blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 1
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPUU
IFOLK
Rauðhærði rokkarinn Eiríkur Hauksson
er tilbúinn í slaginn í Helsinki í maí og
er þess fullviss að Norðmenn og Svíar
muni styðja hann | síða ie
■ FERÐIR
Karl ísleifsson fór til Nigeríu til að
kynna fyrir heimamönnum rafrænt
miðakerfi fyrir strætisvagna. Honum
var vel tekið í þessu verkefni | síða2s
íslenskir erindrekar á erlendri grund:
Bannað að kaupa kynlíf
■ Jafnréttisstofa krefst nýrra reglna ■ Sjálfsagður hlutur ■ Listi yfir klámfrí hótel
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
Jafnréttisstofa hefur sent utanríkisráðuneytinu
erindi þar sem farið er fram á að settar verði
reglur um bann við kaupum íslenskra erindreka
á kynlifsþjónustu á erlendri grund. Samkvæmt
heimildum Blaðsins er jafnframt verið að íhuga
reglur sem koma í veg fyrir að starfsmenn greiði
fyrir kynlífsrásir í sjónvarpi á gististöðum erlendis.
„Þetta barst okkur fyrir nokkrum dögum og er
til skoðunar hjá ráðuneytinu. 1 starfsmannalögum
kemur fram að menn eigi að gæta þess að
framkoma þeirra sé ekki ósæmileg og að hegðun
samræmist starfinu. Ég held því að það sé bara
sjálfsagður hlutur að setja slíkar reglur,“ segir Pétur
Ásgeirsson, skrifstofustjóri rekstrarskrifstofu
utanrikisráðuneytisins.
Margrét María Sigurðardóttir, framkvæm-
dastjóri Jafnréttisstofu, segir erindið hafa verið sent
bæði utanríkisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti.
Hún segir viðbrögð ráðherranna vera góð. „Ráð-
herrarnir tóku vel í þetta og málið er í farvegi,“ se-
gir Margrét María. „í fyrstu viljum við setja reglur
gegn notkun vændiskvenna. Auðvitað viljum við
reglur gegn klámsjónvarpi líka en það er erfiðara
að finna hótel sem bjóða ekki upp á svoleiðis. Eðli-
lega viljum við ganga alla leið í þessu og vonandi
taka einkafyrirtæki líka upp svona siðareglur."
Pétur segir erindið í skoðun en vill lítið tjá sig um
bann við þvi að gist sé á hótelum sem bjóða upp á
kynlífsrásir. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta,
fagnar því að verið sé að skoða slíkar reglur. Hún
bendir á ýmsar fyrirmyndir erlendis frá.
„Norskir embættismenn og starfsmenn stór-
fyrirtækja hafa tekið þátt í verkefni sem heitir
.Viðskipti með buxurnar upp um sig“. Mér finnst
þetta skref mikilvæg yfirlýsing um til hvers er æt-
last af fólki," segir Guðrún.
„Ég veit að sænskir starfsmenn skipta ekki við
hótel sem bjóða upp á klámþjónustu og þar liggur
fyrir listi um klámfrí hótel. Mér finnst þetta bara
hið besta mál.“
Borað á Heilisheiði Risaborinn Óðinn hefur nýlokið við að bora rúma 2,5 kílómetra fyrir Orkuveitu Reykjavíkur vegna Hellisheiðarvirkjunar. Fyrirtækið Jarðboranir á þennan stærsta bor
landsins og verður hann notaður til að bora fleiri holur á svæðinu. Til stendur aö bora tugi holna eftir að gengið hefur veriö frá leyfum við Skarðsmýrarfjall og Hlíðarfjall.
» síða 34
Heima hjá Helga Rafni
Helgi Rafn Ingvarsson opnar
heimili sitt. Þeir sem leggja
leið sína til Helga ættu að
geta slegið á létta strengi
enda nóg af hljóðfærum á
heimilinu.
VEÐUR
» síða 2
Hlýjast sunnanlands
Austlæg átt, 10-20 m/s,
hvassast allra syðst. Rign
ing öðru hverju suðaust-
anlands, en annars
aö kalia. Hiti 0 til 8 stig
hlýjast sunnantil.
VIÐTAL
Átta síöna
sérblaö um
mat fylgir
meö Blaðinu
ídag
KR©NAN
Renault
öruggari notaöir bílar
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
RENAULT LAGUNA II
Nýskr: 07/2003, 2000cc
5 dyra, Sjálfsklptur, Ijós-
brúnn, Eklnn 44.000 þ.
Verð: 1.820.000
VK*063
RENAULT MEGANE
Nýskr: 04/2003, lSOOcc
4 dyra, SJálfsklptur, Grár,
Ekinn 76.000 þ.
Verð: 1.190.000
RENAULT MEGANE H
Nýskr: 09/2004, lBOOcc
4 dyra, Elmmgíra, Rauður,
Eklnn 37.000 þ.
Verð: 1.760.000
PU-594
RENAULT SCENIC II
Nýskn 11/2003,1600cc
5 dyra, Fimmgíra, Dökkgrár,
Eklnn 55.000 þ.
Verð: 1.630.000
TF-336
bilQlond.is
OUarco
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavík sínii: 533 3500 - Akureyri simi: 462 3504
Egilsstaðir: sími: 471 2954
Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar