blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 2
MATUfí - . ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 blaöiö Hár btóöþrýstingur, hjartsiáttartruflanir, andnauö geta stafaö af slæmu mataræði. sérmerkt þér! Gullkistan-Frakkastíg 10 - Sími: 551 -3160. Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt tilað klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfur- plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. SENDUM í PÓSTKRÖFU. Sérfræðingar i saltfíski Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl. Fyrir verslanir: Til suðu: saltfiskbitar blandaðir gellur gollaraþunnildi Til steikingar: saltfiskbitar blandaðir saltfiskkurl saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) gellur Fyrir veitingahús - hótel - mötuneytí: saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar saltfiskkurl Ekta Sœlgætifiskur úrsjónum Simi: 466 1016 ektafiskur@emax.is i 1 I TlLAlArZA 1 AllTafcÍGer i 1 NýjZRstir i i Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem: ~~ ýsuhnakka rækjur þorskhnakka steinbltskinnar og bita Ééáé*i Matreiðslunámskeið Maður lifandi Grunnur að góðu mataræði án fyrirhafnar Matstofan Maður lifandi hefur farið af stað með ný matreiðslunám- skeið þar sem kennd eru undirstöðu- atriði heilsufæðis og góðs mataræðis yfirhöfuð. Lögð er áhersla á að kenna þátttakendum hvernig unnt er að matreiða hollan, næringarríkan og góðan mat án mikillar fyrirhafnar og veittar eru uppskriftir ásamt ráð- leggingum um hollt hráefni. „Þetta eru alveg ofboðslega skemmtileg námskeið og ég hvet alla til að koma. Þetta er kannski svolítið stílað inn á þá sem eru að stíga fyrstu skrefin í lífsstílsbreyt- ingum og vilja komast í kynni við þessi grunnatriði sem skipta máli,“ segir Helga Mogensen, einn umsjón- armanna, en auk hennar standa að námskeiðunum Andrés Jóakimsson, Auður Konráðsdóttir og Patricia Brizuela sem öll starfa sem kokkar hjá Maður lifandi. Námskeið fyriralla Aðspurð segir Helga alla eiga er- indi á námskeiðin, bæði þá sem hafa nú þegar tekið heilsufarið föstum tökum og eins þá sem hafa áhuga á að breyta um matarvenjur og til- einka sér heilbrigðari lífsmáta. „Þetta er í rauninni fyrir alla sem vilja bæta sig á einn eða annan hátt. Mest snýst þetta um grænmetisfæði og slíka matseld en við förum líka í kjöt, fisk og annað slíkt. Þetta getur því hentað flestum sem yfirhöfuð vilja borða hollan mat,“ segir Helga, en hún er að eigin sögn ánægð með heilsufarsvakningu landsmanna. „Það er mjög gaman að sjá þessa sí- vaxandi breytingu í jákvæða átt. Bæði konur og karlar eru orðin mun meðvitaðri um mikilvægi heilbrigðs mataræðis og sífellt fleiri sækja sér fræðslu um þessi efni. Það er auð- vitað ekkert nema jákvætt." Aðgengi að fræðsluerindum mikilvægt Aðstandendur Maður lifandi hafa verið ötulir í námskeiðahaldi undanfarin misseri og boðið úrval Kennir grunninn að góðu mataræði Helga Mogensen mun ásamt öðrum kokkum hjá Maður lifandi fara ísaum- ana á heilbrigðu mataræði. fjölbreyttra fræðsluerinda með fagmönnum á hverju sviði. Helga segir mikilvægt að fólk hafi gott að- gengi að fræðandi erindum og nám- skeiðum, en þannig má vekja meiri áhuga fólks á heilsunni almennt. „Við viljum fá sem breiðasta flóru inn og reynum því að bjóða upp á fjölbreytt námskeið svo að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Þetta snýst svolítið um að almenningur geti mögulega leitað sér upplýsinga og haft möguleika á góðri og ítarlegri fræðslu. Við erum yfirleitt með fræðsluerindi á þriðjudögum, mismunandi hverju sinni, og síðan matreiðslunámskeiðin á fimmtudögum. Þetta er allt liður í því að hjálpa fólki að breyta um lífsstíl og svara þeim kröfum sem almenn- ingur gerir í dag til slikrar fræðslu." Bæði konur og karlar eru orðin mun meðvitaðri um mikilvægi heilbrigðs mata- ræðis og sífellt fleiri sækja sér fræðslu um þessi efni. Næsta matreiðslunámskeið Maður lifandi verður haldið í. mars næstkomandi. Vekja má athygli á fyrirlestri Helga Valdimarssonar prófessors sem haldinn verður í kvöld í fræðslusal Maður lifandi í Borgartúni. Þar mun Helgi fjalla um lífsstíl, mataræði og óæskilega röskun á örveruflóru líkamans. ■ W Grænt og gómsætt Grænmeti er eitthvað sem við eigum öll að innbyrða á degi hverjum. Með reglulegri neyslu grænmetis komum við betra lagi á meltinguna, fáum ógrynni nauð- synlegra næringarefna og upp- skerum frísklegra útlit þegar upp er staðið. Grænmeti hvers konar er gott sem léttur millibiti á milli mál- tíða eða sem meðlæti með hádegis- og kvöldverðinum. Best er auðvitað að borða grænmetið alveg ferskt en einnig má steikja það eða grilla og hafa með kjöti eða fisk. Að einsetja sér nokkrar græn- metistegundir á dag er ávísun á betri líðan og hressari líkama. Þá má ekki gleyma því hversu fallegt grænmetið getur verið á borð- inu og sett skemmtilegan svip á heildarrammann. Fljótlegar súpur frá Knorr Komnar eru í verslanir nýjar og fljótlegar súpur frá Knorr sem til- búnar eru til neyslu. Súpurnar eru tilvaldar sem forréttur eða sem ljúffengur aðalréttur ásamt góðu þrauði. Eingöngu þarf að hita súp- urnar í potti í nokkrar mínútur eða skella í örbylgjuofninn. Þá má bragðbæta súpurnar með því að nota sýrðan rjóma, soðin egg eða annað tilfallandi. Um er að ræða fjórar tegundir KYNNING súpna; italska tómatsúpu með masc- arpone-rjómaosti og sólþurrkuðum tómötum, karrísúpu með kjúklingi og kóríander, tómatsúpu með papr- iku og basilíku og austurlenska súpu með baunaspírum og bambus. Úr- valið er því fjölbreytt og veí hægt að finna eitthvað við hvers manns hæfi. gALlAN

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.