blaðið - 09.03.2007, Blaðsíða 1
48. tölublaó 3. árgangur
föstudagur
9. mars 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKF?"'S!
■ MATUR
Katrín Anna Guðmundsdóttir, talsmaður
Femínistafélagsins, hefur gaman af
því að elda og býður lesendum upp á
kjúklingarétt | síða22 t
■ FÓLK
Gunnar Örn Ingólfsson og Ástrós Elías-
dóttir voru Rokklingar en þeir gerðu
allt vitlaust í kringum 1989. Lítið
hefur spurst til þeirra síðan | síðais
FRÉTTAVIÐTAL » síða 8
Engin krafa um árangur
„Þaö segir sig alveg sjálft aö fari einstak-
lingur í meðferð oftar en tvisvar sinnum
á sama staö hljóta að vakna spurningar
um árangur meöferðarinnar," segir
GuðmundurTýr Þórarinsson, Mummi,
sem unnið hefur náið með börnum og
unglingum innan og utan kerfisins um
tæplega fimmtán ára skeið.
Hann tekur fullum hálsi undir gagnrýni
forstjóra Barnaverndarstofu um að
naumt skammtað fjármagn standi barna-
vernd fyrir þrifum.
Launaleynd skapi leiðindi
Afnám launaleyndar væri stórt skref
aftur á bak og jafnvel til þess fallið
að skapa óróa og leiðindi á vinnustað.
Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, f ram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins,
um fyrirhugað frumvarp til laga um
jafnan rétt kvenna og karla.
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmda-
stjóri ASÍ, segir að launaleynd sé ein
meginforsenda kynbundins launamunar.
Skúrar strax við vígslu
Skólabygging Ingunnarskóla í Reykjavík
var formlega tekin í notkun fyrir tveimur
árum. Frá upphafi hefur skólinn þurft að
nota skúra til að mæta fjölda nemenda
og í haust þarf skólinn að tvöfalda
skúrafjöldann.
„Aldrei er byggt yfir toppinn í nemenda-
fjölda og mér er sagt að það sé stefna
borgarinnar," segir skólastjórinn.
Álverið í Straumsvík Nær hnífjafnt
er á milli fylkinganna sem eru með
og á móti stækkun álversins.
Skoðanakönnun Blaðsins:
Algjör óvissa
■ Kosið um stækkun álversins 31. mars ■ Karlar hlynntari stækkun
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Hafnfirðingar skiptast í tvær jafnar
fylkingar varðandi afstöðu sína til
stækkunar álvers Alcan í Straums-
vík, samkvæmt nýrri skoðana-
könnun Blaðsins sem framkvæmd
var 6. mars síðastliðinn.
í könnun Blaðsins sögðust 50,8
prósent þeirra sem tóku afstöðu vera
hlynnt stækkun álversins en 49,2 pró-
sent andvíg. Fleiri karlar en konur
sögðust vera hlynntir stækkuninni
en 56,6 prósent karla sem tóku af-
stöðu sögðust vera hlynntir en 44
prósent kvenna.
Hrannar Pétursson, upplýsingafull-
trúi Alcan á íslandi, segir þetta stað-
festa það hversu mjótt er á munum
varðandi stækkun álversins. „Þetta
kemur okkur í raun ekki á óvart. I
sjálfu sér eru þetta ágætar fréttir en
það eina sem skiptir máli er það sem
kemur út úr þeirri endanlegu könnun
sem er 31. mars. Við erum allavega
voða bjartsýn á það að því meira sem
við fáum tækifæri til að hitta fólk og
kynna okkar sjónarmið í þessu máli
því líklegra sé að þetta geti endað með
góðri niðurstöðu fyrir okkur. En eins
og þarna kemur í ljós þá
eru þetta álíka stórir
flokkar þannig
að það virðast
vera spenn-
andi kosningar
framundan."
Niðurstöður
könnunar Blaðs
ins komu Lúðvík
Geirssyni, bæjarstjóra
Hafnarfjarðar, ekki á óvart: „Það
að íbúarnir skiptast nokkurn veg-
inn í tvær fylkingar í þessu máli
segir manni enn og aftur að málið er
mjög umdeilt. Það á eftir að vera líf í
þessari umræðu í bænum næstu vik-
urnar. Ég er alveg sannfærður um
það. Ég finn að íbúarnir eru mjög
meðvitaðir um að klára þarf þetta
verkefni sem framundan er. Það sem
skiptir öllu máli eins og staðan er
samkvæmt þessum tölum er að íbú-
arnir taki virkan þátt í kosningunni
og komi sinni skoðun til
skila í kjörkassann.“
420 Hafnfirð-
ingar með
kosningarétt
tóku þátt í
símakönnun
Blaðsins sem
framkvæmd
var þriðjudaginn
6. mars. Hlutfall svar-
enda er jafnt milli kynja. Spurt
var: „Ertu hlynnt/ur eða andvíg/ur
stækkun álvers Alcan í Straumsvík?"
76,9 prósent tóku afstöðu en 13,3 pró-
sent sögðust vera óákveðnir og 9,8
prósent hlutlausir.
ORÐLAUS
» síða 30
Lífsspekingur
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
er sveimhugi og lífsspekingur
sem gleymir yfirleitt ekki
mikilvægum hlutum. Hann er
Wagner-maður en hlustar
líka á Beethoven.
1
VEÐUR
» siða 2
Svalast í innsveitum
Sunnan og suðvestan 8-15
metrar á sekúndu og skúrir
eða él og stormél á Suðaust-
urlandi. Hiti 0 til 6 stig, sval-
ast í innsveitum og frystir
norðvestanlands á morgun.
VIÐTAL
Skrifar um Klepp
Óttar Guðmundsson
geðlæknir situr viö skriftir
þessa dagana en hann er
að Ijúka við sögu Klepps-
spítala sem á hundrað ára
afmæli á árinu.
ikáflPy Mjódd
Dalbraut 1
Hjarðarhaga 45
5 68 68 68
Ekki vitlaust
að fá. sér miða á
lotto.is eða á
næsta sölustað!
ferwwng' 2007
Frábær tilboð á rúmum, grjónastólum og púðum og fylgihlutum
OWarco
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavík sími: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504
Egilsstaðir: simi: 471 2954
Heilsurúm - dýrtur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar