blaðið - 14.02.2007, Blaðsíða 1
18
Rómantískar leiðir
til að skemmta sér
20
Heilagur
Valentínus
22
Hugað vel að
andlegu hliðinni
23
Dekurfyrir
líkama og sál
Blóm í Blómavali Þaö verður
nóg að gera í Blómavali þessa
vikuna enda mikil blómavika.
Gullmolar
kvenna um ást
24
Hvernig viðheldur
þú rómantíkinni?
AUGLÝSiNGASÍMI AUKABLAÐA
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Blómavika í Blómavali
Ánægjulegur tími
að ættu að vera ærin tækifæri fyrir elsk-
endur að gleðja hver annan þessa vikuna
þar sem Valentínusardagur er í dag og
konudagur á sunnudaginn. Kristinn
Einarsson, framkvæmdastjóri Blómavals, segir
þetta vera einkar skemmtilegan tíma í Blóma-
vali. „Það er mjög skemmtileg stemning sem
myndast báða dagana, bæði hjá starfsfólki og
viðskiptavinum, enda dagar elskenda. Þetta er
því heilmikil blómavika og sú vika þegar mest
er selt af blómum á íslandi," segir Kristinn og
bætir við að Valentínusardagurinn hefur vaxið
mikið undanfarin ár, sérstaklega hjá yngra fólki.
„Það sem er öðruvísi við Valentínusardaginn
er að þá gefa stelpur strákum blóm og strákar
stelpum. Það verður nú samt að viðurkennast að
strákarnir eru aðeins duglegri."
Konudagurinn alltaf vinsæll
Kristinn segir að blóm séu svo vinsæl þessa
viku að íslenskir blómaframleiðendur stíli sér-
staklega inn á þessa daga þannig að uppskeran
sé sem stærst. „Túlípanar eru vinsælastir enda
eru íslendingar orðnir mjög spenntir fyrir túl-
ípönum. Auk þess er rósin alltaf sterk. Vinsæl-
ustu litirnir eru rautt og bleikt en það er mikið
um að fólk kippi með sér tilbúnum vöndum,
sérstaklega þegar mikið er að gera. En það er
KYNNING
vitanlega alltaf eitthvað um að fólk velji sjálft
í vendina." Þrátt fyrir að einstaka sinnum
heyrist neikvæðar raddir um Valentínusar-
daginn segir Kristinn að það sé sífellt minna
um það. „Valentínusardagurinn er náttúrlega
alþjóðlegur dagur og eftir því sem fleiri útlend-
ingar koma til Islands og fleiri Islendingar fara
til útlanda þá styrkist þessi dagur. Fólk sem
hefur verið erlendis á þessum árstíma kannast
við það að allt sé undirlagt af Valentínusardeg-
inum. Samt sem áður er konudagurinn alltaf
jafn vinsæll enda efast ég um að íslensku karl-
mennirnir láti útlenskan dag rúlla yfir gamla
góða konudaginn."