blaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 07.02.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS » síða 36 26. tölublað 3. árgangur miðvikudagur 7. febrúar 2007 ■ FÓLK Páll Magnússon segist vera sáttur við nýtt fréttastef Útvarpsins, enda eigi menn ekki að láta þessa indælu íhaldssemi alltaf ráða för |síðai4 ■ MATUR Hrafnhildur Sigurðardóttir, myndlistar- kona, segir best að borða þorskhnakka og gefur uppskrift að eldamennskunni | síða28 FRJALST, OHAÐ & OKE Skoðanakönnun Blaðsins: Tvískipt afstaða til evru ■ Kjósendur stjórnarflokka andvígari evru ■ 74 prósent hafa skoðun á málinu Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur og Magnús Geir Eyjólfsson Þjóðin skiptist í tvær fylkingar í afstöðunni til þess að taka upp evruí staðinn fyrir krónuna. Sam- kvæmt skoðanakönnun Blaðsins, sem gerð var á laugardaginn, eru tæplega 51 prósent landsmanna hlynnt því að taka upp evru en rúmlega 49 prósent eru mótfallin því. Þegar afstaða fólks er skoðuð út frá því hvort það styðji stjórnarflokk'ana eða stjórn- arandstöðuflokkana kemur töluverður munur í ljós. Um 62 prósent þeirra sem sógjast styðja stjórn- arandstöðuflokkana eru hlynnt upptöku evru en til samanburðar eru 44 prósent þeirra sem segjast styðja stjórnarflokkana hlynnt henni. Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur og for- r Andvigir 49,2% Hlynntir T 50,8% LH, stjóri Askar Capital, segir niðurstöðuna í takt við afstöðuna til Evrópusambandsaðildar. „Samt virðast heldur fleiri vera á því að taka upp evruna sem endurspeglar þá umræðu sem verið hefur í þjóðfélaginu undanfarna mánuði,“ segir Tryggvi Þór. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir athyglis- vert hversu margir taki afstöðu, en samkvæmt könnuninni tóku tæplega 74 prósent af þeim tæp- lega 97 prósentum sem svöruðu spurningunni afstöðu. Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að könnunin sýni að fylgi við upptöku evrunnar fari vaxandi. Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, segir að hugmyndir um upptöku evru byggist á vanþekkingu. Sjá einnig síðu 8 Hilluplássið aukið i héraðsdómi Húsverðir í Héraðsdómi Reykjavíkur báru inn hillur í gær. Þeir sögðu kankvísir að aukið skjalamagn í Baugsmálinu kallaði á fleiri hillur fyrir dóminn, Þrátt fyrir sýknudóm yfir fjórum sakborningum er málinu hvergi nærri lokið. ORÐLAUS » síða 34 | VEÐUR » síða 2 | VIÐTAL »síður 17-24 \ jfc: Góö í málum lr Bryndís Ýr Pétursdóttir vinnur hjá Bændaferðum. Hún talar Iftw reiprennandi þrjú tungumál ■L enda hefur hún ódrep- . andi áhuga á ýmsum ■ mállýskum og málfræði. Áfram frost < yk. Hæg austlæg eða breytileg áttog léttskýjað, en 8-13 m/s og dálítil él syöst á ** tLi landinu. Frost víða 2 til 7 | stig, en allt að 15 stig inn til landsins. Átta síðna sér- i blað um heimili ;=; ' og hönnun fylgir I- áraj! meö Blaðinu ==r'8PBÍÉll| Ástfangin upp fyrir haus Leikarinn Jim Carrey og Playboy- kanínan Jenny McCarthy hafa verið saman í nokkra mánuði og segja nánir vinir að sambandið blómstri en leikarinn hefur sjálfur sagt að mikil alvara sé í sam- bandinu. „Það er langt síðan ég hef verið svona hamingjusamur og ég finn það núna hvað það skiptir miklu máli að vera tilbúinn til þess að vera í nánu sambandi við aðra manneskju." Kennarar ósáttir „Það er af og frá að hækkun upp á 0,75 prósentustig, eins og launanefnd sveitar- félaga býður, mæti þeirri efnahags- og kjaraþróun sem orðið hefur frá því að við sömdum að loknu verkfalli haustið 2004 og þar til síðastliðið haust,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara. Dauöadæmdur setur lög Jamal Jafaar Mohammed, íraskur þing- maður, var dæmdur til dauða árið 1984 í réttarhöldum vegna sprengjuárása á bandaríska og franska sendiráðið í Kúveit árið 1983. Mohammed situr nú á þingi í samsteypustjórn Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Iraks. Bandarísk yfirvöld saka hann um að ganga erinda íranskra stjórnvalda og að hann styðji við bakið á hryðjuverka- starfsemi uppreisnarmanna úr röðum sjítamúslíma í Irak. Stöðu sinnar vegna sem þingmaður nýtur Mohammed hins vegar friðhelgi. Sérframboö ákveöiö Félagar í Framtíðarlandinu greiða í kvöld atkvæði um tillögu stjórnarinnar um að boðið verði fram til Alþingis í vor. Slíkt framboð tæki helst atkvæði frá stjórn- arandstöðuflokkunum, að mati Einars Mars Þórðarsonar, stjórnmálafræðings hjá Félagsvísindastofnun Háskóla (slands. „Þeir sem koma til með að kjósa svona framboð eru auðvitað þeir sem eru ósáttir við núverandi stöðu mála þannig að flest atkvæðanna tæki framboðið frá stjórnarandstöðuflokkunum," segir Einar Mar og bætir því við að ekki þýði að bjóða eingöngu fram vinstrimenn sem þykist vera til hægri. Bjóða verði upp á hægristef nu til að verða trúverðugt hægriafl, eins og hann orðar það. VEXTIRFRA AÐEINS Miðað við myntkörfu 4, Libor-vextir 29.1.2007. Þannig er má með vexti ... ... að það er hægt að létta greiðslubyrðina I FRJÁLSI

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.