blaðið - 13.03.2007, Blaðsíða 1
50. tölublaö 3. árgangur
þriðjudagur
13. mars 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ &
IFÓLK .
Magni Ásgeirsson segir rokkstjörnu-
lífernið engan dans á rósum en hann
er nýkominn heim úr tónleikaferð
frá Bandaríkjunum | s(ða i4
■ FERÐIR
Jón Geir Pétursson, skógfræðingur
hjá Skógræktarfélagi íslands, skipu
lagði 90 manna ferð til Rússlands
til að skoða skóglendi þar | síða3o
Úr mínus
í plús!
Síðustu námskeiðin
í Reykjavík fyrir hlé.
Síðasti séns!
aðeins 22 sæti
laus í kvöld.
Háskóli íslands Oddi kl.18:30
Verð: 9.000-
Pantaðu strax í sínta: 587 2580
20. mars P.eykiavík Háskéli íslsnds Oddi
Mikill meirihluti landsmanna óánægður með kvótakerfið:
Sjötíu prósent andvíg
■ Andstaðan á mismunandi forsendum ■ Kerfið hefur ekki skilað tiiætluðum árangri
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net
Ríflega sjötíu prósent eru andvíg kvótakerfinu
í sjávarútvegi, samkvæmt skoðanakönnun
Blaðsins. Tæplega þrátíu prósent eru hlynnt.
1 könnuninni kom mesta andstaðan fram í
Norðvesturkjördæmi.
Niðurstöðurnar koma Einari K. Guðfinnssyni
sjávarútvegsráðherra ekki á óvart. „Fyrri kann-
anir sem mig rekur minni til hafa einmitt falið í
sér mikla andstöðu við kvótakerfið. Hins vegar
er vandinn sá að andstaðan er á mismunandi
forsendum og engar vísbendingar eru um að ein-
hugur sé á bak við það sem koma skuli í staðinn."
Guðjón Ólafur Jónsson, þingmaður Framsóknar-
flokksins, segir að menn rugli oft auðlindaákvæði
stjórnarskrárinnar saman við fiskveiðistjórnunar-
kerfið. „Menn eru kannski að tala um tvo ólíka
hluti í einu sem skýrir niðurstöðuna að einhverju
leyti.“
Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, segir kvótakerfið ekki hafa
verið hagstætt byggðum landsins. „Það hefur ekki
skilað árangri í uppbyggingu þorskstofnsins og
það má leiða rök að því að kerfið hafi leitt til þess
að við höfum orðið af tækifærum í nýtingu fisk-
stofna.“ Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylking-
arinnar, segir að andstaða almennings snúi fremur
að eignarhaldsfyrirkomulaginu en aflamarkskerf-
inu. „Við höfum lagt til að eignarhaldinu verði
breytt og þetta verði sameign þjóðarinnar í stað-
inn fyrir séreign útgerðarmanna eins og nú er.“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, tekur í sama streng og Jóhann og telur
breytinga á eignarhaldi þörf. „Það eru vissir hlutir
í þessu kerfi sem særa réttlætiskennd almennings
og hafa lengi gert. Þar má nefna leigukvótabraskið
og þetta réttindaleysi byggðanna sem geta vaknað
upp við það einn góðan veðurdag að kvótinn er
bara farinn.“
Sjá einnig síðu 4
. ' ;V;j
1
Forsetinn og forsetafrúin Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff heimsóttu Ártúnsskóla í gær en skólinn hlaut Islensku menntaverðlaunin árið 2006 í flokki
skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun og farsælu samhengi I fræðslustarfi. Nemendurnir tóku á móti forsetahjónunum í gær, fluttu fyrir þau tónlist og kynntu þeim skólastarfið.
» síða 34
Á góöum staö
Brynhildur Pálsdóttir hönnuður
opnar dyrnar að vinnustofu
sinni sem hún deilir með
þrettán öðrum hönnuðum
og myndlistarmönnum á
góðum stað í bænum.
Átta síðna
sérblað um
mat fylgir
með Blaðinu
ídag
VEÐUR
» síða 2
Rigning sunnanlands
Vaxandi suðaustanátt eftir
hádegi, 8-15 metrar á sek-
úndu og rigning sunnan- og
vestanlands síðdegis. Miti
yfirleitt 0 til 7 stig, en vægt
frost norðanlands I nótt.
þiloland.is
RENAULT MEGANE II
Nýskr 06/2005,1600cc 4 dyra,
| Sjálfsklpftur, Ljósgrár,
Ekinn 44.000 þ.
Verd: 1.890.000
VD-592
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 01/2006,1600cc 5 dyra,
Flmmgíra, Ljósgrár,
Eklnn 15.000 þ.
Verd: 1.840.000
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 06/2006,1600cc 5 dyra,
Flmmgíra, Hvfftur,
Eklnn 1.000 þ.
Verð: 2.270.000
PD-174
575 1230
Renault
öruggari notaðir bílar
v'ár sST w w
^ r> r'
Veldu 5 styörnu
öryggi lífsins vegna
RENAULT MEGANE
SPORT TOURER
Nýskr: 06/2004,1600cc 5 dyra,
Flmmgíra, Qrár,
Ekinn 49.000 þ.
Verð: 1.690.000
TD-054
ferwiings2007
Frábær tilboð á rúmum, grjónastólum og púðum og fylgihlutum
cMarcð
Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svei
grjónapúðar