blaðið - 10.02.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 10.02.2007, Blaðsíða 1
29. tölublað 3. árgangur laugardagur 10. febrúar 2007 HELGIN » síða 34 FÓLK » síða 16 VEÐUR » síða 2 ■ TISKA Anna Sigríöur Pálsdóttir safnar ýmsum skemmtilegum og forvitnilegum hlutum sem minna á gamla tima |síða22 ■ FOLK „Sársauki fortíðar kemur oft í veg fyrir að við njótum lífsins í nútið og framtíð,” segir Heiðar Guönason, for- stöðumaður Samhjálpar | síðais FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKFYPIS! £7 Skólar í mótun Ráðstefna á Menntadegi iðnaðarins 15. febrúar nk. Sjá nánari upplýsingar og dagskrá á www.si.is Ráðstefnan er opin en skráning fer fram á vefnum Samtök iðnaðarins Vertu sœl, Vickie Lynn! Hin umdeilda Anna Nicole Smith lést á fimmtu- dagskvöldið en hún fannst meðvitund- arlaus á hótelher- bergi í Flórída. Líkur eru taldar á því að Smith hafi látist af völdum of stórra skammta en krufning mun leiða það í Ijós. Orðlaus skannar ævi Önnu. Olíumálinu áfrýjaö „Niöurstaöan kemur okkur ekkj á óvart og við höfðum alltaf fulla trú á að þetta yrði niðurstaðan þegar við lögðum af stað," segir Gísli Baldur Garðars- son, verjandi Einars Benediktssonar, forstjóra Olís, eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði máli olíuforstjóranna þriggja frá dómi í gær. Helgi Magnús Gunnarsson, sem fór með málið fyrir hönd ákæruvaldsins, segir að úrskurðinum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Hann segir að rannsókn málsins hafi verið að mörgu leyti löskuð og að samkeppnislögin hafi á sínum tíma verið illa smíðuð. „Við höfðum engar forsendur til að koma að málinu fyrr en eftir rannsókn Samkeppnisstofnunar," segir Helgi. Alltaf betur búin „Fólk sem býður sig fram til björg- unarstarfa fær meiri og meiri þjálfun og fræðslu og betri undir- búning til þess," segir Garðar H. Guðjónsson, verkefnisstjóri 112-dagsins. Inga hrærist í listinni Inga Elín Kristinsdóttir hefur verið einn fremsti myndlistarmaður þjóðarinnar í nokkur ár. Hún var aldrei í neinum vafa hvert framtíðarstarf hennar yrði því hún hefur alla tíð verið mjög listræn. „Ég var ákveðin að verða listamaður frá því ég var barn og hef alla tíð teiknað mikið. Ég var 15 ára gömul þegar ég tók inntökuprófið í Myndlista- og handíöaskólann og útskrifaðist þaðan fjórum árum síðar. Ég óttaðist auðvitað óöryggið sem fylgir listgreinum og sumir fengu áfall þegar ég sagði að ég ætlaði að leggja þetta fyrir mig,“ segir Inga Elín. Þar sem öll verk Ingu Elínar eru hand- gerð eru engin tvö verk eins. „Það er mikil vinna á bak við hvern einasta grip," segir hún. Flaug um loftin blá Jóhanna Sigurðardóttir var flug- freyja í sjö ár. „Forráðamenn Loftleiða reyndu að koma því í samninga að flugfreyjur hættu störfum 35 ára, þeir vildu þær bara ungar og sætar.“ Hvessir Skýjað og stöku él við suðausturströndina, en annars yfirleitt léttskýjað. Hvessir heldur og hlýnandi veður. Mikill fögnuður í Gaza Bandarísk og ísraelsk stjórnvöld sýndu varfærnisleg viðbrögð við fréttum af myndun nýrrar þjóðstjórnar Palestínu- manna í gær. ísraelsmenn lýstu hvorki yfir ánægju né óánægju með tíðindin en sögðu að hin nýja ríkisstjórn verði að hafna beitingu ofbeldis, viður- kenna (sraelsríki og virða áður gerða samninga við (sraelsmenn. Talsmaöur Bandaríkjastjórnar sagðist ekki vilja tjá sig um samkomulagið strax. FRETTIR » síða 4 Gróf misbeiting í Byrginu Pétur Hauksson geðlæknir hefur lýst því yfir að líklega hafi tíu konur orðið óléttar eftir starfsmenn Byrgisins á meðan þær voru skjólstæðingar heimilisins. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir mikilvægt að fá allar staðreyndir málsins upp á yfirborðið. „Hér er um að ræða mjög alvarlegar sakargiftir. Ég skora á þær konur sem þarna eiga hlut að máli að gefa sig fram.“ FRETTIR » síða 10 WTM I' . Lv, Ofbeldiö burt úr bænum Yfirvöld í Reykjanesbæ hafa gert drög að samkomulagi við veitingamenn um aðgerðir til að draga úr ofbeldi og fíkni- efnaneyslu á veitingastööum. Meðal annars er lagt til að konur verði ráðnar til dyravörslu og reglur settar um lokunartima. (Reykjanesbæ eru fimm staöir opnir reglulega að næturlagi, allir í Keflavíkurhlutanum. Að sögn Steinþórs Jónssonar bæjarfull- trúa hafa kannanir leitt í Ijós að tiltölu- lega minna er um ofbeldi þegar konur eru við dyravörslu en þegar karlmenn sinna slíku starfi. „Við ætlum að skoða hvort við getum nýtt okkur það. Þar með væri einnig hægt að fylgjast betur með snyrtingum kvenna.“ ORÐLAUS » síða 36

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.