blaðið - 14.03.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 14.03.2007, Blaðsíða 1
 ORÐLAUS » síða 36 51. tölublað 3. árgangur miðvikudagur 14. mars 2007 ■ FÓLK Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir er ein þeirra sem leika í Píkusögum á Akureyri og segist ekkert vera feimin við hlutverkið Isíðai6 FRJÁLST, ÖHÁÐ & ÓKEYPIS! ■ MEWNIWG Þórdís Kristleifsdóttir, stjórnarmaður i Tangófélaginu, er ánægð yfir því að fá argentínska tríóið, Cuesta Arriba, hingaö fyrir tangóunnendur | síða26 Starfsmenn Impregilo í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar fá ríkulega bónusa: Geta tvöfaldað laun sín Herra ísland keppir í Kína Herra Island, Jón Gunn- laugurViggósson, er í Kína þar sem hann tekur þátt í keppninni um fegursta mann heims Jón segir komið fram við keppendur eins og kónga. ■ Mögulega dregið af yfirmönnum ■ Fylgst verður grannt með Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net Almennum starfsmönnum og yfirmönnum Impregilo við gerð aðrennslisganga Kárahnjúka- virkjunar bjóðast riflegar bónusgreiðslur náist að klára verkið á réttum tíma, fyrir 28. maí næstkom- andi. Nema greiðslurnar allt að 100 prósentum. Yfirmennirnir eiga það hins vegar á hættu að dregið verði tíu til fimmtán prósent af bónusum þeirra vegna slysa eða slælegrar frammistöðu al- mennra starfsmanna. „Ef rétt reynist, þá tel ég það fráleitt. Þetta getur orsakað óbærilega spennu á vinnustaðnum og getur gert stjórnun ruglingslega. Við munum klárlega skoða þetta,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins. Oddur Friðriksson, trúnaðarmaður starfs- manna við Kárahnjúka, kannast við umræddar bónusgreiðslur og veit af frádrætti yfirmann- anna. Hann segist ætla að fylgjast vel með á næst- unni. „Frádrátturinn á aðeins við verkstjóra og yf- irmenn. Þetta eru bónusar sem fyrirtækið leggur sjálft fram til að ná þessari dagsetningu og án samráðs við okkur að neinu leyti,“ segir Oddur. Aðspurður man Kristján ekki eftir fordæmum þess efnis að yfirmenn eigi það á hættu að dregið verði af þeim. Hann minnist þess ekki að hafa heyrt af því að þetta hafi staðið til. „I hreinskilni tel ég þetta verulega slæmt mál sem geti orðið á kostnað öryggismála. Starfsmennirnir geta þarna lent í klemmu gagnvart yfirmönnum sínum,“ segir Kristján. Ómar R. Valdimarsson, upplýsingafulltrúi Impregilo, segir það fyrirtækinu mikilvægt að tryggja öryggi starfsmanna og því hafi um- ræddur frádráttur bónusa hjá yfirmönnum verið settur inn. „Við bjóðum bónusa til að verkið verði klárað á réttum tíma. Ofan á það bjóðum við auka- bónus ef öryggismálin eru í lagi og frádrátturinn kemur ekki nálægt venjulegum launagreiðslum.“ Ómar segir verkið á áætlun. Bónusgreiðslurnar séu til að tryggja að svo verði áfram. Baugsmálið Vitnaleiðslur héldu áfram í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og var skýrsla tekin af Arnari Jenssyni, fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjóni hjá efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjóra, og Sveini Ingiberg Magnússyni, lögreglufulltrúa ríkislögreglustjóra, sem báðir unnu við rannsókn málsins. Sjá nánar á blaðsíðu 8. ORÐLAUS » síöa 34 Dugleg aö sauma Birta Isólfsdóttir vinnur meðfram námi í Fjölbraut í Breiðholti. Þrátt fyrir ungan aldur er hún dugleg að sauma, meðal annars hettupeysur fyrir Nakta apann. VEÐUR »síða2 H VIÐTAL » síður 17-24 Léttir til austanlands Suðvestan 8-15 metrar ásekúndu, en 15-18 vestantil fram eftir degi. Éljagangur um landið vestanvert, en léttir til aust- anlands. Hiti 0 til 6 stig. Átta síöna sérblað um sumarbústaði fylgir meö Blaðinu í dag Vann stríö um pylsur Iðnaðamjósnir og vörumerkjasvik komu við sögu í pylsustríðinu í Lundi á Skáni í Svíþjóð sem lauk með sigri Islendings- ins Sveins Vilhjálmssonar og fyrirtækis hans, Lundachark. Stríðið hafði þá varað í eitt ár, að sögn Sveins. Tvö dómstig höfðu úrskurðað að Alfred Johanssons charkuteri mætti ekki nota orðið Melle, sem Sveinn og félagar höfðu notað, í markaðssókn sinni og nú hefur fyrirtækið skuldbundið sig til að greiða þeim félögum 240 þúsund sænskar krónur í skaðabætur eða tæpar 2,3 milljónir íslenskra króna. Fetum í fótspor Breta Breska ríkisstjórnin kynnti nýtt lagafrum- varp I gær sem ætlað er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í Bretlandi um sextíu prósent fyrir árið 2050. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segir Islendinga standa öðrum á sporði. „Við erum sjálf með markmið í stefnu- mörkun ríkisstjórnarinnar sem jafnframt er framkvæmdaáætlun. Við stefnum að því að minnka losun gróðurhúsaloftteg- unda um 50 til 75 prósent fram til ársins 2050.“ Búiö aö kæra Náttúruverndarsamtök Islands lögðu í gær fram kæru gegn Reykjavíkurborg vegna veitingar framkvæmdaleyfis í tengslum við vatnslagnir Kópavogsbæjar í Heiðmörk þar sem leyfið samræmist ekki aðalskipulagi svæðisins. Landvernd hefur einnig boðað álíka kæru. „Þessi samtök virðast alltaf vera með ófrið og æsing til að þyrla upp ryki. Ég hreinlega velti fyrir mér tilgangi samtakanna og hvað vakir fyrir þeim," segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar. Að fengnu leyfi hefur bærinn aftur hafið framkvæmdir á svæðinu og er áætlaö að þeim Ijúki innan nokkurra vikna. VEXTIR FRÁ ... að það er hægt að létta AÐEINS Þannig er mál V Miðað við myntkörfu 4, Libor-vextir 29.1.2007. með vexti ... greiðslubyrðina. FRJÁLSI

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.