blaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 32
blaðið
Draumurin
Anna Clausen stílisti hefur fengist við ólík
verkefni á svioi tískunnar
vinna fyrir
5 SPURNINGAR:
nna Clausen stílisti er dönsk en hún flutti
til London þegar hún var einungis 17 ára
til að starfa og nema á sviði tískunnar.
Hún flutti til Islands fyrir tveimur árum
ásamt kærastanum sínum sem er íslensk-
ur og saman reka þau verslunina Belleville á Lauga-
vegi. Þar selja þau föt og aðra hönnun frá sínum
uppáhaldshönnuðum. Anna hefur fengist við ólík
og spennandi verkefni sem stílisti bæði hér heima
og erlendis og í mars heldur hún námskeið fyrir verð-
andi stílista í samstarfi við Emm school of makeup.
Orðlaus spjallaði við hana um áhuga hennar á tísku
og hvaða verkefni hún hefur verið að fást við.
Hvað hefur þú verið að gera?
Ég flutti til London þegar ég var 17 ára og vissi
að mig langaði að vinna við eitthvað tengt tísku.
Ég lærði síðan í London College of Fashion og með
náminu var ég aðstoðarmaður stílista og sá að
þetta átti mjög vel við mig.
Eftir að ég útskrifaðist var ég sjálfstætt starfandi
í nokkur ár og vann sem stílisti að ýmsum verk-
efnum aðallega fyrir tímarit og blöð. Eg stíliseraði
meðal annars stelpurnar í hljómsveitinni the Sug-
ababes þegar þær voru að byrja, það var mjög fynd-
ið verkefni. Ég stíliseraði vídeó fyrir þær, ég man
ekki einu sinni lagið og síðan sá ég um útlit þeirra
fyrir tónleikaferðalag og ýmiss konar kynningar-
efni. Ég var líka að hanna föt ásamt tveimur öðrum
stelpum og við vorum með okkar eigið fatamerki.
Einn daginn birtist mynd af Kylie Minogue í Vogue
í kjól frá okkur og það var mjög skemmtilegt.
Hefur þú alltaf haft áhuga á tísku?
Tíska er fyrir mér ótrúlega vítt og breitt hugtak
og það er svo óendanlega margt sem hægt er að
gera á því sviði. Tíska er skapandi og ég tengi yfir-
leitt allt við tískuna, hvort sem það er tónlist, mynd-
list eða jafnvel pólitík. Ég fylgist að sjálfsögðu með
tískunni og veit hvað er að gerast. En ég lít ekki á
það sem heimavinnu enda geri ég það af því að ég
hef áhuga á tísku.
Að sjálfsögðu hugsa ég eitthvað um minn per-
sónulega stíl þar sem ég lifi og hrærist í þessum
heimi. Mér finnst gaman að þróa minn eigin stíl
þannig að mér finnst mikilvægt að maður festist
ekki og mér finnst gaman að breyta til. Sem stílisti
má manni samt ekki þykja of vænt um sinn eigin
stíl og hann má ekki flækjast fyrir við verkefni.
Hvernig verkefni vinnur þú hér á landi?
Ég kann mjög vel við að búa á íslandi og ég hef
búið hér í 2 ár. Ég vinn ekki eingöngu hér á landi
en hugsa um ísland sem góða bækistöð til að búa á
og ég er ekkert að hugsa um að flytja héðan. Ég hef
verið að kenna í Listaháskóla Islands í fatahönnun-
ardeildinni sem er mjög gaman. Síðan rek ég búð-
ina ásamt kærastanum mínum. Ég starfa líka sjálf-
stætt sem stílisti og hef unnið að ýmsum verkefnum
og hef stíliserað fyrir nokkrar auglýsingar meðal
annars fyrir OgVodafone og tískuþætti í tímaritum.
Ég hef líka aðeins verið að stílisera fyrir hljómsveitir
eins og Steed Lord, Sillu og Johnny Sexual.
Hvernig verkefni finnast þér skemmtileg?
Mér finnst skemmtilegast að gera tískuþætti fyr-
ir tímarit þar sem þá leyfist mér að vera sjálfselsk
og gera það sem mig langar að gera og oft er þann-
ig vinna meira skapandi. Þá getur maður líka haft
meiri áhrif á hvernig útlitið verður, haft áhrif á
tökustaði og annað. Hins vegar finnst mér oft meira
krefjandi að vinna við auglýsingar þar sem það er
alltaf spennandi að gera eitthvað flott innan ákveð-
ins ramma. Stundum er um vöru að ræða sem þú
fílar kannski alls ekki.
