blaðið - 04.04.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 04.04.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS » síða 36 66. tölublað 3. árgangur miðvikudagur 4. apríl 2007 FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYPIS! M FÓLK Kristín Sævarsdóttir segir að von sé á um 100 konum víðsvegar að sem eiga það sameiginlegt að vera bæði lesbíur og blakáhugakonur | síða ie ■ MEWMIWG María Sigurðardóttir leikstjóri frumsýnir Hálsfesti Helenu í Pjóðleikhúsinu 14. apríl en það hefur vakið athygli víða | síða28 Æft fyrir heimsreisu Björk Guömundsdóttir æfir nú ásamt stórhljómsveit fyrir tónleikaferðalag um heiminn í tilefni af útgáfu nýjustu plötu sinnar Volta. Fyrstu tónleikarnir verða í Laugardalshöll annan páskadag. Miðasala hefur gengið vel og eru fáir miðar eftir í stúku. Ljósmyndari Blaðsins leit inn á æfingu hjá Björk í Loftkastalanum í gær og tók forskot á sæluna. Hugmynd dómsmálaráðherra um listrænt starf meðal fanga rætist: Rokk og ryþmi á Hrauninu ■ Samstarf við Listaháskólann ■ Skapa eigið tónverk ■ Fangar áhugasamir Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net ,Þetta mun mótast af tónlistarsmekk þátttakenda og égþykist vita fyrirfram að þetta verði mjög ryþm- ískt, skemmtilegt og kraftmikið,“ segir Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Islands, um námskeiðið í skapandi tónlistarmiðlun sem fyrir- hugað er að halda fyrir fanga á Litla-Hrauni síðar í þessum mánuði. Um er að ræða samstarfsverkefni Listaháskóla íslands og Litla-Hrauns. Hjálmar segir tilgang námskeiðs í skapandi tónlistarmiðlun annars vegar vera þann að þjálfa nemendur Listaháskóla íslands í að vinna með mismunandi hópum samfélagsins og hins vegar að gefa hópunum tækifæri til að taka þátt í tón- listarflutningi og tónlistarsköpun. „Skapandi tón- listarmiðlun felst í því að virkja fólk til að leggja fram eitthvað sjálft í tónlist og það er ekki skilyrði að það kunni éitthvað fyrirfram í tónlist,“ tekur Hjálmar fram. Hugmyndina að námskeiði fyrir fanga átti Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, að því er Hjálmar greinir frá. „Ég greip hana á lofti og hitti fangelsismálastjóra sem sýndi þessu strax mikinn áhuga og við höfum stýrt verkefninu inn á þessa braut. Ég hef farið í heimsókn á Litla- Hraun og hitt fulltrúa fanga sem sýndu þessu mikinn áhuga.“ Sjá einnig síðu 4 IÞROTTIR » síða 32 Stórkostlegt uppgjör er framundan í Meistaradeildinni kvöld. Roma mætir Manchester United og Valencia sækir Chelsea heim. UEÐUR Léttir til Lægir og léttir til V-lands, en snýst í fremur hæga norðlæga átt með stöku skúrum eða éljum um landið norðanvert síðdegis. Kólnandi, einkum norðantil. » síða 2 Sérbiau heimili og hönnun fylgir með Blaðinu ídag Bloc Party á Iceland Airwaves Eldar Ástþórsson, kynningarfulltrúi lceland Airwaves, segir að hljóm- sveitin Bloc Party hafi staðfest komu sína á hátíðina í ár. Hann er sannfærður um að hátíðin verði sú besta til þessa. FRETTIR Hitamet frá 2003 féll Hitamet féll á Austurlandi í gær en hitinn mældist 21,2 stig á sjálfvirkum mæli í Neskaupstað síðdegis. Þetta er mesti hiti sem mælst hefur hér á landi í apríl- mánuði. Fyrra metið var 21,1 gráða en sá hiti mældist í Strandhöfn á Vopnafirði 18. apríl 2003. Krefjast innköllunar Eðalvörur krefjast þess að Rautt Royal Ginseng verði innkallað úr verslunum fyrir föstudag. Þá krefst fyrirtækið 4,5 milljóna í skaöabætur fyrir sölutjón. Fangelsismál í lamasessi Áttatíu og fimm prósent fangavarða landsins hafa sagt upp störfum eða lýst því yfir að þeir hyggist gera það ef laun þeirra hækka ekki. Mióvikudagstilboó Úr kjötborði Nautahakk 998 kr. kílóið Opió aila daga frá ki. 10.-20 SP, R ____Bæjarlind 1 - Sími 544 4510_ fervrwn^ 2007 Frábær tilboð á rúmum, grjónastólum og púðum og fylgihlutum Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stólar - sófar - grjónapúðar OUarcð Afgreiðslutimi virka daga: 10-18 og lau.: 11-16 Reykjavík sími: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504 Egilsstaðir: sími: 471 2954

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.