blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 5

blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 5
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 m Matarfíkn einkennist af þráhyggju gagnvart mat og fólk missir stjórn á magninu sem Uppáhaldsmatur Ölmu í Nylott Speltpitsurnar vi um pessar mu gKí'ft \ | Hollustan í fyrirrúmi Alma reynir eftir fremsta megni að breyta upp- skriftum til þess að gera réttina sem hollasta. ''• » „Ég hef verið að þróa mikið hinar ýmsu pitsuuppskriftir úr spelti og er nú komin með eina sem er í sér- stöku uppáhaldisegir Alma Guð- mundsdóttir, ein söngkona stúlkna- sveitarinnar Nylon, aðspurð um skemmtilegar uppskriftir sem hún á í handraðanum. Alma segist baka pitsu að meðal- tali einu sinni í viku og prófar hún iðulega nýjar tegundir, allt eftir hent- ugleika hverju sinni. „Eftir að ég fékk mér sérstakan pitsuofn hef ég verið voða dugleg við að baka pítsur með hinu ogþessu. Uppskriftin sem er í uppáhaldi þessa dagana á rætur að rekja til matreiðsluþáttar sem ég sá í Bretlandi.Þetta er sérstaklega fljótleg uppskrift og virkilega góð.“ Nostrar í eldhúsinu Að sögn Ölmu hefur hún gaman af allri matargerð og nostri í eld- húsinu. Hún segist baka mikið, en yfirleitt breytir hún uppskriftunum á þá leið að gera matinn hollari og næringarríkari. „Ég hef tilhneigingu til að gera alltaf réttina aðeins hollari og því breyti ég eiginlega alltaf einhverju í uppskriftunum. Þetta er eiginlega bara ákveðið mottó hjá mér, enda kýs ég að vera frémur holl í mata- ræðinu,“ segir Alma, sem kemst yf- irleitt í raun um að hollar útgáfur uppskrifta eru engu síðri. „Mér finnst skemmtilegt að prófa að gera uppskriftirnar aðeins hollari og sjá hvort það komi ekki jafnvel út og upprunalega útgáfan. Þetta er bara eitthvað sem ég hef tileinkað mér og er mjög ánægð með.“ Alma segist vera komin upp á lagið með speltmjöl í stað hvita hveitisins. í pítsurnar notar hún alltaf spelt auk þess sem hún sniðgengur hvítt hveiti yfirhöfuð i bakstri. „Mér finnst speltið bara betra og það er auðvitað mun hollara. 1 pitsurnar nota ég alltaf finmalað spelt, enda er það kannski aðeins meira pitsulegt en það grófa.“ Sleppir unnum mjólkur- og kjötvörum Spurð um almennar áherslur í matargerð segist Alma hugsa mikið um það sem hún setur ofan í sig. Hún reynir að komast hjá óhollust- unni sem frekast er unnt og borðar næringarríkan og fjölbreyttan mat. „Fyrst og fremst hugsa ég um mata- ræðið vegna betri heilsu þó svo að vissulega séu margir að hugsa um línurnar. Ég finn bara hvað mér líður vel þegar mataræðið er í góðu lagi og heilsan verður öll betri,“ segir Alma. „Þetta snýst ekki endi- lega um einhverjar línur, heldur líð- anina yfirhöfuð." Alma segist hafa breytt ýmsu í mataræðinu síðustu misserin. „Ég til dæmis sleppi unnum mjólkur- vörum, hveiti og unnum kjötvörum og reyni að hafa sem mest ferskt. Margir átta sig ekki á því að þegar við borðum mikið unnin mat er fæðan orðin næringarsnauðari og í staðinn erum við alltaf að bæta það upp með því að narta í eitthvert rusl til að seðja hungrið. Það er mun betra að fá sér næringarríkan mat og fullan af vítamínum sem maður þarf á að halda.