blaðið - 08.03.2007, Blaðsíða 1
47. tölublað 3. árgangur
fimmtudagur
8. mars 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKpvPIS!
■ FOLK
Dóra Jóhannsdóttir, leikkona, leikur
ólétta táningsstúlku í söngleiknum
LEG sem frumsýndur verður í
kvöld í Þjóðleikhúsinu | síða ie
■ KONAN
Halldóra Friðjónsdóttir, formaður
Bandalags háskólamanna, er fundar-
stjóri á fundi í dag í tilefni af alþjóð-
legum baráttudegi kvenna | sída36
Afskiptur af kerfinu
Blaðið heldur áfram umfjöllun um stöðu
barnaverndarmála á Islandi. I Blaðinu í
dag er viðtal við ungan strák sem hlaut
illa meöferð frá unga aldri og sótti í
neyslu í kjölfarið. Hann er einn þeirra
sem kerfið missti gjörsamlega af en
eins og fram hefur komið í umfjöllun
Blaðsins veit enginn með neinni vissu
hversu mörg börn eða unglingar dvelja
lengri eða skemmri tíma að heiman og
leita ásjár í vímuefnum ýmiss konar eða
hjá misindismönnum sem notfæra sér
neyð þeirra.
FRÉTTIR » síða 8
Ríkið selur Hitaveituna
Ríkið hefur ákveðið að selja eignarhlut
sinn í Hitaveitu Suðurnesja hf. Fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu hefur
ráðið Capacent ehf. sem ráðgjafa við
söluna á hlut rikisins sem er rúm 15
prósent af heildarhlutafé félagsins. Nafn-
verð er rétt rúmur milljarður króna.
Samkvæmt samþykktum Hitaveitu Suð-
urnesja á félagið sjálft auk núverandi
hluthafa forkaupsrétt að eignarhlut-
unum. Stærsti hluthafinn er Reykjanes-
bær og þar hafa menn hug á að nýta
sér forkaupsréttinn. „Það er alveg Ijóst
aö við munum gera það en ég veit ekki
um hug annarra. Þetta hefur ekki verið
samþykkt en við höfum rætt málið,“
segir Hjörtur Zakaríasson, bæjarritari í
Reykjanesbæ.
Aðrir hluthafar eru Hafnarfjörður, Grinda-
vík, Vestmannaeyjar, Sandgerði, Garður,
Vogar, Árborg og Kópavogur.
Skoðanakönnun Blaðsins:
Forskot Vinstri grænna
á Samfylkingu eykst
■ Ríkisstjómin heldur velli ■ Frjálslyndir bæta við sig
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
og Magnús Geir Eyjólfsson
Vinstri grænir mælast með 23,6
prósenta fylgi en Samfylking
18,5 prósent samkvæmt skoðana-
könnun Blaðsins sem framkvæmd
var síðastliðinn þriðjudag. Fylgi
Samfylkingarinnar mældist einnig
minna en Vinstri grænna í könnun
Blaðsins fyrir mánuði og í febrúar-
könnun Gallup.
„Þetta virðist staðfesta það að
Vinstri grænir eru á mikilli sigl-
ingu og Samfylkingin á undir
högg að sækja,“ segir Einar Mar
Þórðarson stjórnmálafræðingur.
„Samfylkingunni hefur einhvern
veginn ekki tekist að vinna sig upp
úr þeirri ládeyðu sem flokkurinn
hefur verið í og er það að koma
fram í könnunum."
í könnun Blaðsins mælist Sjálf-
stæðisflokkurinn með 42,8 pró-
sentafylgi, Framsóknarflokkurinn
með 9 prósent og Frjálslyndi flokk-
urinn með 6,1 prósent. Samkvæmt
könnuninni heldur ríkisstjórnin
velli.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, er ánægður
með fylgi flokks síns. „Þetta
hljómar ákaflega vel og er enn
ein staðfesting á því að við erum
á góðu róli.“ Hann segir niðurstöð-
urnar í takt við þá stemningu sem
umlukið hefur flokkinn á undan-
förnum misserum.
„Vissulega vorum við með geysi-
lega góðan landsfund fyrir tíu
dögum en það má benda á að Fram-
sókn var með sitt flokksþing um
helgina og það virðist ekki duga
þeim meira en þetta. Við mættum
vera nær því að fella ríkisstjórnina
en þetta sýnir að staðan er geysi-
lega spennandi. Sjálfstæðisflokk-
Fylgi stjórnmálaflokka
Framsóknar- Frjálslyndi Samfylkingin Sjálfstæðis- Vinstri
flokkurinn flokkurlnn flokkurinn grænir
Pað eruallt
ofmargir
óákveðnír
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður
Samfylkingar
urinn er að dala sem er ánægjulegt
og sá munur sem var stjómarflokk-
unum í hag í síðustu könnun er
nánast horfinn. Það er í sömu átt
og í öðrum könnunum."
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, bendir
á að niðurstaðan sé svipuð og
undanfarið.
„Það eru allt of margir óákveðnir
eða taka ekki afstöðu til að hægt
sé að taka mark á niðurstöðum
undanfarinna kannana,“ segir
hún. Samfylkingin eigi mörg sókn-
arfæri hjá óákveðnum kjósendum
sem koma til með að ráða úrslitum
í alþingiskosningunum í maí.
Staðfestir að við
ervmá góðuróii
Steingrímur J.
Sigfússon, formaður
Vinstri grænna
Skoðanakönnun Blaðsins er
símakönnun sem gerð var þriðju-
daginn 6. mars. 800 einstaklingar
með kosningarétt svöruðu könn-
uninni og er skipting jöfn eftir
kyni og hlutfallslega jöfn eftir
kjördæmum. 90,1 prósent svöruðu
spurningunni „Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði til alþingis-
kosninga nú?“ 61,6 prósent tóku af-
stöðu, 31,3 prósent voru óákveðin
og 7 prósent sögðust hlutlaus, ekki
ætla að kjósa, ætla að skila auðu
eða kjósa aðra flokka en þá sem
eru í boði.
Sjá einnig síðu 4
NÝJAR VÖRUR
City Shanghai
Dömuskór
Stærðir: 36-42
Verö:
11.995 kr.-
SPARK
Dömuskór
Stærðir: 36-42
Verö:
9.995 kr.-
FUN
Barnaskór
Stærðir: 26-35
Verö:
5.995 kr.-
^ ‘SENDUM I PÓSTKRÖFU |
IÞROTTIR
» síöa 40
Eiöur Smári flottur
Eiður Smári Guðjohnsen fær
almennt góðar umsagnir í
spænskum fjölmiðlum fyrir
þær 20 mínútur sem
hann lék í sigurleik liðs
síns gegn Liverpool.
VEÐUR
» síða 2
Rigning sunnanlands
Vaxandi austanátt. 10-18
metrar á sekúndu og
rigning sunnanlands um og
eftir hádegi, en hægari og
þurrt á Norðurlandi fram
til kvölds. Hiti 1 til 8 stig,
Sextán síöna
sérblað um
vinnuvélar
fylgir meö
Blaöinu í dag
ecco
Kringlan
Laugavegur
Smáralind
VEXTIR FRÁ AÐEINS b^nnin or mcjl ... að það er
Miðað við myntkörfu 4, Libor-vextir 29.1.2007. rdí lí liy fcíi 11 Idl með vexti ... hægt að létta greiðslubyrðina. 1 FRjÁLSI