blaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 8
MATUR
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 blaðið
Ávaxta- og grænmetisneysla hér á landi er meö því lægsta sem gerist i Evrópu.
Fljótlegt og gott speltbrauð
Speltmjöl er að verða sífellt vin-
sælla í matseld og æ fleiri sniðganga
gamla góða hveitið í uppskriftum
sínum. Vinsældir speltkornsins
koma reyndar ekkert sérstaklega
á óvart, sérstaklega í ljósi þess að
kornið er mjög bragðmilt og auð-
meltanlegt, auk þess sem það má
nota i allar uppskriftir í stað hveitis
og heilhveitis.
í meðfylgjandi uppskrift er stuðst
við fínmalað spelt, en slíkt mjöl er
núna fáanlegt í flestum matvöru-
verslunum sem og heilsubúðum.
Það skemmtilega við uppskriftina
er að brauðið ber þess ekki merki
að hefðbundna hveitið vanti og
enginn finnur muninn! Þvert á
móti er brauðið einfaldlega holl-
ara og gómsætara auk þess að vera
auðmeltanlegra.
• 5 bollar fínt spelt
• 1 bolli sólblómafræ
•1-2 bollar sjóðandi vatn
• 1-1/2 bolli ab-mjólk eða
venjuleg mjólk
• 3 tsk vfnsteinslyftiduft
• 1 tsk sjávarsalt
Hráefnunum er blandað saman í
skál og vökvinn hrærður saman við.
Deigið er hnoðað í stutta stund og
síðan sett í eldfast smurt mót. Stillið
ofninn á 200°C og bakið í um það
bil 25 mínútur, eða þar til brauðið
er orðið ljósbrúnt. Stingið litlum
prjóni í brauðið til þess að athuga
hvort innihaldið sé ekki örugglega
nægjanlega bakað.
Uppskriftin er fljótleg og góð
með hvaða áleggi sem er. Einnig
er brauðið gott sem súpubrauð
eða samlokubrauð í skólann. Þeir
sem vilja brydda upp á einhverju
nýju geta bætt sólþurrkuðum
tómötum, sesamfræjum, óreganó
eða öðrum kryddjurtum við. Þá
er gott að strá haframjöli ofan á
brauðið áður en það fer í ofninn
svo það fái fallegra útlit.
Holi fita í
kókosolíu
Kókosolíur hafa heldur betur
rutt sér til rúms og eru nú með
vinsælli olíum hjá þeim sem
stunda heilbrigt líferni. Kókos-
fitan er sérlega holl fyrir líkam-
ann, auk þess sem sumum þykir
gott að þera hana á líkamann
eða jafnvel í hárið. í matargerð
hentar kókosolían mjög vel, en
hana er ýmist hægt að fá í föstu
eða fljótandi formi og má því
styðjast við hana í hverskyns
matseld. Auk þess að vera góð
á þragðið virkar kókosolían
örvandi á brennsluna, eykur upp-
töku Omega 3 fitusýra og hefur
jákvæð áhrif á húðina svo fátt
eitt sé nefnt.
Þeir sem hafa ekki ennþá
prófað þessa tegund olíu ættu
án efa að gera sér ferð í næstu
verslun og prófa olíuna við
næstu matargerð.
Meiri fisk
á borðum
Lýðheilsustöð lét á dögunum
útbúa bækling með 20 fiskupp-
skriftum sem sendur verður á
hvert heimili í landinu. Þetta
mun vera liður í því að stuðla að
aukinni fiskneyslu landans, en
fiskneysla hefur farið minnk-
andi til muna síðustu árin. Með
þæklingnum eru fólk hvatt til
aö borða fisk að minnsta kosti
tvisvar í viku og þar er að finna,
auk uppskriftanna, áþendingar
um hvernig velja eigi ferskan
og góðan fisk. Fiskréttirnir í bæk-
lingnum eru umfram allt hollir,
en einnig fjölbreyttir og skemmti-
legir réttir sem nota má bæði
hversdags og í veislum.
landeunaÍTur Reykjavlkurborg
Food and Fun er samstarfsverkefni lcelandair, íslensks landbúnaðar og Reykjavíkurborgar.
Það verður matreitt og glaðst - það lifnar yfir
mannlífinu og matarilmur svífur yfir borginni.
NU ER KOMIÐ AÐ ÞVI!
Food and Fun
matarhátíðin
hefst 21. febrúar
í Reykjavík.
Þrettán alþjóðlegir stórmatreiðslumeistarar
heimsækja jafnmarga veitingastaði í
höfuðborginni, útbúa og framreiða gómsæta 4
rétta sælkeramatseðla á aðeins 5.900 krónur.
Missið ekki af þessari miklu matarviku sem endar
á keppni á milti erlendu kokkanna í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu, laugardaginn 24.
febrúarkt. 13.00-17.00
Eftirtaldir Apótek
veitingastaðir Domo
takaþátt: EinarBen
Silfur, Hótel Borg
Hótel Holt
Grillið,
La Primavera
Perlan
Rauðará
Salt
Sjávarkjallarinn
Siggi HaU Restaurant, Hótel Óöinsvé
Vox, Hótel Nordica.
Landsbankinn
Bakhjarl Food and Fun hátíðarinnar
HAGKAUP VISA 6gÍL*
Allar nánari upplýsingar á: WWW.foodandfun.is
Food and Fun er skipulagt og framleitt af Main Course ehf.