Minnisstæðasta verkefnið og draumaverkefni?
Ég vann fyrir franskt tískutímarit sem heitir
Purple Fashion og í þeim verkefnum gerðist yfir-
leitt eitthvað skemmtilegt og sérstakt. Þeir eru að
gera flotta og heiðarlega hluti sem ég fílaði mjög
vel. Ég á mér að sjálfsögðu draumaverkefni og ætli
það sé ekki að vinna með uppáhaldshönnuðinum
mínum, Raf Simmons, og síðan væri líka draumur
að vinna fyrir Balenciaga. Annars finnst mér yfir-
leitt gaman að fást við það sem ég er að gera hverju
sinni.
loa@bladid.net
Tvennutilboð
Tilboðsverð:
69.900
Nardi Ofn &
Gashelluborð
RflFTíEKtJflOERZLUN ÍSLflNDSff
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • ri@ri.is www.ri.is
V
Skll aldrei við mig: Símann mlnn
Elska: Bjarna (kærastan minn)
Þoli ekki: Fáfræði
Matur: Allur matur þar sem sjávarfang
kemur við sögu
Tónlist: Fer alveg eftir því hvernig skapi
ég er í
Bók: Ég er mjög hrifin af bókum eftir Paul
Auster
Draumaverkefni: Ég er svolítið hjátrúarfull
þannig að ég vil ekki gefa neitt uppi
Ráð og speki: Ef þú vinnur nógu vel þá
munu hlutirnir gerast
Hamlngjan felst í: Að vera í faðmi fjöl-
skyldu og vina
Tiskuþáttur sem Anna stílíseraði ásamt
Bjarna Einarssyni Föt eftir Eyju Mannes-
dóttur og Gowithjan eftir Guðjón Tryggvason.
Ljósmyndari Börkur Sigþórsson
Auglýsing fyrir OgVodafone
sumarið 2006 „Mér finnst oft
meira krefjandi að vinna fyrir
auglýsingar.”
J.ii
Tiskuþáttur fyrir italska
tímaritið Uovo Ljósmyndari er
Elísabet Davíðsdóttir og fyrirsætan
Telma
ÞÓRUNN LILJA ARNÓRSDÓTTIR15 ÁRA
Hvað heltir höfuðborg Finnlands?
Helsinki
Hvað heitir Englandsdrottning?
Elísabet eða eitthvað
I hvaða landi var Idi Amin einræðisherra?
Ég veit það ekki
Hvaða mynd fékk Óskarsverðlaun sem
besta myndin?
The Queen eða King of Scotland
Hvað eru heimsálfurnar margar?
3 eða 4
BERGLIND ANNA KARLSDÓTTIR15 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Finnlands?
Helsinki
Hvað heitir Englandsdrottning?
Veit ekki
i hvaða landi var Idi Amin cinræðisherra?
Ekki hugmynd
Hvaða mynd fékk Óskarsverðlaun sem
besta myndin?
Veit ekki
Hvað eru heimsálfurnar margar?
7
ÞÓRA ÞÓRARINSDÓTTIR 21 ÁRS
Hvað heitir höfuðborg Finnlands?
Stokkhólmur
Hvað heitir Englandsdrottning?
Elísabet
f hvaða landi var Idi Amin einræðisherra?
Ekki'hugmynd
Hvaða mynd fékk Óskarsverðlaun sem
besta myndin?
The Departed
Hvað eru heimsálfurnar margar?
BJARNI MAGNÓSS0N 24 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Finnlands?
Helsinki
Hvað heitir Englandsdrottning?
Elísabet
f hvaða landi var Idi Amin einræðisherra?
Man ekki
Hvaða mynd fékk Óskarsverðlaun sem
besta myndin?
Man það ekki, fylgist ekki með þessu
Hvað eru heimsálfurnar margar?
6
ÞURÝ ÓSK ELÍASDÓTTIR18 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Finnlands?
Ekki hugmynd
Hvað heitir Englandsdrottning?
Man það ekki
f hvaða landi var Idi Amin einræðisherra?
Veit ekki
Hvaða mynd fékk Óskarsverðlaun sem
besta myndin?
Ég bara veit það ekki
Hvað eru heimsálfurnar margar?
Ekki hugmynd
Z'S papedaa
agi t? epueön e iaqesi|3'2 |>tU|S|8H' l ooas