blaðið - 28.03.2007, Blaðsíða 1
61. tölublað 3. árgangur
miðvikudagur
28. mars 2007
■ FOLK
Hinn síungi poppsjarmör, Cliff Ri-
chard, er frægasti viömælandi Elsu
Maríu Jakobsdóttur sem er með inn-
slög i Kastljósi Sjónvarpsins | síða is
■ HEIMILI
María Másdóttir, eigandi Blómahönn-
unar, segir gula litinn vinsæl-
astan í páskaskreytingum, nema
kannski í naumhyggjunni | síða2o
Skýrsla fangelsismálastofnana á Norðurlöndum:
ísland eftirbátur annarra
í'
■ Fæstir starfsmenn á fanga ■ Minnsta aukning fanga ■ Fæstir starfsmenn í skilorðseftirliti
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net
Island sker sig úr í samanburði á fangelsismálum
á Norðurlöndum. Hér hófu fæstir afplánun
refsingar og fangatalan jókst minnst af öllum
löndunum á árunum 2001 til 2005. Hins vegar
fjölgaði skjólstæðingum sem sæta skilorðseft-
irliti mest á íslandi á þessu tímabili, þar voru
fæstir starfsmenn á hvern fanga árið 2005, fanga-
plássum fjölgaði ekkert og voru fæstir starfsmenn
á hverja 100 skjólstæðinga við skilorðseftirlit á fs-
landi. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu
fangelsismálastofnana á Norðurlöndum.
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofn-
unar ríkisins, segir ísland ekki eftirbát hinna nor-
rænu ríkjanna í fangelsismálum. „Við erum að
vissu leyti vel sett,“ segir Valtýr. „Við erum með
lægstu tölu fanga á Norðurlöndum og það er gíf-
urlega eftirsóknarverð staða. Þetta getur þó þýtt
það að við séum með erfiðari fanga en gerist að
meðaltali í þessum löndum því lægri tala getur
þýtt harðari kjarni."
Á Norðurlöndum hefur starfsfólki fangelsa
fækkað þrátt fyrir hækkandi fangatölu. ísland
lendir í neðsta sæti þegar fjöldi starfsmanna á
fanga árið 2005 er skoðaður. „Við höfum mannað
allar þær stöðuheimildir sem við höfum. Það
verður hins vegar að koma í ljós hvort við fáum
heimild til að fjölga þeim en við höfum leitað
eftir því að fá fleiri fangaverði vegna Akureyrar
og Kvíabryggju og stækkunarinnar þar.“
Þeim sem sæta skilorðseftirliti fjölgaði mest á Is-
landi árin 2001 til 2005 eða um 30 prósent. Á sama
tíma er hér einn starfsmaður á hverja 100 skjól-
stæðinga, sem í gær voru um 190 talsins. Hafa ber
í huga að inni í þessari tölu eru ekki teknir með
allir þeir starfsmenn sem koma að þessari þjón-
ustu og eru þeir í raun þrír samkvæmt stofnun-
inni. Valtýr segir að það væri þó æskilegt að fleiri
sinntu skilorðseftirlitinu.
Sjá einnig siðu 4
.N J Jyg- j w \ f f SSBtijL HHj
^ S* §
Heimsmet i háloftunum! Hinn norski Magnet setti sérkennilegt heimsmet í 40.000 feta hæö í gær. Hann hélt tónleika fyrir um 200 fulltrúa norsku pressunnar í júmbóþotu SAS af
stærstu gerð. Hann spilaði fimm lög sem tóku 20 mínútur í flutningi, en skilyrðið til að fá heimsmetið viðurkennt var að spila í 15 mínútur. Nánar um málið og metið á síðu sextán.
» SÍða 22
Eið úr umferð
Spænskir miðlar segja engar líkur
á því að Spánveriar tapi lands-
leiknum gegn íslendingum.
Aðeins þurfi að taka Eið úr
umferð. í níu viðureignum
hefur ísland unnið einu sinni
VEÐUR » síöa 2
Vægt frost
Vestan 3-8 metrar
á sekúndu og víða
bjartviðri. Hiti 1 til 8
stig að deginum, hlýjast
suðaustaniands, en víða
vægt frost í nótt.
SÉRBLAÐ » síður 17-40
24 síðna
sérblað um
fermingar
fylgir með SjMur og hvítagu# vinsælt
Blaðinu í dag Éll llti %’X gp? -esi:- sáiffi E.-íaá *g>im
Queen frá
^ 2ikr. 79.900
TwinXLfrá
kr. 49.900
Úr kjötborði
Nautahakk
998 kr.
kílóið
Opið alla daga frá kl. 10.-20
SP. R
Bæjarlind 1 - Sími 544 4510
®*Oo0
GRÍDARLEG
IVERÐLÆKKUN!
ALLT AÐ
150.0Ð0KR.
AFSLATTOR!
/ÍOMFOW^
' ^solulions/
'M 'w* */'/'* ->
/ Htiilsurum ^
Skipholti 35 // 105 Reykjavík
Sími 588 1955 // www.rekkjan.is
ferwwngs 2007
Frábær tilboð á rúmum, grjónastólum og púðum og fylgihlutum
OUkrco
Afgreiðslutími virka daya: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavík sínii: 533 3500 - Akureyri simi: 462 3504
Egilsstaðir. sími: 471 2954
Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar