blaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS
» siða 36
23. tölublað 3. árgangur
föstudagur
2. febrúar 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
■ FÓLK
Páll Óskar og Ellý eru dómarar í X-Fac-
tor og eru ósammála um hitt og þetta.
\ Náðst hafa sáttir milli þeirra, að
minnsta kosti fram á kvöldið | siða is
■ MATUR
Guðrún Ögmundsdóttir alþingismaður er
mikill matgæðingur og hefur gaman af
því að prófa nýja rétti. Hún notast þó
ekki endilega við uppskriftir | siða26
að yfirhalningu Guðrúnar Þorkelsdóttur SU-211 í slippnum í Reykjavík í gær. HB Grandi keypti Guðrúnu á dögunum af útgerðinni Eskju á Eskifirði. Skipið er 836
Islenskir rækjuplástrar gætu fariö á almennan markaö:
Bandarískir hermenn með
íslenska rækjuplástra
■ Stöðvar blæðingu og bindur fitu ■ Helmingur dauðsfalla í írak vegna óstöðvandi blæðingar
■ Herinn hafði samband við Prímex
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
Allir bandarískir hermenn bera plástra á sér frá
íslenska fyrirtækinu Prímex ehf. Samkvæmt
tölfræði bandaríska hersins er nærri helmingur
allra dauðsfalla hermanna í írak vegna blæð-
ingar sem ekki náðist að stöðva.
„Bandarískt fyrirtæki setti sig í samband við
okkur og viðskiptin hafa vaxið mjög hratt á síð-
ustu árum,“ segir Ólafur Helgi, framkvæmda-
stjóri Prímex ehf. Fyrirtækið rekur verksmiðju
á Siglufirði sem framleiðir efni sem kallast kí-
tósan. Það er unnið úr íslenskum rækjuskeljum
og meðal eiginleika þess er að það bindur fitu
í líkamanum og stöðvar blæðingu. Einn af að-
alviðskiptavinum Prímex er bandaríska fyrir-
tækið HemCon sem sérhæfir sig í framleiðslu
sáraumbúða. Það býr til plástra úr kítósan sem
framleiddir eru fyrir bandaríska herinn.
HemCon vonast til að koma plástrunum á al-
mennan markað í sumar og gætu þeir nýst vel á
vinnustöðum þar sem slys eru tíð. Ólafur Helgi
segir að það styttist óðum í að plásturinn fari á
almennan markað.
„Starfsemin hefur vaxið mjög hratt og fyrir-
tækið er einn af okkar aðalviðskiptavinum. í
fyrstu voru sendingar okkar í kílóavís en nú eru
þær í tonnatali. Ef varan kæmist á almennan
markað yrði það enn stærra skref fyrir okkur,“
segir Ólafur Helgi.
Plástrarnir hlutu viðurkenningu árið 2004.
Sjá elnnig síðu 4
ORÐ' "'IS
» sida 34
Mínusstrákar þroskast
„Viö erum ekki sömu vitleysing-
arnir og við vorum þegar við
vorum ungir og vitlausir," segir
Frosti Logason, gítarleikari
hljómsveitarinnar Mínus.
VIÐTAL
» síður 24-25
VEÐUR
» síða 2
Hjálpar fíklum
Elvar Bragason er laus úr
viðjum fiknarinnar en hann
var djúpt sokkinn í óreglu.
Nú heldur hann fyrirlestra í
skólum og heldur úti hjálp-
arsíðu á Netinu.
Rigning eöa slydda
Skýjað með köflum norð-
austan- og austanlands.
Lægir en gengur í suð-
austan 10-15 með rigningu
eða slyddu. Hiti 0 til 7 stig,
svalast inn til landsins.
Slœmur dagur
hjá stjömurmi
Húðin er þreytt, hárið
ómögulegt og fötin
vonlaus. Fræga
fólkið á sína
slæmu daga en
ólíkt okkur hinum
þá fá stjörnunar
ekki að vera í
friði á þessum
dögum.
Ekkert banaslys á árinu
„Þetta er virkilegt fagnaðarefni og
vonandi verður svo áfram. Ég ber þá
von í brjósti að þetta sé bein afleiðing
þeirra aðgerða sem gripið hefur verið
til undanfarið og er ánægður með að
menn standi ekki aðgerðalausir heldur
bregðist við,“ segir Ágúst Mogensen,
forstöðumaður Rannsóknarnefndar
umferðarslysa.
Það sem af er árinu hefur ekkert bana-
slys orðið í umferðinni.
Einar Magnús Magnússon, upplýsinga-
fulltrúi Umferðarstofu, segir stóreflda lög-
gæslu og umferöareftirlit framundan þar
sem aukið fjármagn verður veitt næstu
tvö ár. „Við þökkum fyrir hvern dag sem
líður án banaslysa í umferðinni."
prooptik
gleraugu
Skeifunni
Kringlunni
Spönginni
5 700 900
www.prooptik.is