blaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 31.01.2007, Blaðsíða 1
p nano Þorsteins Gauta Ármúla 38 Píanónám fyrir börn & fullorðna Spilaðu uppáhaldslögin þín Uppl- ■' s. 551 6751 /691 6980 www.pianoskolinn.is pianoskolinn@pianoskolinn.is | 23 Matreiðsla fyrir karlmenn 24 Sjö ástæðurtilað fara á námskeið AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Kennt á tækni-lego Margt spennandi á döfinni r þróttaakademían í Reykjanesbæ hefur að undanförnu verið að festa sig í sessi í námskeiðahaldi með því að bjóða upp á mörg spenn- andi og vönduð námskeið. Á næst- unni verða haldin mörg áhugaverð námskeið sem eiga eflaust eftir að vekja athygli margra. Fyrst ber að nefna spennandi grunnnámskeið í svæðanuddi sem haldið verður helgina 16. til 18. febrúar. Svæðanudd er ævaforn að- ferð sem hefur áhrif á líkamsstarf- semina þegar taugaendar og ákveðin svæði í fótum eru örvuð. Á námskeið- inu verður farið í grunnhandtök í svæðanuddi og í lok námskeiðsins eiga þátttakendur að þekkja helstu áhrifasvæði í fótunum. Námskeiðið er aðallega verklegt og nýtist vel þeim sem hafa áhuga á að nudda vini eða vandamenn. Næst ber að nefna leiðtoganám- skeið sem er samstarfsverkefni Íþróttaakademíunnar og Ungmenna- félags íslands. Námskeiðið er haldið helgina 22. til 25. febrúar og er hugsað fyrir þá sem eru í forsvari fyrir íþrótta- félög, sveitarfélög og félagasamtök. Markmiðið með námskeiðinu er að gera félagsmenn betur í stakk búna til að taka á hinum ýmsu verk- efnum hvort sem það er skipulagning íþróttamóts, 17 júní hátíðarhalda eða að hafa samskipti við fjölmiðla. Að auki verður á námskeiðinu fjallað um markmiðasetningu, framkomu, stjórnunarhætti og umsóknir styrkja svo eitthvað sé nefnt. Kennarar á nám- skeiðinu koma af ýmsum sviðum og nægir þar að nefna íþróttafrétta- menn, alþingismenn og kennara frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla fslands auk fleiri. Síðast en ekki síst ber að nefna námskeið í íþróttanuddi sem haldið verður yfir tvær helgar, 24. til 25. febrúar og 3. til 4. mars. íþróttanudd er ákveðin nuddaðferð sem beitt er á íþróttamenn fyrir, á meðan og á eftir þjálfun eða keppni. Nuddið undirbýr íþróttamanninn fyrir hámarksár- angur ásamt því að draga úr þreytu, auka liðleika og fyrirbyggja meiðsli. Námskeiðið er sérstaklega ætlað fyrir metnaðarfulla þjálfara, íþróttakenn- ara og einkaþjálfara. Leiðbeinandi verður Guðbrandur Einarsson, íþrótta- nuddkennari í Nuddskóla fslands. Það er því á kristaltæru að margt spennandi er á döfinni hjá íþrótta- akademíunni og ættu flestir sem hafa áhuga á íþróttum og heilsu að finna eitthvað við sitt hæfi. Íþróttaakademían: Súludans - bætir þokka og eykur þol Hulunni svipt af Da Vinci lyklinum Arabíska - ekki punktar og strik Fjölsótt námskeið Iþróttaaka- demíunnar Leikskótakennarar sitja hér námskeið og hafa gaman af. .

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.