blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 4
+ • MATUR ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 blaöiö Stór htuti barna og ungmenna á erfitt meö aö fullnægja joöþörf sinni vegna iítillar fiskneyslu. Bakaðu listaverk fyrir ferminguna með lítilli fyrirhöfn! Brautarholt 22 • 105 Rvk. • Sími 552 2258 • www.ahl.is Food and Fun hefst á morgun „Það má kalla þetta matarfjörið mikla í Reykjavík. Ég lofa mikilli stemningu í vikunni og get full- yrt að hátíðin stendur svo sannar- lega undir nafni sem sannkölluð matar- og skemmtihátíð,“ segir Siggi Hall, matreiðslumaður og einn aðstandenda Food and Fun- hátíðarinnar sem nú stendur yfir í Reykjavíkurborg. Að sögn Sigga stendur mikið til hjá matgæðingum landsins og hingað streyma útlendingar í hundr- aðatali til þess að berja augum íslenska matargerð og kynnast stefnum og straumum íslendinga hvað matreiðsluna varðar. „Food and Fun-hátíðin er orðin fastur liður á almanaki íslenska þjóðlífsins og heyrir til stórhátíðum eins og 17. júni, gamlárskvöldi, verslunarmannahelginni og fleiri hátíðum sem við höfum haldið. Hingað munu koma um 120 blaða- menn frá stærstu matardagblöðum heims og þar fyrir utan koma a.m.k. 5 sjónvarpsstöðvar með sitt tökulið.“ Hátíðarmatseðlar á borðum Food and Fun er í ár haldin í fimmta skipti og stendur yfir dag- ana 21.-25. febrúar. Þrettán íslenskir veitingastaðir taka þátt í herleg- heitunum ásamt því sem útskrift- arnemar í Hótel- og veitingaskóla fslands leggja hátíðinni lið. Að sögn Sigga fá veitingastaðirnir til sín erlenda kokka sem munu með aðstoð yfirkokkanna matreiða sér- staka hátíðarmatseðla fyrir gesti og gangandi. „Þeir veitingastaðir sem taka þátt munu svo bjóða sérstaka Food and Fun-matseðla, en þeir samanstanda af 4-5 réttum á 5.900 krónur. Þessi veitingahús riðu á vaðið varðandi lækkuninameð nýjavirðisaukaþrep- inu, enda ættu veitingahús almennt að lækka verðlagið á næstunni," segir Siggi og bætir við að gesta- kokkarnir séu allir miklir reynslu- boltar á sviði matreiðslunnar og vel kunnir á heimsvísu. „Þátttaka Islands felst svo í veitingahúsunum sem taka þátt og yfirkokkum þeirra ásamt úrskriftarnemunum. Þetta er svona skemmtilegt samstarf sem vekur athygli um heim allan.“ Matargerð á heimsmælikvarða Siggi Hall segir hátíðina mik- ilvæga fyrir land og þjóð. Hann bendir á að íslensk matreiðsla sé mjög framarlega á heimsvísu og því vel við hæfi að halda alþjóðlega há- tíð sem þessa í samstarfi við erlenda aðila. „ísland er land sem framleiðir matvæli fyrst og fremst auk þess sem við löðum að okkur ferða- menn alls staðar að úr heiminum og stundum mikinn ferðamanna- iðnað. Hátíð sem þessi sameinar þetta tvennt á skemmtilegan hátt og er virkilega góð landkynning," segir Siggi, en hann telur íslend- inga þurfa að gera sér betur grein fyrir eigin kostum hvað matargerð snertir. „Við segjum alltaf bara að við séum góð á heimsmælikvarða, en það eru ekki allir sem virkilega gera sér grein fyrir því. Það eiga ekki að vera bara útlendingar sem segja okkur standa framarlega, heldur þurfum við sjálf að gera okkur grein fyrir því.“ Matreiðslumaður ársins valinn Hápunktur Food and Fun-há- tíðarinnar verður næstkomandi laugardag þegar fram fer mat- reiðslukeppni í Hafnarhúsinu. Þar munu etja kappi erlendir kokkar og munu heimsþekktir dómarar meta frammistöðu keppenda. „Dómararnir eru heimsþekktir stórkokkar sem hafa verið áber- andi í Ameríku og Evrópu. Þeir eru hvorki meira né minna en 10 talsins og munu þeir velja sigurveg- ara. Þetta er keppni sem enginn á að láta fram hjá sér fara. Hún hefst klukkan 12:00 á hádegi og lýkur með verðlaunaafhendingu klukkan 17:00. Þess má líka geta að keppnin er öllum opin og frítt inn.“ Að lokum beinir Siggi þeim til- mælum til landsmanna að lyfta sér upp í skammdeginu og taka þátt í herlegheitunum. „Tilgang- urinn er annars vegar sá að vekja athygli á íslandi sem matarkistu og gæðum íslenskrar matargerðar- listar, og hins vegar að lyfta sér upp í skammdeginu og gera eitthvað skemmtilegt. Það verða allir veit- ingastaðir fullir, mikið um að vera og allir í Food and Fun-matseðlum á veitingastöðunum. Þetta verður allavega ekkert slor.“ Frekari upplýsingar um Food and Fun og þá veitingastaði sem taka þátt má finna á heimasíðunni www. foodandfun.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.