blaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 1
18 Tekið á svefnvanda- málum ungbarna 79 SOS-uppeldisnám- skeið fyrir foreldra 22 Söng- og leiklistar- námskeið í Söngskóla Maríu Bjarkar ................. % 22 Tískustraumar í meðgöngufatnaði Blátt áfram gefur útforvarnabók Þetta eru mínir einkastaðir 24 ■ Frumleg furðudýr á öskudaginn AUGLÝSINGASÍMIAUKABLAÐA 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Blátt áfram, félagasamtök um for- varnir gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, gaf á föstudaginn út barnabókina ,Þetta eru mínir einkastaðir'. Bókin, sem unnin er í samvinnu við Hagkaup, er ætluð for- eldrum, forráðamönnum og öðrum sem koma að uppeldi barna hér á landi. „Þetta er frábært verkfæri fyrir full- orðna til þess að vernda börnin og leiða þau í sannleikann um hættur sem að þeim steðja,“ segir Sigríður Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Blátt áfram. „í starfi okkar hjá Blátt áfram höfum við fundið fyrir mik- illi vakningu meðal foreldra og ann- arra uppalenda og fjölmargir leita til okkar og biðja um ráð. Bókin er einfaldlega svarið við þessum spurn- ingum og góð lausn fyrir alla sem vilja vita hvernig eigi að tala um þetta við börnin." Bók sem svarar flestum spurningum Sigríður segir algjörlega nauðsyn- legt að vera með bók sem þessa. Að hennar sögn er bókin sett upp á ljóð- rænan og skemmtilegan hátt og því skemmtileg aflestrar fyrir börnin. „1 bókinni eru vísur og fleira sem börnunum finnst skemmtilegt að lesa. Þetta er líka sett þannig upp að börnunum ætti ekki að finnast óþægilegt að spyrja spurninga og eins fá foreldrarnir leiðbeiningar í upphafi bókar um hvernig best sé að svara spurningum sem koma upp. Þá læra börnin líka að segja nei, en það er auðvitað mjög mikil- vægt, og eins læra þau hvað er eðli- leg snerting og hvað ekki. Að auki hvetur bókin börnin til að segja frá misnotkun sem átt hefur sér stað.“ 1 kjölfar mikillar umræðu um kynferðisofbeldi gegn börnum hafa margir beðið um aukna fræðslu og ófáir foreldrar leitað á náðir Blátt áfram. „Þegar við höfum verið með fræðslu og fyrirlestra fyrir foreldra þá fáum við alltaf spurningar um hvernig fólk eigi að tala um þetta við börnin og flestir vilja fá dæmi,“ segir Sigríður að lokum og tekur fram að bókin sé hið besta svar við öllum þessum spurningum. „Svo vona ég bara að þetta sé bók sem oft er tekin úr bókahillunni, bæði af börnunum sjálfum og foreldrunum." A Allir njóta sín í fallegu umhverfi ^TsSHlí Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti -uúscTicH-n Mifnmi) Ljós Veggboröar Veggskraut Borð og stólar Dótakassar Mottur *10% af andvirði rúmsins Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 | www.husgogn.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.