blaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 9
blaðið
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 9
Baugsmálið:
Lögreglan
gagnrýnd
Skýrslutökur í Baugsmálinu
héldu áfram í gær og voru meðal
þeirra sem báru vitni Auðbjörg
Friðgeirsdóttir, sem starfaði sem
innri endurskoðandi
Baugs á árunum
BiUIGS
Waagfjörð,
sem var
fjármála-
stjóri Baugs frá september
2001 til 2002 og Árni Oddur
Þórðarson, forstjóri Eyris Ivest
og stjórnarformaður Marels.
Auðbjörg og Jóhanna
gagnrýndu báðar vinnubrögð
lögreglunnar við rannsókn
málsins fýrir dómi, samkvæmt
fréttamiðlinum mbl.is, og sögðu
spurningar við skýrslutöku hjá
lögreglu hafa verið bornar þann-
ig fram að ljóst væri að um ólög-
legt athæfi hefði verið að ræða.
Bosnía:
Breskar her-
sveitir á förum
Adam Ingram, varnarmálaráð-
herra Breta, tilkynnti í gær að
flestir af síðustu hermönnum
Breta í Bosníu verði kallaðar
heim á næstunni. Sex hundr-
uð breskir hermenn eru nú í
Bosníu, en aðgerðin er liður
í því að fækka í alþjóðlega
herliðinu í Bosníu vegna
breyttra aðstæðna í landinu.
Sex þúsund manna alþjóð-
legt herlið er nú að finna í
Bosníu, en ætlunin er að fækka
þeim í 2.500 á næstunni.
Bresku hermennirnir í
Bosníu störfuðu fyrst undir
merkjum Sameinuðu þjóðanna,
svo Atlantshafsbandalagsins
og loks Eufor, herafla á veg-
um Evrópusambandsins.
Airbus:
Starfsmenn
hætta vinnu
Starfsfólk flugvélaframleiðand-
ans Airbus mótmæltu fyrirhug-
uðum uppsögnum fyrirtækisins
í gær, en fyrirtækið hyggst segja
upp um tfu þúsund starfsmönn-
um víða í Svrópu á næstu þrem-
ur árum. Þannig lögðu rúmlega
þúsund starfsmenn Airbusverk-
smiðjunnar í Lauphaim í Þýska-
landi niður vinnu í gær til að
mótmæla áætlunum yfirmanna
um að segja upp starfsfólki
og selja verksmiðjuna. Starfs-
fólk í Nordenheim lagði svo
niður vinnu í kjölfarið. Þá hefur
starfsfólk Airbus í Frakklandi
boðað hálfs dags verkfall í dag.
Fyrirtækið tilkynnti á
miðvikudaginn að til stæði að
segja upp um fjögur þúsund
manns bæði í Þýskalandi og
Frakklandi, 1.500 manns í
Bretlandi og fimm hundruð
á Spáni fram til ársins 2010.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra:
Listi staðfastra var fréttatilkynning
„Það verður að andmæla þvf að
einhverskonar fréttatilkynningar
frá Hvíta húsinu fái lögformlegt
gildi á Alþingi. Það er langeinfald-
ast að svara þeim með pólftískum
yfirlýsingum og það hef ég gert,“
sagði Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra vegna þingsályktunartil-
lögu stjórnarandstöðuflokkanna
um að ríkisstjórnin taki ísland
með formlegum hætti út af lista
þeirra þjóða sem studdu innrás-
ina í írak.
Viðskiptaráðherra sagði jafn-
framt hinn svokallaða lista yfir
staðfastar þjóðir einhliða fram-
setningu Bandaríkjamanna.
Össur Skarphéðinsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði
langt síðan hann hefði heyrt
annan eins kattarþvott. Össur
benti á að fyrrverandi formaður
Framsóknarflokksins, Halldór
Ásgrímsson, hefði varið það að ís-
land væri á listanum. Hann sagði
Island hafa verið sett á listann
með fullu samþykki Halldórs og
Davíðs Oddssonar, fyrrverandi for-
sætisráðherra, og frá þeirri ábyrgð
gæti Framsóknarflokkurinn ekki
Frétta-
tilkynning
Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra
hlaupið. „Viðskiptaráðherra ætti
að biðjast afsökunar á að koma
með svona vitleysu. Þetta er aum-
legt yfirklór," sagði Össur.
Jón sagði greinilegt að menn
hefðu ekki velt því fyrir sér eðli
Aumlegt
yfirklór
ÖssurSkarphéð-
insson, þingmaður
Samfylkingarinnar
plaggsins sem kallað væri listi
staðfastra þjóða. Hann sagði full-
nægjandi að svara með pólitískum
yfirlýsingum stjórnmálaflokka og
það myndi Framsóknarflokkur-
inn gera á flokksþingi sínu.
Ameriskar heilsudynur
í hæsta gæðaflokki
King Koii hefur framieitt hágæöa rúm í bandaríkjunum síðan áriö 1898
og framieiöir í dag einu dýnurnar sem eru bæði með vottun frá FCER og
Good housekeeping, stærstu neytendasamtök í Bandaríkjunum.
ACOMFORT_____
.-^solutionsy
By King Koil®
Tilboð
Posture support
Queen size (153x203)
kr. 99.500
Posture support
Twin size (97x203)
kr. 59.900
[Good Housekeeping
Eitt landsins mesta
ÚRVAL AF SVEFNSÓFUM
OG GESTARUMUM
maMMBiliHM
omfort
Fjölstillanleg rafmagnsrúm frá King Koil.
Allar tegundir af dýnum: Latex, Memory foam
(þrýstijöfnunar-svampur) og gormadýnur.
ATH myndir sýna ekki endilega tilboðvörur