blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2007
blaöiö
INNLENT
REYKJAVÍK SUÐUR
D-listi með 40,4%
Sjálfstæðisflokkurinn fær 40,4% fylgi í Reykjavík-
Suður samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup fyrir
RÚV og Morgunblaðið. VG er með 23,6%. Samfylk-
ingin fær 22,6% og Framsóknarflokkur 4,9%. Frjáls-
lyndir mæast með 4,2% og (slandshreyfingin 4,1%.
OLÍUFÉLAGIÐ EHF.
ESSO-merkið lagt af
Olíufélagið ehf hættir að selja eldsneyti á bíla undir merkjum
Esso á næstu dögum og sparar að sögn með því um fimmtíu
milljónir króna á ári. Félagið greiðir þessa upphæð líkt og stef-
gjöld fyrir að fá að nota vörumerkið. Nýtt nafn hefur ekki verið
kynnt en Sjónvarpið greindi frá því að nýtt nafn yrði Naust.
BORGARFJÖRÐUR
Hætt komnir vegna gasleka
Þrír erlendirferðamenn í húsbíl fengu kolmónoxíð-
eitrun um helgina meðan þeir sváfu í húsbíl sínum
í Borgarfirði. Þeir komust út úr bílnum við illan leik.
Líklegt er talið að gas hafi lekið úr ísskáp, sem var í
gangi á meðan mennirnir sváfu.
Tekin með
kíló af kókaíni
Hollenskt par hefur verið
úrskurðað í gæsluvarðhald til 27.
apríl. Var parið tekið með rúmt
kíló af meintu kókaíni í fórum
sínum þegar það kom með flugi
frá Amsterdam til íslands á föstu-
dagskvöldið. Voru þau með efnið
falið bæði innvortis og útvortis.
Bretland:
Bannað að
nota fósturvísa
Mannréttindadómstóllinn í
Strasbourg hefur úrskurðað að
breska konan Natallie Evans
geti ekki notað frysta fósturvísa
til að eignast börn. Konan varð
ófrjó effir að hafa gengist undir
krabbameinsmeðferð árið 2001,
en egg úr konunni höfðu áður
verið tekin úr og frjóvguð með
sæði þáverandi sambýlismanns
hennar. Eftir að þau slitu sam-
bandi árið 2002 fór sambýlis-
maðurinn hins vegar fram á
að fósturvísunum yrði eytt.
Hin 34 ára Evans leitaði til
Mannréttindadómstólsins eftir
að hafa rakið máhð innan breska
dómskerfisins án árangurs.
k
n
so
m
e| Kosningabarattan hafin l
, ; ■'--t Forysta Framsóknarflokks- ll
ins kynnti í gær stefnumál |
, sín fyrir Alþingiskosningarn- l’
Marímaí. BMit/tyþór |
Stefnuskrá Framsóknarflokksins kynnt í gær:
Formúla að góðu lífi
■ Kostnaður á annan tug milljarða ■ Evrópusambandsaðild ekki á dagskrá
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
„Ég held að hér liggi fyrir mjög sterk
stefnuskrá sem höfðar til fólks.
Hér leggjum við upp í fjögurra
ára ferðalag þar sem við bjóðum
þjóðinni upp í rútuna okkar. Fram-
sóknarflokkurinn hefur sýnt það á
tólf árum að hann hefur umbreytt
íslandi í land tækifæranna í góðu
samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.
Þannig að þetta er formúla að góðu
lífi áfram,“ segir Guðni Ágústsson,
landbúnaðarráðherra, um stefnu-
skrá Framsóknarflokksins sem
flokksforystan kynnti í gær.
Stefnuskráin ber yfirskriftina
„árangur áfram - ekkert stopp“
og vísar til málflutnings Vinstri
Grænna, Samfylkingarinnar og
íslandshreyfingarinnar sem hafa
á stefnuskrá sinni að stöðva eða
slá á frest fyrirhuguðum stóriðju-
framkvæmdum. „Við segjum ekki
aðeins árangur áfram. Við segjum
líka ekkert stopp. Framsóknar-
menn eru þeir sem þeir
segjast vera og við veifum
engum eftirlíkingum,“
sagði Jón Sigurðsson,
formaður flokksins, við
tilefnið.
