blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 1
68. tölublað 3. árgangur
miðvikudagur
11. apríl 2007
■ FÓLK .
Esther Ösp Gunnarsdóttir á það
sameiginlegt með 2 prósentum mann-
kyns að vera rauðhærð og hún heldur
úti vefsíðu fyrir rauðhausa | síða ie
■ KOLLA OG KULTURINN
Jóhann Páll Valdimarsson, útgáfu-
stjóri JPV, er í öflugri frumútgáfu á
bókum í kilju en áður var bóka-
útgáfa bundin við jólin | sIða26
Sjúkraflutningar í dreifbýli:
Fá falleinkunn fagfólks
■ Samvinna of lítil ■ Skortir yfirsýn ■ Menntun áratugum á eftir
Eftir Þröst Emilsson the@bladid.net
Sjúkraflutningum í dreifbýli er ábótavant og brýnt
er að heilbrigðisyfirvöld taki stefnumarkandi
ákvarðanir. Menntunarstig sjúkraflutningamanna
á landsbyggðinni er mun lægra en á höfuðborg-
arsvæðinu og víða reynist erfitt að fá fólk með
starfsréttindi til starfa. Þetta kemur fram í grein í
nýjasta hefti Læknablaðsins. Þar bendir fagfólk á
að miklum fjármunum hefur verið varið til utan-
spitalaþjónustu í dreifbýli og framfarir hafi óneitan-
lega verið miklar á síðustu árum. Ýmislegt megi þó
betur fara. Þau segja samvinnu milli rekstraraðila
of litla og enginn einn aðili virðist hafa heildaryfir-
sýn yfir málaflokkinn.
Þá segir að grunnnám sjúkraflutningamanna
hér á landi taki þrjá vikur eða 128 klukkustundir
sem sé svipað og var í Svíþjóð fyrir 40 árum. Þar
í landi séu sjúkrabílar nú mannaðir með hjúkrun-
arfræðingum sem hafa lokið 3-4 ára háskólanámi.
Kanna þurfi hvort ekki megi fækka sjúkrabílum í
dreifbýli og fækka sjúkraflutningamönnum í hluta-
starfi. Með því móti væri einhverjum þeirra kleift
að afla frekari menntunar, sinna sjúkraflutningum
í fullu starfi og auka færni sína.
Greinarhöfundar víkja að Landhelgisgæslunni
og sjúkraflugi. Sjúkraflutningamenn með neyðar-
flutningaréttindi fara með í öll flug frá Akureyri og
hafa gert svo frá 1997. Ekki er þó um eiginlega vakt
að ræða þar sem ekki hefur tekist að fá greiðslur
fyrir vaktir sjúkraflutningamannanna. „Þeir hafa
því í heilan áratug fórnað miklu af frítíma sínum
til að geta sinnt þessu mikilvæga starfi. Þetta fyr-
irkomulag er löngu gengið sér til húðar og þörf á
breytingum hið fyrsta, segja greinarhöfundar.“
í niðurlagi greinarinnar segir að ljóst sé að íbúar
landsbyggðarinnar geti aldrei setið við sama borð
og þeir sem búa nálægt Landspítala. Höfundar telja
að það sé nauðsynlegt að vinna markvisst að þróun
bráðaþjónustu utan spítala til að tryggja að sem
flestir landsmenn og sjómenn á hafi úti eigi kost á
sérhæfðri.aðstoð eins fljótt og tök eru á þegar slys
eða bráð alvarleg veikindi eiga sér stað. Huga þurfi
að nýjum leiðum til að tryggja að nýting fjárfest-
inga og mannauðs sé sem best.
Miövikudagstilboö :
Úr kjötborði
Nautahakk
998 kr.
kílóið
Opió alla daga frá kl. 10.-20
SP. P
Víkingalottó óskar eftir
vinningshafa að tvöföldum potti
upp á 120 milljónir. Viðkomandi
verður að uppfylla eftirfarandi
skilyrði: Kaupa miða.
Guttar i gráum skugga Veðrið hefur verið með skrautlegasta móti síðustu daga og landsmenn hafa fengið sýnishorn af því sem næst öllum tegundum veðurs dagana kringum pásk-
ana. Enda vart við öðru að búast á þessum árstíma. Hitasveiflur eru tíðar og þá blasir við sjón sem þessi, uppgufun verður ör og dulúðugt mistur myndast.
0RÐI *"<S
» síða 34
Tískukona
Helgu Lilju Magnúsdóttur fata-
hönnuð langar í fallega sniðna
slá og er sama hvort hún sé
notuð eða ný, dýr eða ódýr en
hún vonast til að finna hana í
Bandaríkjunum.
VEÐUR
Hlýnandi
Vaxandi suðlæg átt,
10-15 ogrigning um
hádegi, en úrkomu-
lítið norðanlands. Hiti
kringum frostmark, en
hlýnar í dag.
» síða,
SERBLAÐ
» síður f 7-24
Átta síöna
sérblað um
börn og upp-
eldi fylgir meö
Blaðinu í dag
18_
20
H^jbreyttnámaafni6Skólavefnum i
iffll
Einnig er í boði ofurpottur upp
á 280 milljónir og bónuspottur
upp á 12 milljónir.
LtTT«
Alltat á mi&vikudögum!
lotto.is
Ef Ofurtala vikunnar er ein af útdráttartölunum
sex bætist Ofurtölupottur viö fyrsta vinninginn.
VEXTIR FRA
AÐEINS
O OO/.
r Amm # V
3
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 29.1.2007.
Þannig er má
með vexti ...
... að það er
hægt að létta
greiðslubyrðina
f
FRJÁLSI