blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 1
18
Matreiðslunámskeið
Maður lifandi
19
Fjölbreytni jarðeplanna
20
Fjölbreytt dagskrá
áFoodand Fun
Alma í Nylon hugsar
um hollustuna
} y
Sætindi frá Sollu Eiríks
Saltfiskskaka í japönsku
raspi með grilluðum ananas
í salsa- og karrýolíu
Stökk steikt bleikja með
steinseljurótarmauki
og chiitake-sveppum
Lamb að haetti Dennis Johnston
Moellaux au chocolate súkkulaðimús
Gómsætir og fjöl-
breyttir fiskréttir
Hátíðarmatseðill á Rauðará
Von á verðlaunakokki
1'|7v>RÍKÓSUSll sv 1 - SK-) UC'tR^,|
vel valið!
Á veitingahúsinu Rauðará
stendur mikið til næstu daga en
þangað kemur verðlaunakokkur-
inn Dennis Johnston í tilefni af
matreiðsluhátíðinni Food and
Fun. Að sögn Stefáns Stefánssonar,
matreiðslumeistara Rauðarár,
ríkir mikil stemning í kringum
hátíðina og tilhlökkun meðal
aðstandenda.
„Það er alveg rosalega skemmti-
legt að taka þátt og hátíðin lyftir
okkur öllum á hærra plan. I
rauninni kemst ekkert annað að
þessa dagana. Ég hef fengið til
mín hina ýmsu erlendu kokka í
gegnum árin til þess að elda með
mér á hátíðinni og þetta hafa allt
verið framúrskarandi kokkar og
vel þekktir úti í heimi. Það má
því segja að ekkert sé til sparað á
Food and Fun og allt lagt í þetta.“
Fjögurra rétta matseð-
ill á Food and Fun
Rauðará hefur tekið saman sér-
stakan matseðil sem í boði verður
á Food and Fun. Með aðstoð er-
lenda gestakokksins hefur Stefán
útbúið fjögurra rétta seðil þar sem
áherslan er lögð á íslenskt hráefni
og bragðgóða rétti.
„Sá sem kemur til mín heitir
Dennis Johnston, en hann er eig-
andi eins vinsælasta veitingastað-
arins í Kanada, Fid cusine í Hali-
fax. Hann er talinn i fremstu röð
í Kanada og þekktur fyrir að taka
smávegis japönsk og austurlensk
áhrif inn í vestrænan mat.Hanner
virkilega flinkur, hugmyndaríkur
og stórskemmtilegur kokkur sem
hugar að öllum atriðum," segir
Stefán, sem hefur verið í síma- og
internetsambandi við Dennis til
að undirbúa hátíðina hér heima.
„Við erum að reyna að koma þessu
öllu saman svo að allt sé örugg-
lega tilbúið þegar hann kemur.
Hann lagði áherslu á íslenskt hrá-
efni en mun svo setja eigin áhrif í
matinn og útbúa þannig eitthvað
verulega gott fyrir gesti. Ég get
allavega lofað góðum og vel fram-
settum mat ásamt skemmtilegri
stemningu."
Fljótlegt og gott
speltbrauð
AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net