Hækkun skattleys-
ismarka í 100 þúsund
krónur, afnám stimpil-
gjalda, hækkun frítekju-
marks á lífeyrisþega,
ókeypis tannvernd til 18
ára aldurs og tvöföldun þjóð
vega út frá höfuðborginni er
meðal þess sem finna má í
stefnuskránni. Jón segir að með
stefnuskránni sé Framsóknarflokk-
urinn ekki að efna til loforðaveislu,
heldur sé um ábyrga og raunhæfa
stefnu að ræða. Hann segir vel
mögulegt að framfylgja stefnu
flokksins. „Við erum ekki að tala
um að hafist verði handa um öll
þessi verkefni í júní næstkomandi.
Við erum að tala um næstu fjögur
ár. Það verður haldið áfram í efl-
ingu og þroska
viðskiptalífs, at-
vinnulífs og iðn-
þróunnar á næstu
árum. Það er
meðal forsendna
þess að ríkissjóður
sé það sterkur
áfram að hann geti
staðið undir vax-
andi framlögum."
• ■ Aðspurður segir
. Jón að kostnaður við fram-
kvæmd stefnumálanna nemi á
annan tug milljarða og dreifist sá
kostnaður á allt næsta kjörtima-
bil. Þar af mun hækkun skattleys-
ismarka úr 90 þúsundum í 100
þúsund kosta ríkissjóð um 10 millj-
arða, breyting fjölbýla í einbýli á
dvalar- og hjúkrunarheimilum
kostar 2 til 3 milljarða og lækkun
virðisaukaskatts á lyf kostar 400 til
600 milljónir króna.
Framsóknarflokkurinn hefur,
að Samfylkingunni undanskilinni,
verið flokka jákvæðastur í garð
aðildar að Evrópusambandinu.
Evrópumál eru fyrirferðarlítil í
stefnuskránni og segir eingöngu að
tryggja verði framtíðarhagsmuni
þjóðarinnar í Evrópu, í samstarfi
við ESB innan EES. Valgerður
Sverrisdóttir, utanríkisráðherra,
segir að Framsóknarflokkurinn
hafi einn flokka mótað samnings-
markmið fyrir hugsanlegar aðildar-
viðræður við ESB. Hins vegar séu
aðstæður þannig í dag að ísland
er ekki gjaldgengt fyrir aðild að
sambandinu og myntbandalaginu.
„Þetta eru hlutir sem þurfa fyrst að
komast í lag áður en við förum að
hugsa það í alvöru hvort það þjóni
hagsmunum Islands að gerast aðili
að ESB. Þetta er ekki knýjandi mál
í dag.“
VW Fox eða sambærilegur
Vika í Pýskalandi
frá
18.400
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavöm, flugvallargjald
og skattar.
Bókaðu bílinn heima fyrir 1. maí
- og fáðu 1.000 Vildarpunkta
522 44 00 • www.hertz.is
CANTAT-3 sæstrengurinn:
Viðgerð hefst í dag
Áformað er að gera við Cantat-3
sæstrenginn milli íslands, Færeyja
og Skotlands á næstu dögum. Við-
gerðarskipið CS Pacific Guardian
lagði af stað frá Bermúda fyrir
nokkrum dögum áleiðis á bilunar-
stað CANTAT-3 sæstrengsins suð-
vestur af íslandi, en strengurinn
hefur verið bilaður þar síðan 16.
desember.
Áætlað er að skipið verði komið
á bilunarstað í dag og að viðgerðin
sjálf taki 5 til 7 daga.
Búast má við nokkurra klukku-
tíma rofi á umferð áður en viðgerð
hefst og þegar henni verður lokið,
en að öðru leyti ætti viðgerðin ekki
að hafa mikil áhrif á umferð um
CANTAT-3 til Evrópu.
INFORMATION HIGHWAY TO THE NORTH
FAR
Cantat-3 Sæstrengurinn
tengir saman Island, Færeyjar
og Skotland.