blaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 1
55. tölublað 3. árgangur
þriðjudagur
20. mars 2007
■ FOLK
Söngdívurnar Edda Austmann og Þór-
anna Jónsdóttir syngja um ástina. Þær
reyna að túlka þennan viða skala
sem ástin nær yfir |síða25
FRJALST, OHAÐ & OKEYPLS!
■ ÍÞROTTIR
Samkvæmt tölfræðinni er West Ham
með verstu vörn deildarinnar og er
versta sóknarliðið á útivelli. Chelsea
spilar bestu vörnina | síða3o
Nýting
orlculinda
er
þekkingar-
iönaöur
Fleiri hundruð sérfræðinga
starfa fyrir íslensk
orkufyrirtæki og íslensk
þekking á þessu sviði er nú
virkjuð um allan heim
Þingmaður telur nánast búið að lögleiða vændi á íslandi:
Vændishverfi mega rísa
■ Versta leiðin til að hafa uppi á melludólgum ■ Ýtir undir mansal
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net
Vændi hefur verið lögleitt á íslandi og ekkert er
því til fyrirstöðu að hér risi vændishverfi að er-
lendri fyrirmynd segir Atli Gíslason, lögmaður og
þingmaður Vinstri grænna. Alþingi samþykkti
um helgina breytingar á lögum sem gera það að
verkum að sala á vændi er ekki lengur refsiverð,
svo lengi sem hún er ekki til framfærslu. Hins
vegar var ekki gert refsivert að kaupa vændi.
„Ég tel að það sé nánast búið að lögleiða vændi
á íslandi. Það er reyndar bannað að vera mellu-
dólgur en það er ekki refsivert að stunda vændi
og þetta opnar leiðina fyrir mansal sem þrífst á
vændi,“ segir Atli. Hann telur því ekkert til fyr-
irstöðu að hér rísi svokölluð rauð hverfi. „Það
stendur í lögunum að auglýsingar á vændi séu
bannaðar. Maður getur hins vegar séð rauð ljós í
glugga og tengla inn á upplýsingar á Netinu. Opin-
berar auglýsingar eru túlkaðar þröngt. Rauð ljós
og kona sem afklæðir sig í glugga er ekki opinber
auglýsing.“
Agúst Ölafur Ágústsson, þingmaður Samfylking-
arinnar, gagnrýnir þessa breytingu. „Hér höfum
við meirihluta sem vill leyfa kaup og sölu á vændi
en vill ekki hafa það sýnilegt. Við höfum lagt
til að kaup á vændi verði gerð refsiverð en salan
verði refsilaus. Við teljum að sá sem selur vændi
sé þolandi. Hans mál á að leysa með félagslegum
úrræðum en ekki refsiréttarlegum úrræðum."
Ágúst segir að með þessum lögum verði erfiðara
að leita uppi melludólga. „Lögreglan tjáði okkur í
vændisnefnd að þessi leið væri sú versta til að hafa
uppi á milligönguaðilum. Á meðan bæði seljandi og
kaupandi vændis eru refsilausir vantar alveg hvat-
ann til að vísa á hann. Ef athæfi kaupandans væri
hins vegar gert refsivert gæti hann séð sér hag í því
að upplýsa lögreglu um milligönguaðilann þar sem
hann gæti séð fram á lægri refsingu.“
Atli tekur í sama streng og Ágúst. „Við höfum
séð það á súlustöðum að það er verið að brjóta
gegn dönsurunum og þær þora ekkert að hreyfa
sig. Margar af þessum konum sem koma frá austan-
tjaldslöndunum eru mansalskonur. Þær eru undir
hótunum um ofbeldi ef þær makka ekki rétt.“
Stífar æfingar vegna Músíktilrauna Þórður Páll Pálsson og Bergþór Frímann Sverrisson í hljómsveitinni Loobyloo æfðu fyrir fyrsta undankvöld Músíktilrauna í Loftkastalanum í gær,
en fyrsta undankvöld keppninnar fór fram i gærkvöldi. Fimmtíu hljómsveitir eru skráöar til leiks í ár og verður úrslitakvöldið svo haldið laugardaginn 31. mars.
» sída 36
Á ferð og flugi
Hjónaleysin Angelina Jolie
og Brad Pitt sifja ekki auðum
höndum. Parið hefur verið dug-
legt við að ferðast um heiminn
undanfarið í ættleiðingarhugleið-
ingum og við mannúðarstörf.
VEÐUR
Slydda og rigning
Hæg breytileg átt síðdegis
og víða léttskýjað, en skýjað
vestanlands. Gengur í
sunnan 10-15 með slyddu
og síöar rigningu, einkum
sunnanlands. Hiti 1-10 stig.
VIÐTAL
Átta síðna
sérblað um
konur fylgir
með Blaðinu
ídag
SAMORKA
Samtök orku- og veltufyrtrtækfa
RENAULT MEGANE
SPORTTOURER
Nýskr: 06/2004,1600cc 5 dyra,
Flmmgíra, Grár,
Eklnn 49.000 þ.
Vorð: 1.690.000
TD-054
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 06/2006,1600cc 5 dyra,
I Fimmgíra, Hvítur,
Eklnn 1.000 þ.
Verð: 2.270.000
.bilaland.is,
575 1230
Renault
öruggari notaðir bílar
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
RENAULT
MEGANE
Nýskn 01/2006,1C
Flmmgíra, Ljósgrár,
lGOOcc
dyra,
000
Eklnn
840
000
RENAULT
MEGANE
Nýskr: 06/2005,1600cc
Sjálfskiptur, Ljósgrár
dyra
Eklnn
000
000
Verð
S30
ferwwng^ 2007
Frábær tilboð á rúmum, grjónastólum og púðum og fylgihlutum
OUarco
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavík simi: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504
Egilsstaðir: sími: 471 2954
Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar