superman upp úr skónum. Sú sem gekk lengst í því að heilla hann hlaut utanlandsferð í verðlaun. Superman og Supergirl eru því á leið til London saman. „Mér finnst þessi uppákoma sárari en orð fá lýst. Þarna eru konur gerðar að klámfengnum leikföngum fávisra karla og það er verulega slæmt skref (jafnrétt- isbaráttu kynjanna. Það er alltaf verið að afmá mörkin milli kynlífs og kláms og þetta er ekkert annað en ofbeldi gegn konum,“ segir Sóley Tómasdóttir. Æft fyrir íslensku tónlistarverðlaunin Söngkonan Lay Low, eða Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, æfir hér atriði sitt fyrir íslensku tónlistarverðlaunin í kvöld en þau verða send út í beinni útsendingu Sjónvarpsins frá Borgarleikhúsinu. Lay Low, sem stundum er kölluð kvenlega hliðin á Johnny Cash, er tilnefnd í fjórum flokkum í kvöld; söngkona ársins, plata ársins, lag ársins og plötuumslag ársins. ORÐL r » síða 36 Paris hneykslar aftur Paris Hilton hneykslar enn og aftur. Dóp, kynlíf og alls kyns ólifnaður uppáhaldshótelerfingja heimsins vekur enn athygli. SERBLAÐ Sérblaö um áhugaverð námskeiö fylgir með Blaðinu ídag Rigning eða Suðlæg átt og rigning eða slydda sunnan- og vestantil. Hægari vindur á NA- og A-landi, léttskýjað fram eftir degi og vægt f rost, en dálítil snjókoma síðdegis. Fyrir mig sjálfa „Ég tók þessa ákvörðun fyrir sjálfa mig. Ég vil vinna í pólitík en ég gat ekki verið þarna lengur. Sjálfsvirðing mín leyfði það ekki,“ segir Margrét Sverrisdóttir sem gekk úr Frjálslynda flokknum á sunnudag. Hún segir alveg óráðið hvað hún muni taka sér fyrir hendur en sú ákvörðun verði tekin í samráöi við hennar stuðningsmenn. Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, segir að í her- búðum flokksins séu menn enn að meta stöðuna en segir að úrsögn hennar hafi ekki komið sér á óvart. Vinnuvernd efld Vinnuveitandinn ber orðið ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum. Það er nýmæli úr reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs sem tók gildi í nóvember. „Þetta eiga öll fyrirtæki að gera óháð því hversu stór þau eru eða í hvaöa starfsgrein. Þetta felur í sér að menn eiga að gera svo kallað áhættumat þar sem áhætta í starfi er metin með tilliti til öryggis og heilsu starfsmannanna og áhættuþátta í umhverfinu," segir Þórunn Sveinsdóttir, deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu. FASTEIGNALÁN Á 1 FRJÁLSI 1 MYNTKORFU Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is 3,4%

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.