blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 3
blaöið ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007
MATUR -IB
Sætar kartöflur eru góöar bæði maukaðar og bakaðar.
Fjölbreytni jarðeplanna
Kartöflur þykja hið besta meðlæti
og jafnfram það meðlæti sem hvað al-
gengast er í borðhaldinu. Með fáein
jarðepli í farteskinu má útbúa hinar
ýmsu útgáfur að góðu meðlæti, allt
frá auðveldum kartöfluréttum upp
í matarmeiri kartöflurétti með fyll-
ingu eða ofnbakaða rétti með rjóma
og öllu tilheyrandi. Það er því ekki
úr vegi að gefa kartöfluuppskriftum
gaum og prófa sig áfram í átt að
hinu fullkomna meðlæti.
Meðfylgjandi eru hugmyndir að
góðum uppskriftum þar sem kart-
öflurnar ráða ríkjum. Réttirnir eru
tilvaldir með kjöti, fiski eða einir og
sér ásamt matarmiklu salati.
Sætar kartöflur
• Sætar kartöflur að vild
• Olía eftir smekk
• 1/2 -1 tsk sjávarsalt
• Piparaðvild
• Kóríander
• Önnur krydd eftir smekk
Skerið sætu kartöflurnar í litla bita
og setjið í eldfast mót. Smyrjið bit-
ana vel með olíu og stráið svo kór-
íander, pipar og salti á kartöflurnar
eftir smekk. Grillið Í10-15 mínútur,
eða þangað til kartöflubitarnir eru
orðnir mjúkir.
Góðar með kjúkling, kjöti og fisk.
Gratíneraðar kartöflur
• 1,5 kg kartöflur
• 30 g smjör
• 400 ml mjólk
• 200 ml rjómi
• 1 stk. hvítlaukur, saxaður eða
kraminn (má sleppa)
• Svartur pipar og múskat
• Mozzarellaostur að vild
• V4 tsk. paprikuduft
2 tsk. grófmalaður pipar
Hitið ofninn í 190°C
og smyrjið mót með
smjöri. Blandið
saman mjólk, rjóma,
hvítlauk, salti og
pipar i skál. Skrælið
og sneiðið kartöflurnar í
formið og hellið mjólkurblöndunni
yfir. Yfir þetta er settur ostur að
vild, mozzarella eða önnur tegund.
Setjið í miðjan ofn og eldið í um
það bil 1 klukkustund,
eða þar til kart-
öflurnar eru
mjúkar.
Chili-kartöflur
• 12 kartöflur
• 3 msk. olía
• % tsk. chiliduft
Kartöflur með kryddrjóma
• Meðalstórar kartöflur
• 1 dós sýrður rjómi
• 14 tsk. salt
• 'A tsk. svartur pipar
• 1 1/í> msk. fersk steinselja
Pakkið kartöflunum í
álpappír og bakið í
eina klukkustund
við 220°C. Opnið
svo kartöflurnar
í kross fyrir miðju
og takið í sundur til
hálfs. Blandið saman
kryddrjóma, steinselju, salti
og pipar og setjið síðan ofan í
kartöfluna. Til gamans má setja
rauðlauk, sveppi, pepperoni, ólífur
eða annað með.
Þvoið og skrælið kartöflurnar og
forsjóðið í kortér áður en þær
eru lagðar í eldfast mót. Blandið
saman olíu og kryddi og þenslið
síðan kartöflurnar með blöndunni
Setjið kartöflurnar í 200°C heitan
ofn og steikið í ca.15-20 mínútur,
eða þar til þær eru komnar með
stökka skorpu.
FUNHEITAR EÐA SVALAR í veísCuna