blaðið - 13.02.2007, Blaðsíða 1
Húðsmyrslin frá Villi-
mey fá lífræna vottun
Hressandisafar
í morgunsárið
Valdís mælir
með vítamínum
Hráfæði til betra
heilsufars
Tilbúnir réttir
úrdanska kúrnum
Kraftmiklar kjarnaolíur
fyrir líkamann
AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Netverslunin Sána.is sérhæfir sig
í innflutningi á infrarauðum sána-
klefum, en fyrirtækið hóf starfsemi
sína síðastliðið haust. Sánaklefarnir
eru sérstaklega hentugir til upp-
setningar í heimahúsum og sum-
arbústöðum, en klefarnir krefjast
einungis 220 volta innstungu ólíkt
öðrum gufuklefum. Þá er auðvelt
að setja klefana upp og taka niður
eftir hentugleika.
Aukakostnaður á bak og burt
„Þetta er í raun nýjung á Islandi
og mikill munur á þessum JO-
SEN-klefum okkar og öðrum hefð-
bundnum. Helsti munurinn felst í
því að þetta er algerlega rakalaus
klefi og þar af leiðandi geturðu
verið með hann nánast hvar sem
er án þess að leggja út í kostnað við
loftræstingu eða annað því um líkt,“
segir Daníel Karl Pétursson, eigandi
Sána.is, og bætir við að minna fari
fyrir nýju klefunum en öðrum.
„Flestir hefðbundnir klefar krefj-
ast líka þriggja fasa rafmagns, en
það er yfirleitt ekki á heimilunum
eða í bústaðnum og því þarf að
leggja það sérstaklega. Með infra-
rauðu klefunum er sá aukakostn-
aður á bak og burt.“
Góð áhrif á vöðvabólgu
Daníel segist finna fyrir aukinni
vellíðan með notkun nýju klefanna,
en þar nefnir hann meðal annars
vöðvabólgu, daglegt stress eða al-
menna afslöppun.
„Þetta hentar mjög vel við allri
þreytu og öðrum einkennum. Svo er
annað mikilvægt í þessu, en það er
að notandinn þolir meiri tíma inni
í klefanum. í þessum hefðbundnu
sánaklefum sem notast við raka til
að flytja hitann er algengt að fólk
finni fyrir ertingu í öndunarvegi og
óþægindum og geti því vart verið
lengur en 15-20 mínútur. í þessum
klefum eru engin slík óþægindi,1
segir Daníel. Hann tekur fram að
vöðvar mýkist betur á styttri tíma
og ávinningurinn sé meiri. „Infra-
rauði hitinn nær dýpra inn í líkam-
ann en rakahitinn, sem gerir það að
verkum að þetta hefur fjölbreyttari
jákvæð áhrif fyrir vikið. Áhrifin eru
mikil á gigt, vöðvabólgu og fleira,
auk þess sem húðin hreinsast mjög
vel og maður endurnærist."