blaðið - 14.02.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 14.02.2007, Blaðsíða 1
31. tölublaö 3. árgangur ■ FOLK Fréttamaðurinn G. Pétur Matthíasson er landsþekkt andlit úr fréttatimum RÚV. Hann hverfur nú á næstunni af & skjánum |síðai4 ■ HEIMILI Fá hráefni eru íslenskari en lerki, rekaviður, grásteinn, roð og selskinn Þau notar Þórdis Zoéga húsgagna- hönnuður sem mest I síða3o ^ Þögul mótmæli kennara Komið var saman á Lækjargötu og gengið saman að Austurvelli og Ráðhúsinu miðvikudagur 14. febrúar 2007 1 * í'j r , f |j|' * ik HbMmt í k;' mrjfi • .. Mótmæli grunnskólakennara 1 Reykjavík: Kennurum er misboðið FYLGIRIT UM FRANSKT Á ÍSLANDI Frí gleraugu til 18 ára aldurs prooptik Skeifunni gieraugu Kringlunni 5700 900 Spönginni www.prooptik.is ORÐUH'C » síða 36 VEÐUR » síða 2 Gouda 26% á tilboði Nú fœrðu Gouda 26% í sérmerktum kílóastykkjum með 20% afslœtti í nœstu verslun! ■ Hlé á viðræðum óumflýjanlegt ■ Kennarar íhuga uppsagnir ■ Einhverjir hættir nú þegar Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Grunnskólakennarar í Reykjavík fjölmenntu á þögul mótmæli á Lækjartorgi í gær, að frum- kvæði kennara í Fellaskóla, til að krefjast þess að launakjör þeirra verði leiðrétt í samræmi við ákvæði í kjarasamningi. „Þetta sýnir auð- vitað að kennurum er nóg boðið. Þrátt fyrir að þetta hafi verið á mjög hófstilltan og hógværan hátt þá er mönnum í alvörunni misboðið í stöð- unni“, segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara. Hlé hefur verið gert á viðræðum hjá ríkissátta- semjara en samkvæmt kjarasamningi grunn- skólakennara áttu laun þeirra að hækka um 2,25 prósent um síðustu áramót. Launanefnd sveitarfé- laganna hefur boðið að bæta við 0,75 prósentum til að mæta efnahags- og kjaraþróun á tímabilinu nóvember 2004 til september 2006. „Hléið er óumflýjanlegt", segir Ólafur. „Það er búið að ræða allt sem hægt er að ræða og búið að segja allt í bili sem segja þarf. Það er ekkert hægt að tala endalaust um sama hlutinn aftur.“ Óánægja vegna núverandi ástands ríkti meðal kennara sem tóku þátt í mótmælunum og höfðu margir fengið sig fullsadda á því. „Það mun enda með því að óánægjan brýst út með einhverjum hætti og ég held að mótmælin nú séu bara byrj- unin,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennara- sambands íslands. „Meti sveitarstjórnarmenn ástandið enn þannig að engin ástæða sé til að gera neitt þá mun þetta bara springa framan í þá innan tíðar. Verði ekkert gert er hópur fólks sem ætlar ekkert að vera í þessu starfi meira. Ég veit að það eru þegar einhverjir einstaklingar hættir. Það getur jú enginn þvingað menn til að vera áfram í því starfi sem þeir eru í.“ Sjá einnig síðu 6 Tvífari vikunnar Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík, á sér tvífara. Sú er frönsk leikkona. Helst er það dökka hárið og munnsvipurinn sem gerir þær tvær svo ótrúlega líkar. En hver er sú franska? Hlýnar Hægt hlýndandi veður um land allt. Hægir frá því í gær um landið sunnanvert. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost norðanlands. Sérblað um Valentínusar daginn fylgir með Blaðinu ídag

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.