blaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 07.03.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS » síða 37 ■ FOLK ,Mig vantar bankastjóra til að fjár- magna þessa plötu," segir Róbert _ Örn Hjálmtýsson í hljómsveitinni Ég, sem vinnur að nýrri plötu | síðai6 ■ MEWWING Hjálmar G. Sigmarsson og karlahópur Feministafélags íslands standa fyrir klámkvöldi i kvöld á Barnum. Engir berir bossar verða þó þar I s(ða28 46. tölublað 3. árgangur miðvikudagur 7. febrúar 2007 FRJALST, OHAÐ & Áfram HarryPotter með hlutverk meistarans Harry Potter í síðustu tveimur kvikmyndunum um hina duldu galdraheima. Þó kom ekki fram hvenær kvikmyndir þær verða frumsýndar en fimmta myndin í seríunni, Harry Potter and the Order of the Phoenix, þeysist i kvikmyndahús heimsins næst- komandi júlí. Forstjóri Barnaverndarstofu gagnrýnir stefnuleysi ríkisins í barnaverndarmálum: Barnavemd á hakanum ■ Börn greiða ekki atkvæði ■ Fjárskortur hrjáir ■ Kerfið gallað Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Fjárframlög ríkisins til barnaverndar í landinu hafa hlutfallslega lækkað á sama tíma og spreng- ing hefur orðið í fjölda tilkynninga um börn og unglinga í vanda. Það er aftur ástæða þess að stöðugildum í barnavernd hefur ekki fjölgað um margra ára skeið og mál hrannast upp hjá þeim fáu sem fyrir eru. Þetta er meðal þess sem Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, gagnrýnir en hann segir ýmislegt miður í því kerfi harnaverndar sem nú er við lýði. „Á meðan framþróun hefur orðið annars staðar í þjóðfélaginu og framlög annars staðar í heilbrigðiskerfinu aukist mikið er algjör stöðnun hjá okkur,“ segir Bragi. Hann segir afar sorglegt að þeir sem minnst megi sín í þjóðfélaginu skuli ekki njóta meiri skilnings ráðamanna og afstaða þeirra standi frekari framþróun fyrir þrifum. „Barnaverndarmál mæta afgangi og sá afgangur dugar einfaldlega ekki. Kannski þetta sé af því börn gefa engin atkvæði.“ Bragi bendir ennfremur á að engin stefnu- mótun hafi enn verið gerð af hálfu ríkisins vegna barnaverndarmála. Kallar hann eftir því, en án skýrrar stefnu og fjármuna til þess sé erfitt að ná árangri í að bæta hag og heilsu þeirra sem minnst mega sín. Segir hann ýmsar leiðir færar til að gera barnavernd fyrsta flokks á íslandi og til þess þurfi í raun ekki mikið fjármagn auka- lega umfram það sem nú er. Framlög hafi hins vegar staðið í stað í mörg ár og þau nægi einungis rétt til að halda í horfinu en ekki til að veita alla þá aðstoð sem full þörf er á víða. í kjöifar fregna af döprum aðstæðum barna og unglinga í umsjá ríkisins hér á árum áður hefur Blaðið kynnt sér hvernig málum er háttað í dag og má ráða af viðtölum við þá sem að barna- vernd koma með einum eða öðrum hætti að pottur sé brotinn víða. Alvarlegast er mikið álag á fáa starfsmenn sem fyrir vikið endast skemur í störfum sínum og veita verri eða minni þjónustu en ella. í Blaðinu í dag segir ung stúlka sögu sína. Stúlkan upplifði æsku og uppvöxt sem í raun er daprari en orð fá lýst. Sjá nánar síður 12 og 13 Svifryk og drulla þvegin af Borgarstarfsmenn hafa síðustu daga hreinsað drulluna af umferðarljósunum. Þessir þvoðu Ijósin á Sæbrautinni. » siða 34 Góð tískuvitund Sigurður Oddsson hönnunarnemi segist eiga tíu pör af skóm en honum finnst erfitt að finna flotta skó. Hann þykir hafa ágætis tískuvitund. Skúrir suðvestantil Hæg breytileg eða suðlæg átt og skúrir suðvestantil en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 1 til 7 stig, svalast norðvestanlands. brefaldur pottur y * pXS 3 170. +20Hf m milljónir Bónus- Vlbningur 2 toilljónir • • a -•, LOTT« Alltaf á miðvikudógum! lotto.ls Hillukerfi Vinnuborð Fataskápar Stálskápar Hjólaborð Plastvörur

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.