blaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 1
42. tölublaö 3. árgangur
fimmtudagur
1. mars 2007
■ FÓLK
Ásdís Hannesdóttir var með þátt með
Ólafi Ragnari Grímssyni í árdaga Sjón-
varpsins þar sem hún hefur starfað
Nú er hún að hætta |sIðai4
■ MENNING
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir mynd-
listarmaður ólst upp í Fljótshlíðinni og
sækir innblástur sinn þangað þegar
hún sest við trönurnar I siða2s
Ný sænsk rannsókn:
Krabbamein af blóðsykri
■ Hætta á sortuæxlum ■ Of mikil gosdrykkja ■ Nýr lífsstíll dregur úr hættunni
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Tengsl eru á milli hás blóðsykurmagns og
ýmissa tegunda af krabbameini, að því er nið-
urstöður nýrrar rannsóknar vísindamanna í
Umeá í Svíþjóð sýna. Þátttakendur í rannsókn-
inni, sem stóð yfir í 13 ár, voru 70 þúsund, að
því er greint er frá í sænska blaðinu Aftonbladet.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru kynntar í rit-
inu Diabetes Care.
Bæði konum og körlum er hættara við sortu-
æxli, krabbameini í brisi eða þvagfærum ef blóð-
sykurmagnið í líkamanum er mikið. Tengsl hafa
einnig fundist milli krabbameins í legi og mikils
blóðsykurmagns.
Á þeim 13 árum sem rannsóknin stóð yfir jókst
meðaltalsblóðsykurmagnið hjá þátttakendum
um 17 prósent. „Meðaltalið hækkar frekar ört,
meðal annars vegna þess að við neytum of mik-
ils af tómum kolvetnum, eins og til dæmis gos-
drykkja og sælgætis, auk þess sem við hreyfum
okkur of lítið," segir Pár Stattin, dósent við há-
skólann í Umeá.
Sænsku vísindamennirnir segja að með lífs-
stíl, sem minnki blóðsykurmagnið, sé hægt
að draga úr hættunni á krabbameini, ekki
bara hjá þeim sem glíma við ofþyngd heldur
einnig öðrum. Breyttur lífsstíll myndi einnig
draga úr hættunni á sykursýki og hjarta- og
æðasjúkdómum.
Könnun á mataræði 9 og 15 ára barna og ung-
linga á íslandi, sem gerð var 2003 til 2004 á
vegum Rannsóknastofu í næringarfræði og Lýð-
heilsustöðvar, leiddi í ljós að 9 ára börn drekka
að meðaltali tæplega 2,5 lítra af gosdrykkjum og
sætum svaladrykkjum á viku og 15 ára unglingar
tæplega 4 lítra á viku. Könnun leiddi jafnframt í
ljós að 9 ára börn fá 70 grömm á dag (eða 13,1 pró-
sent orkuneyslunnar yfir daginn) af viðbættum
sykri og 15 ára unglingar 100 grömm á dag (16,1
prósent orkuneyslunnar yfir daginn).
Fella á niður vörugjald af gosdrykkjum í dag
hér á landi og lækka virðisaukaskatt. Lýðheilsu-
stöð sendi í haust, þegar fjallað var um lækkun
tolla og virðisaukaskatts á matvælum, umsögn
til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar
sem fram kom að það vekti athygli að gosdrykkir
væru ekki flokkaðir með öðrum sætindum.
„Neysla á gosdrykkjum er mjög mikil hér á
landi og sérstaklega hjá ungum strákum. Nýjar
kannanir hafa sýnt að glerungseyðing er mikil
hjá þessum hópi en hún tengist mjög neyslu á
súrum drykkjum,“ segir Jakobína Arnadóttir,
aðstoðarmaður forstjóra Lýðheilsustöðvar.
FRÉTTIR
Neytendur
taki þátt
„Við höfum lækkað verð undanfarnar
vikur og svo var lokahnykkurinn
tekinn á þetta í gærkvöldi," segir
Guðbjörn Gunnar Jónsson, verslunar-
stjóri Nóatúns í Rofabæ, en virðisauka-
skattur á matvælum lækkar í dag
niður í 7 prósent.
„Ég er búinn að fara yfir alla búðina og
það er umtalsverður verðmunur frá
því sem áður var.“
Árni Mathiesen, fjármálaráðherra,
er bjartsýnn á að lækkunin skili sér
til neytenda og segir að viðbrögö
þeirra verði ákveðinn prófsteinn
á matvælamarkaðinn. „Það hefur
verið talað um að samkeppnin á
matvælamarkaðnum sé ekki næg og
gangi lækkunin ekki eftir þá eru þær
fullyrðingar réttar," segir Árni og telur
að stjórnvöld muni eflaust grípa til
aðgerða lækki matvælaverð ekki. „Þá
standa stjórnvöld fyrir því að greina
það og koma á virkri samkeppni en
ég hef þá trú að aðilar á markaðnum
hafi metnað til að skila lækkuninni til
neytenda."
Lækkunin undirbúin Starfsfólk Nóatúns hafði í nógu að snúast í gær þegar verið var að breyta verðmerkingum. Fjármálaráðherra segir
heildarlækkunina á verði matvæla geta á numið allt að 16 prósentum en bætir við að nokkur tími geti liðið þar til hún komi öll fram.
OF » síóa 34 1 VEÐUR
Jfc ||Flott bíómynd Dálítil él
» síða 2
„Síðasta myndin sem ég sá
var Letters from Iwo Jima og
mér fannst hún mjög áhrifa-
mikil," segir Freyr Eyjólfsson
útvarpsmaður sem segist fara
mikið í bíó.
Dálítil él fyrir norðan og
einnig við suðausturströnd-
ina. Norðaustan 5-13 og él
en úrkomulaust vestan-
lands. FrostOtil 10 stig,
kaldast í innsveitum.
Átta síöna sér-
blaö um viðskipti |
og fjármál fylgir
Blaöinu í dag
Clzsilq;fu7ulani&tafa á Búðwn
OFFROAD
Dömu og herra
Nr. 69533-4
Stærðir: 36-47
Verö:
10.995 kr,-
ecco
Kringlan - Laugavegur - Smáralind
& HYunoni;
Renault
öruggari notaðir bílar
★ ★ ★ ★ ★
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
RENAULT MEGANE II Saloon
Nýskr: 05/2005, 1600cc
4 dyra, Fimmgíra, Ljósgrár,
Ekínn 20.000 þ.
Verd: 1.840.000
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 07/2003, 1400cc
5 dyra, Beinskiptur, Ijós-
grár, Ekinn 97.000 þ.
Verð: 1.140.000
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 06/2004, 2000cc
5 dyra, Fimmgíra, Raudur,
Eklnn 30.000 þ.
Verð: 1.930.000
VJ-071
W
.biloland.is.
575 1230
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 06/2006, 1600cc
5 dyra, Fimmgíra, Hvítur,
Eklnn 81 þ.
Verð: 2.270.000
VEXTIRFRÁ
AÐEINS
.
k jl
o#
w mstm
Þannig er má
með vexti ...
... að það er
hægt að létta
greiðslubyrðina
$
FRJÁLSI
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 29.1.2007.