blaðið - 06.02.2007, Blaðsíða 1
25. tölublaó 3. árgangur
þriðjudagur
6. febrúar 2007
ORÐLAUS
» siða 36
Skoðanakönnun Blaðsins á fylgi stjórnmálaflokkanna:
Samfylkingin orðin
minni en Vinstri grænir
■ Frjálslyndir hrynja ■ Ríkisstjórnin heldur velli ■ Margir óákveðnir
Eftir Heiöu Björk Vígfúsdóttur og Magnús Geir Eyjólfsson
Samfylkingin mælist með 19 prósenta fylgi
samkvæmt nýrri skoðanakönnun Blaðsins sem
gerð var á laugardaginn. Þar með er flokkurinn
í fyrsta skipti orðinn minni en Vinstri grænir
sem samkvæmt könnuninni mælast með 23 pró-
senta fylgi. f kosningunum árið 2003 fékk Sam-
fylkingin 31 prósent atkvæða en Vinstri grænir
tæplega 9 prósent.
I könnun Blaðsins mælist Sjálfstæðisflokkur-
inn með ríflega 45 prósenta fylgi, Framsóknar-
flokkurinn með rúmlega 9 prósent og Frjálslyndi
flokkurinn með 3 prósent. Samkvæmt könnun-
inni heldur ríkisstjórnin því velli.
„Sjálfstæðisflokkurinn kemur sérstaklega vel
út úr könnuninni á meðan Frjálslyndi flokkur-
inn og Samfylkingin gera það alls ekki,“ segir
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskóla fslands.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Sam-
fylkingarinnnar, segist enn vera bjartsýnn og
flokkurinn ætli sér meira í kosningnunum i vor.
„Aðalatriðið í okkar huga er að við teljum
okkur vera með réttu baráttumálin,” segir Ágúst
Ólafur. „Ég held að sá málflutningur muni ná í
gegn fyrir 12. maí þótt ég vildi sjá þessar tölur
hærri núna.“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, segist ekki geta verið annað en ánægður
með niðurstöðuna.
„Þetta sýnir svipaða mynd og aðrar kannanir
hafa gefið til kynna að undanförnu,” segir Stein-
grímur J. „Þróunin er í þá átt að ffokkarnir á
vængjunum eru að styrkja sig og miðjan að drag-
ast saman.”
Könnun Blaðsins er fyrsta skoðanakönnunin
sem gerð er eftir að Margrét Sverrisdóttir sagði
sig úr Frjálslynda flokknum. Síðan í nóvember
hafði flokkurinn verið að mælast með á bilinu
9 til 12 prósenta fylgi en nú hrynur fylgið niður
í 3 prósent.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segir að flokkurinn hafi mátt
þola neikvæða umræðu í fjölmiðfum.
Fylgi stjórnmálaflokka
45,4%
Alþingiskosningar 2003 20%
Skoðanakönnun 10%
Rlaðsins
31,0%
17,7%
9,4%
7,4%
3,1%
22,9%
8,8%
Framsóknar-
flokkurinn
Frjálslyndi Samfylkingin Sjálfstæðis- Vinstri grænir
fiokkurinn
fiokkurinn
Það er alveg Ijóst að
1rið höfum orðlð að þola
neikvæða umræðu I
fjölmiðlum undanfarna daga.
Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins
Wð ætlum okkur auðvítað
melra I kosningunum en ég
er bjartsýnn því það eru enn
margir óákveðnir.
Agúst Ólafur Ágústsson,
varaformaður Samfylkingarinnar
„Við eigum eftir að raða niður á okkar lista og
það hafa verið óvissutímar í kringum flokkinn
þannig að það er kannski ekki skrýtið að það
setji einhvert mark á könnunina,” segir Guðjón
Arnar.
1 könnuninni sögðust 39 prósent aðspurðra
ekki vera búnir að ákveða hvaða stjórnmálflokk
þeir hygðust kjósa í alþingiskosningunum í
„Það er athyglisyert hversu margir eru
óákveðnir,” segir Baldur Þórhallsson. „Það
sýnir bara það að það er svo gríðarlega mikil
gerjun og ólga í stjórnmálum núna og mikið í
gangi, sérstaklega hjá tveimur flokkum stjórn-
arandstöðunnar, Frjálslynda flokknum og
Samfylkingunni.“
ORÐLAUS
» síða 37 ■ VEÐUR
»síða2 B VIÐTAL
Sjá einnig síðu 8
»síöur 17-24
Mínus hitar upp
Hljómsveitin Incubus valdi Mínus
til að hita upp fyrir tónleika sína í
Höllinni. Mínus hefur áöur
hitaö upp fyrir Metallica,
Foo Fighters og Que-
ensofthe StoneAge.
Frost um allt land
Hægviöri og léttir heldur
til. Annars austlæg átt, 3-8
metrar á sekúndu og víöa
léttskýjað. Frost um allt
land, mest 10 til 15 stig í
innsveitum.
Átta síöna
sérblað um
bíla fylgir meö
Blaðinu í dag
Hóett saman
Kylie Minoque og kærasti hennar,
leikarinn Oliver Martinez,
eru hætt saman, en þau
sendu frá sér fréttatil-
kynningu á föstu-
dagskvöld. Vinir
söngkonunnar eru
þó ekki par hrifnir
af framkomu
leikarans en að-
eins 12 klukku-
stundum eftir
sambandsslitin
sást Martinez
í fylgd með
Renault
öruggari notaðir bílar
☆ ☆☆☆☆
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
1RENAULT LAGUNA II
Nýskr: 05/2003,1800cc
ij 5 dyra, Sjálfskiptur, Blár,
] Ekinn 55 þ.
jverð: 1.680.000
Tilboð 1.290.000
110-976
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 08/2005,1600cc
J 4 dyra, Sjálfskiptur, Rauður,
I Ekinn 23 þ.
Iverð: 2.030.000
iTilboð 1.590.000
IRENAULT MEGANE II
I Nýskr: 09/2003,1600cc
5 dyra, Beinskiptur,
J Dökkgrænn, Ekinn 48 þ.
Iverð: 1.370.000
ITilboð 990.000
Í RENAULT MEGANE II
| Nýskr: 03/2006,1600cc
15 dyra, Fimmgíra, Svartur,
I Ekinn 7 þ.
|Verð: 1.960.000
1x1-614
bilolond.is.
575 1230
h