blaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 1
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPÍS!
■ FÓLK
Elvar Guðmundsson er kvikmynda-
gerðarmaöur. Hann sendi inn stutt-
™ynd í raunveruleikaþátt sem Steven
Spielberg kemur að |síðai4
■ HEILSA
ívar Örn Sverrisson leikari segir
að starf leikarans sé stundum
ekki ósvipað því að vera
atvinnumaður í íþróttum | síða3o
Fyrstu fuglarnir komnir
Gestir Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í
Laugardal munu um helgina eiga þess
kost að líta alifugla augum en engir slíkir
hafa verið til sýnis síðan í nóvember. Þá
þurfti að farga öllu fiðurfé vegna gruns
um fuglaflensusmit og var ákveðið
að taka ekki inn nýja fugla fyrr en að
þremur mánuðum liðnum. Sá tími rann
út í fyrradag og er vinna við að útvega
nýja fugla þegar hafin.
Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðu-
maður Húsdýragarðsins, segir það
vissulega gleðiefni aðfá fugla aftur í
garðinn enda hafi verið leiðinlegt að
missa fuglana að ástæðulausu. Segir
hann að einu fuglarnir sem stigið hafi í
garðinn að undanförnu séu villtir fuglar í
hremmingum.
Bretar og Danir frá írak
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands,
kynnti í gær áætlun sína um að fækka
í herliði Breta í frak á næstu mánuðum.
Blair sagði að hermönnum yrði mjög
bráölega fækkað um 1.600 og vonandi
fimm hundruð til viðbótar í lok sumars.
Um 7.100 breska hermenn er nú að
finna í frak. Anders Fogh Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur, tilkynnti
skömmu síðar að allir danskir landgöngu-
liðar í írak verði sendir heim fyrir lok
júlímánaðar næstkomandi.
Bæjarfulltrúinn bulli
Guðmundur G. Guðmundsson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi
bæjarstjóri, hefur óskað eftir því að
Álftaneshreyfingin sýni á bæjarráðsfundi
afrit reikninga og greiðslustaðfestingar
vegna vinnu arkitekts fyrir hreyfinguna
á árinu 2005.
Sigurður Magnússon, bæjarstjóri á Álfta-
nesi, segir þetta ástæðulausa beiðni
sem varði ekki bæjarsjóð.
Varasamt að nota bluetooth-farsímabúnað í nýjum bilum:
Hver sem er getur
hlerað samtölin
■ Það eina sem þarf til er farsími eða tölva ■ Fórnarlömb varnarlaus
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net
„Ef maður kann til verka er hægt að hlusta á allar sam-
ræður sem eiga sér stað í bílnum og jafnvel skerast í þær
án þess að ökumaðurinn hafi nokkuð um það að segja
og það er í raun ótrúlegt kæruleysi að selja bluetooth-
búnað sem hægt er að tengjast einhliða," segir þýski
tölvuöryggissérfræðingurinn Michael St. Neitzel. Hann
segir að hver sá sem hafi sæmilega tölvuþekkingu geti
á einfaldan hátt hlerað símtöl sem fara fram í gegnum
svokallaðan bluetooth-búnað. Ekki þurfi flókinn búnað
heldur dugi einfaldur farsími eða sæmilega útbúin
tölva.
Notkun bluetooth-búnaðar hefur aukist verulega á
undanförnum árum en þessi tækni gerir tækjum eins
og farsímum og tölvum kleift að skiptast á gögnum á
þráðlausan máta. Notkun bluetooth fer sífellt vaxandi
og segja bílasalar að nokkuð stór hluti íslenska bílaflot-
ans sé útbúinn slíkum búnaði og að búast megi við því
að hann verði orðinn staðalbúnaður innan skamms
enda kalli markaðurinn á það, ekki síst í ljósi þess að
sífellt fleiri ríki banna notkun farsíma við akstur nema
með notkun handfrjáls búnaðar.
Neitzel segir að einkum þeir sem nota bluetooth í
bílum og í gegnum staðsetningartæki séu berskjald-
aðir fyrir hlerunum sem þessum. Engin leið sé fyrir
ökumenn að átta sig á hvort verið sé að hlera þá því í
flestum tilfellum fari það alveg framhjá þeim þegar ein-
hver tengir sig inn í kerfið. Taki hann hins vegar eftir
því að einhver sé að hlusta geti hann hins vegar ekkert
gert þar sem „hakkarinrí' hefur fulla stjórn á kerfinu.
Ekki er við íslenska söluaðila að sakast í þessum
efnum heldur framleiðendur því til að tengja sig inn í
kerfin þurfi í mörgum tilfellum staðlaðan aðgangskóða
sem auðvelt er að nálgast á Netinu. Neitzel vill þó taka
fram að ekki séu allir sem nota blutooth-búnað í hættu
heldur fari það eftir vörumerkjum hversu auðvelt er að
komast inn í búnaðinn.
Sjá einnig siðu 4
Guðni gæðir sér á íslensku skyri Matar- og skemmtihátíðin Food and Fun var formlega sett á Nordica hóteli í gær. Við það tilefni
gæddi landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, sér á skyri. Hátíðin er nú haldin í sjötta sinn og bjóða á henni þrettán veitingastaðir upp á
sérmatseðla erlendra matreiðslumeistara.
ORÐLAUS
» síða 34
Ameríski draumurinn
„Síðasta mynd sem ég sá heitir
American Dreams og sú mynd
kom skemmtilega á óvart,“
segir Sóley Kristjánsdóttir en
myndina sá hún á myndbands-
spólu fyrir stuttu.
VEÐUR
» síða 2 | VIÐTAL
Vægt f rost
Austan- og norðaustanátt,
víða 10-15 m/s, en 18-25
m/s við suðausturströndina.
Víða snjókoma eða él, en
þurrt að mestu. 0 til 3 stiga
hiti suðvestantil á landinu.
Átta síöna sér-
blað um konuna
fylgir meö
Blaðinu í dag
» síður 17-24
Mánudaga - Föstudaga 11-19
Laugardaga 11-18
Sunnudaga 12-18
Ódýrt ódýrt ódýrt ó'
og 9ott og 9ott og 9°tt
KR(i)NAN
Renault
öruggari notaöir bílar
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
RENAULT LAGUNA II
Nýskr: 07/2003, 2000cc
5 dyra, Sjálfskiptur, Ljós-
brúnn, Ekinn 44.000 þ.
Verð: 1.820.000
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 09/2004,1600cc
4 dyra, Fimmgíra, Rauður,
Ekinn 37.000 þ.
Verð: 1.760.000
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 11/2003, lSOOcc
5 dyra, Fimmgíra, Dökkgrár,
Ekinn 55.000 þ.
Verð: 1.630.000
^bilaland.is^