blaðið - 03.04.2007, Blaðsíða 1
65. tölublaö 3. árgangur
þriðjudagur
3. apríl 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓK'
FÓLK
Davíð Þór Jónsson samdi spurning-
arnar í Gettu betur en það sem
vakti mesta athygli var jakkinn
hans á úrslitakvöldinu I sIða ie
■ KOLLA OG KULTURINN
Bergþór Pálsson flytur ásamt kór
Áskirkju og fleiri einsöngvurum Jóhann-
esarpassíu Johanns Sebastians Bachs,
í Fossvogskirkju á skírdag | síða28
Kátt í höllinni Kauphöllin á íslandi varö í gærmorgun hluti af norrænu kauphallasamstæðunni OMX Nordic Exchange. Um leiö fluttust 25 félög sem eru núna I Kauphöll Islands á sam-
eiginlegan lista OMX. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX, Nordic Exchange á Islandi og Jukka Ruuska, forstjóri OMX Nordic Exhange Marketplaces,
hringdu opnunarbjöllu OMX. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Islands, sagði við þetta tilefni að viðskiptalífið hefði þróast frá því að vera staðbundið i það að vera alþjóðlegt. Sam-
eining Kauphallarinnar við OMX væri hluti af þeirri þróun.
Niðurstaöa atkvæðagreiðslunnar í Hafnarfirði:
Ovissa um vald til breytinga
■ Lagaramminn óskýr ■ Ný sveitarstjórn þyrfti að láta kjósa á ný
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
„Það er þessi sveitarstjórn sem ákveður fyrirfram
að fylgja niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Hún
bindur ekki hendur næstu sveitarstjórnar," segir
Trausti Fannar Valsson, stundakennari og doktors-
nemi við lagadeild Háskóla fslands, um atkvæða-
greiðsluna í Hafnarfirði um breytt deiliskipulag
vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Gunnar
Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði,
hefur sagt að ef lögin ætluðust til að niðurstaða
væri bindandi bara út kjörtímabilið myndu þau
segja það. Það geri þau hins vegar ekki.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 31. janúar
2007 var samþykkt að boða til almennrar atkvæða-
greiðslu meðal kjósenda um deiliskipulagstillögu
sem gerir ráð fyrir stækkun álvers Alcan í Straums-
vík í 460 þúsund tonna ársframleiðslu. Ákveðið
var að niðurstaða kosninganna yrði bindandi.
„Næsta sveitarstjórn getur ákveðið að deiliskipu-
lagstillagan eigi að gilda en hún yrði þá að fara í
gegnum allt það ferli sem skipulagsbreytingar
kalla á. Hún hefur lagalegt svigrúm til þess en
þá vaknar spurningin um pólitíska svigrúmið,“
bendir Trausti á.
Gunnar Helgi er þeirrar skoðunar að eðlilegast
sé að líta svo á að sá aðili sem hafi ákveðið viðkom-
andi hlut þurfi að koma að hliðstæðri ákvörðun
aftur, það er að segja að efna þurfi aftur til íbúa-
kosninga vilji ný sveitarstjórn fara gegn núver-
andi niðurstöðu. Ákvörðun sé ekki á valdi nýrrar
bæjarstjórnar.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði, segir alltof snemmt að
velta vöngum yfir mögulegum breytingum á
deiliskipulagi komist sjálfstæðismenn til valda
að loknum næstu sveitarstjórnarkosningum.
„Þetta hefur ekkert verið rætt í okkar röðum. Nið-
urstaðan er svona í dag og menn verða að taka
henni.“
Sjá einnig síðu 4
MENNTIIN
» síða 30
Miklar breytingar
Vilborg Jóhannsdóttir lektor
segir miklar breytingar hafa
verið gerðar á námsskipu-
lagi Kennaraháskóla
íslands sem taka gildi á
næsta ári.
VEÐUR
» síða 2
Hlýjast suöaustantil
Suðvestan og vestan
5-13, hvassast norð-
vestantil, en bjartviðri
eystra. Hiti 5 til 13 stig
að deginum, hlýjast
suðaustantil.
SERBLAÐ
Átta síöna
sérblað um
bíla fylgir
með Blaðinu
ídag
Þriöjudag^tilboð
Úr kjötborði
Kjötfars
421 kr.
kílóið
Opið alla daga frá kl. 10.-20
Renault
öruggari notaðir bílar
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
RENAULT LAGUNA II
Nýskr: 11/2003, lSOOcc
5 dyra, Fimmgíra, Rauður, Ekinn
70.000 þ.
Verð: 1.680.000
FV-686
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 08/2003,1600cc
5 dyra, Fimmgira, Blár, Ekinn
69.000 þ.
Veró: 1.350.000
OX-888
RENAULT MEGANE II
Nýskr: 06/2005,1600cc
5 dyra, Fimmgíra, Ljósgrár, Ekinn
29.500 þ.
Verð: 1.790.000
TT-641
RENAULT SCENIC II
Nýskr: 06/2004,2000cc
5 dyra, Fimmgíra,, Eklnn 30.000 þ.
Verð: 1.930.000
VJ-071
bilolond.is
575 1230
Termvnfy 2007
Frábær tilboð á rúmum, grjónastólum og púðum og fylgihlutum
OWarcö
Afgreiöslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavík sími: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504
Egilsstaðir: sími: 471 2954
Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar