blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 6
MATUR ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 blaöiö Ávaxta- og grænmetisneysla hér á landi er með því lægsta sem gerist í Evrópu. Sœtindifrá Sollu Sykurlausar kökur og ábætisréttir Eftirréttir hafa löngum þótt skemmtileg viðbót við máltíðirnar, enda góð hressing eftir annars ágætan bita. Eftirréttir þurfa þó alls ekki að vera löðrandi í sykri eða annarri óhollustu. Þvert á móti má útbúa hina ýmsu rétti sem unnir eru úr góðum hráefnum, án þess að sykur og önnur aðskotaefni komi við sögu. Matgæðingurinn og hollustugúrú- inn Sólveig Eiríksdóttir veit hvað hún syngur þegar kemur að hollum ábætisréttum, en hún féllst á að gefa blaðinu nokkrar uppskriftir. Sólveig segist ekki kunna að baka neinar kökur sem innihalda sykur, en hún hefur í 25 ár eingöngu bakað .sykurlausar kökur og ábætisrétti. ,Eg nota mikið þurrkaða ávexti, rót- argrænmeti, karob, krydd og sykur- lausar sultur með góðum árangri. Enda þekki ég ekkert annað. Svo virðist það alltaf koma fólki á óvart hversu sætar og góðar kökurnar eru þrátt fyrir að vera ekki unnar úr sykri. Þetta er nefnilega alls ekki síðra - bara betra ef eitthvað er!“ Gómsæt berjakaka ■ 125 g carobella ■ 1 Vi dl heslihnetur ■ 1 'A dl brasilíuhnetur ■ 2 - 2 lA dl hrísgrjónamjólk ■ 10 döðlur ■ 'A dl ólífuolía ■ 1 tsk. vanilluduft ■ íegg ■ 1/12 tsk. vínsteinslyftiduft ■ 4 dl spelt Ofaná: ■ 3-4 msk sykurlaus berjasulta ■ 450 g fersk eða frosin ber ■ 1banani Hitið ofninn í 220°C. Bræðið barobella eða suðusúkkulaði í skál yfir vatnsbaði. Malið hneturnar og setjið þær út í ásamt 2 dl af mjólk, síðan mjög fínt söxuðum döðlum, ólífuolíu, vanillu, eggi og lyftidufti og hrærið saman. Það má sleppa egg- inu og setja í staðinn 1 tsk. af lyfti- dufti. Síðast hrærið þið spelt saman við og athugið að deigið á að vera eins og þykkur grautur. Ef ykkur finnst það of þurrt þá bætið þið smá mjólk út í. Setjið deigið í smurt hringlaga form og bakið við 220°C í 15-20 mínútur og látið kökuna síðan kólna í forminu. Veljið sultu og ber af sömu tegund, t.d hindber, bláber, jarðarber eða berjablöndu. Hitið sultuna í potti og setjið berin út í í um 1 mínútu. Setjið þetta síðan í skál, afhýðið bananann, skerið í þunnar sneiðar og blandið saman við. Þið getið líka smurt sult- unni beint á kökubotninn og sett fersku berin ofan á kökuna. Setjið berja- og bananablönduna ofan á kökubotninn og berið fram. Kakan er góð með sojarjóma, smá þeyttum rjóma eða sojaís. Gulrótarkaka S 8 dl gulrætur, um 8 stk. ■ 2 Vi dl hnetur ■ 2 dl kókosmjöl ■ 2 dl haframjöl eða malaðar möndlur ■ 1 msk. kanill ■ 1 tsk. vanilluduft eða dropar ■ 500 g döðlur Krem: I 400 g hreinn rjómaostur ■ 100 g döðlur ■ 100 g apríkósur Skerið döðlurnar smátt. Ef þær eru mjög harðar er gott að leggja þær að- eins í bleyti. Rífið niður gulræturnar, malið hneturnar og ristið kókos- mjölið á pönnu. Blandið öllu saman með höndunum eða setjið í hrærivél og hrærið saman. Smyrjið tertuform og bakið við 200°C í 30-35 mín. Krem: Leggið döðlur og aprík- ósur í bleyti í sjóðandi vatn í um 10 mín. Hellið vatninu af og maukið ávextina í matvinnsluvél ásamt rjómaostinum. Smyrjið kreminu á kökuna. Athugið að í staðinn fyrir rjómaostakremið má skreyta kök- una með fullt af ferskum ávöxtum og e.t.v. ávaxtasultu. Einfaldur eplaábætir . 2-3 stk. græn epli ■ 1 msk. ólífuolía ■ 10 döðlur ■ 1 msk. kanill ■ 2-3 msk. rúsínur ■ 1 peli sojarjómi ■ smá vanilluduft eða dropar Skerið eplin í fernt, kjarnhreinsið og skerið í þunnar sneiðar. Saxið döðlurnar mjög smátt. Athugið að í staðinn fyrir sojarjóma má nota ab- mjólk sem búið er að sía í kaffifilter í um eina klukkustund. Hitið olíu á pönnu og bætið döðlum og kanil út á og látið malla í smástund. Bætið eplasneiðunum og rúsínunum út á og látið léttmýkjast í um 5 mín. Hrærið saman sojarjóma og vanillu. Berið eplin fram í smart glösum eða ábætisskálum og setjið smáslettu af vanilluhrærunni út á. Ef einhvern langar frekar í vanillu-sojaís þá er það í góðu lagi. Konfektkúlur ■ 100 g kókosmjöl B 100 g hnetur, t.d. kasjú- eða heslihnetur ■ 30 g hreint kakóduft ■ 200 g lífrænar döðlur ■ 1 msk. kókosolía (kaldpressuð) - má sleppa og nota 2 msk vatn Allt sett í matvinnsluvél og maukað þar til þetta hangir vel saman. Mótið litlar kúlur sem gott er að velta upp úr kakódufti. Einnig er hægt að setja þetta í hringlaga form og nota sem köku- botn. Hann þarf ekki að baka, bara frysta. Það má baka hann, en hann er þá bakaður við 200° C í um 6-8 mín. Síðan er kökubotn- inn skreyttur með fullt af ferskum ávöxtum Einnig má nota þetta deig til að baka litla orku-smákökur, en þá eru kúlurnar flattar út og bakaðar í 6-8 mín við 200°C. Uppskriftin er án viðbætts syk- urs, glútenlaus, sojalaus og laus við mjólkurvörur. halldora@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.