“ Sætindin í hófi Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvort heilbrigður lífsstíll Ölmu veiti svigrúm fyrir sætindum og annarri óhollustu. Hún kveðst snið- ganga sætindin eftir fremsta megni en viðurkennir þó að stundum sé brugðið út af vananum. „Það kemur auðvitað fyrir að maður leyfir sér eitthvað smá. Sætindaþörfin er reyndar minn helsti veikleiki, sem getur auð- vitað verið svolítið erfitt þegar maður er að reyna að halda í við sig. Stundum reyni ég að slá á þörf- ina með því að fá mér döðlur eða eitthvað annað, en svo kemur auð- vitað fyrir að ég fæ mér smá sætt,“ segir hún og bætir við að sojaís sé til dæmis góður á sykurþörfina. .Sojaísinn er mjög góður auk þess sem ég baka stundum kökur í holl- ari kantinum en samt með smá súkkulaði. Svo er dökkt súkkulaði með kaffinu alltaf mjög gott. Þetta er allt saman gott í hófi.“ Pitsuuppskrift Ölmu: Pitsubotn • 125 g spelt (ég nota fínmalað en það er alveg frjálst) • 2 tsk. vínsteinslyftiduft • 1 tsk. salt • 100 ml ylvolgt vatn • 1 msk. olía (má sleppa, en best að nota vandaða ólífuolíu) Purrefnunum er blandað saman í skál, olían sett út í vatnið og öllu blandað saman. Deigið hnoðað og flatt út. (Fer eftir smekk hvað fólk vill hafa deigið þykkt. Ég vil heldur hafa það í þynnri kantinum). Sósa Yfirleitt kaupi ég tilbúna lífræna pitsusósu. Ef ég á hana ekki til blanda ég bara eigin sósu, t.d úr niðursoðnum tómötum, tómatp- úrru, tómat-pestó og oregano- kryddi og smakka hana til. Álegg: • Ananas í bitum (mæli með Del Monte) • Ferskur mozzarella-ostur (rifinn í grófa bita) • Fersk basilíka (nokkrum blöðum dreift á pitsuna eftir smekk) • Einnig er mjög gott að setja Bónda Brie á pitsuna ef fólk er hrifið af ostum. Borið fram með fersku rucola-salati Ath: Til að ganga úr skugga um að botninn sé jafnbakaðu í gegn getur verið gott að forbaka botninn áður en áleggið er sett á. Það fer þó allt eftir ofnum. na na thai :;V Skeifan 4, á móti BT 0Q ÍTXLSKUK MXTUK PASTA 9, Penne Napoli 990,- Penne with tomatosauce and parmesancheese 10, Penne Pollo 1390,- Penne with cream, chickenbreast, mushrooms 11, Tagliatelle 1590,- Tagliatelle with shrimps, fresh tomatos and cream 12, Tortellini 1390,- filled pasta with sauce of cream, ham, mushrooms 13, Spaghetti bolognese 1390.- Spaghetti with tomatosauce, meat and parmesan-cheese 14, Spaghetti alla Carbonara 1290.- Spaghetti with bacon, black pepper, parmesancheese and egg PIZZA 25, Pizza Margherita 990.- Pizza Margherita with tomatosauce and mozzarellacheese, basil 1190.- 26, Pizza Salame Pizza with Pepperoni 27, Pizza prosciutto e funghi 1290,- Pizza with ham and mushrooms 28, Pizza Prosciutto e Salame 1390,- Pizza with Ham and Pepperoni 29, Pizza Salame e Funghi 1290,- Pizza with Pepperoni and Mushrooms 30, Pizza Salame, Funghi e Prosciutto 1490,- Pizza with Pepperoni, Mushrooms and Ham 31, Pizza Frutti di mare 2190.- Pizza with Seafood-Mix 32, Pizza Hawai 1290.- Pizza with mozzarellacheese, pinapple and ham 33, Pizza Vegetables 1190,- Pizza with mixed vegetables Tælenskur matur Matseðill á: www.thaimatur.com www.btnet.is/nanathai r9jald '1818 Heimilisvænir og qómsætir FULLELDAÐIR OG TILBÚNIR ÁPÖNNUNA EÐA í OFNINN! matfiskur - Lostæti með lítilli fyrirhöfn 800 5555

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.