blaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 1
SPURÐU FASTEIGNASALANN... ...HVORT ÞAÐ SÉU VELFAC GLUGGAR í DRAUMAÍBÚÐINNI VELFAC Því það skiptir máii. formaco Formaco • Fossaleynir 8*112 Reykjavík • Sími: 577 2050 • Fax: 577 2055 • www.formaco.is 18 Heimsins hæstu hús og kirkjur 20 Listasmiðurinn með barnshjartað 22 Fyrsta hús sögunnar 23 Eitt mest selda parket í heimi Einingahús eftir séróskum 24 Nettar glerlausnir AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Glæsileg einbýlishús frá Nýtt Hús í Reykja- nesbæ setja svip sinn á mörg þeirra hverfa sem eru að rísa um þessar mundir. Svanberg Hreinsson markaðsstjóri segir að þrátt fyrir að húsin frá Nýtt Hús séu einingahús þýði það ekki að þau séu öll eins í útliti, Nýtt Hús taki fúslega á móti öllum séróskum og lagi hvert hús að kröfum væntanlegra kaupenda. Nýtt Hús reisir hús sem eru byggð á stöðluðum einingum en það tryggir fólk gegn því óvænta. Á hönnunarstigi eininganna hafa allir agnúar verið lagaðir og því eru viðskiptavinir öruggari með einingahús en hefðbundnar byggingar. Þetta vita stórir verktakar og þvi ekki skritið að fjöldi fyr- irtækja sem eru að byggja upp heilu hverfin velji Nýtt Hús til samstarfs. Eitt verktakafyrirtækið pantaði til dæmis 50 hús sem rísa munu á Reyð- arfirði og Verktakafyrirtækið BKR hefur pantað 6 raðhús, samtals 24 íbúðir sem rísa munu í Hveragerði. Svanberg vill að það komi skýrt fram að þrátt fyrir mikil umsvif í samstarfi við stór byggingafé- lög sé engin hætta á að einstaklingar týnist í hópi viðskiptavinanna. „Við getum bætt við okkur kröfuhörðum viðskiptavinum,” segir Svanberg og brosir. „Áætlanir fyrir árið 2006 gerðu ráð fyrir 500 milljóna króna sölu sem endaði í 1,6 milljörðum króna, það er skekkja sem munar um,“ bætir Svanberg við og segir að þetta hafi allt gengið upp því Nýtt Hús hafi á að skipa mjög sam- hentum hópi sem vinnur af áhuga og elju. Á heimasíðu Nýtt Hús, www.nytthus.is, má finna vörulista með 40 gerðum húsa frá 60 til tæp- lega 400 fm að stærð sem svo er hægt að laga að þörfum hvers og eins. „Oftast eru kaupendur með einhverjar séróskir og þeim tökum við fagnandi,1 segir Svanberg. „Við bjóðum upp á ýmsar leiðir í byggingu húsanna og jafnvel heildarlausnir með öllu að undanskilinni sjálfri jarðvinnunni. Hús- eigandinn sér alltaf um hana en við bjóðum upp á forsteypta sökkla sem nánast allir kaupendur nýta sér.“ Húseiningarnar eru framleiddar í 4100 fm ein- ingaverksmiðju að Seylubraut 1 í Reykjanesbæ. Yf- irleitt er sá háttur hafður á að húsunum er skilað rúmlega fokheldum að innan en fullfrágengnum að utan. Það verður varla mikið einfaldara að koma sér þaki yfir höfuðið. Núerlagaðg ogspara,því Mán. - fös. kl. 9-18 • laugard. kl. 10-15 ,r-r~r- /—j • fi f 4 . HÍ:Í

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.