blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2007 blaöift UTAN ÚR HEIMI Átök við tsjadneska herinn Stjórnvöld í Súdan segja að sautján hafi látist og fjörutíu særst í átökum stjórnarhersins og hers tsjada í Darfúr-héraði um helgina. Tsjadar neita því að hafa farið yfir landamærin og segja að þeir hafi barist við uþþreisnarmenn við landamærin. Brixtofte fær tvö ár tii viðbótar Peter Brixtofte, fyrrum þorgarstjóra Farum í Danmörku, var dæmdur í tveggja ára fangelsi í gær fyrir fjármálam- isferli. Brixtofte hafði áður verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa látið Farum greiða verktaka of hátt verð fyrir byggingaframkvæmdir á vegum borgarinnar. Fjölga hermönnum í Afganistan John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, hefur tilkynnt að Ástralar muni tvöfalda fjölda hermanna sinna í Afganistan á árinu, úr 550 í rúmlega 1.000. Howard sagði þetta nauðsyn ef ætlunin væri að hafa betur gegn uppreisnarmönnum talibana. Sprengjuárás í írak: Fjórtán létu lífið Fjórtán létust og rúmlega tuttugu særðust þegar kona sprengdi sjálfa sig í loft upp við skráningarstöð nýliða í lögreglunni í bænum Muqd- adiya í frak í gær. Konan var klædd svörtum kufli og sprengdi sjálfa sig innan um hóp rúmlega tvö hundruð manna. Fórnarlömbin voru bæði væntanlegir lögreglumenn og menn sem áttu leið um staðinn. Fátitt er að konur séu í hlut- verki sjálfsvígssprengjumanna, þó að dæmi þess séu í írak. Þannig sprengdi kona sjálfa sig og tugi ann- arra við Háskólann í Bagdad, höfuð- borg íraks, í febrúar siðastliðnum. Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Svcrrir Einarsson Hermann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar f fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar r LYSING.IS // 540 1500 Hjá Lýsingu bjóðum við þér sniðuga lausn til þess að eignast draumabílinn. Þú getur nálgast bllafjármögnun Lýsingar hjá bllaumboöum, bflasölum og ráðgjöfum okkar. Bílasamningur // Bílalán // Einkaleiga Þarftu betri bíl? Vinstri grænir vilja útrýma fátækt úr íslensku samfélagi: Falleinkunn fyrir ríkisstjórnina Vilja útrýma fátækt Ögmundur Jónasson kynnti igær aðgerðaáætl- un Vinstri Grænna til að bæta kjör iágtekjuhópa. Blaöiö/Frikki ■ Kostnaður við áætlunina 12 milljarðar ■ Skattar verða ekki hækkaðir Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net „Við teljum að þjóðfélagið eigi ekki annarra kosta völ en að ráðast að þessu þjóðfélagsmeini sem fátæktin er. Við erum sannfærðir um að öll þjóðin vilji taka á þessum málum af alvöru.“ segir Ögmundur Jónasson, varaformaður Vinstri grænna. Flokk- urinn lagði í gær fram aðgerðaáætlun til að bæta kjör lágtekjuhópa og út- rýma fátækt úr islensku samfélagi. í máli sinu gagnrýndi Ögmundur ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks sem hann segir hafa vegið mjög að tekjulægstu hópunum. Sagði hann falleinkunn fyrir ríkis- stjórnina að misrétti í íslensku sam- félagi hafi aukist á undanförnum árum. Ögmundur gagnrýndi einkum aukna gjaldtöku í menntakerfinu og heilbrigðisþjónustu sem hann segir hafa aukist jafnt og þétt og nú sé svo komið að tekjulítið fólk eigi þess ekki lengur kost að nýta sér sjálfsagða grunnþjónustu. Þá hafi einnig verið dregið úr félagslegri aðstoð á öðrum sviðum sem ýtt hafi undir aukinn jöfnuð í samfélaginu. Tillögur VG miða að því að fjar- lægja þröskulda á ýmsum sviðum velferðarmála, svo sem í heilbrigð- iskerfinu og húsnæðiskerfinu. Þá eru einnig nefndir þröskuldar sem standa í vegi barnafjölskyldna, inn- flytjenda og öryrkja og aldraðra sem VG hyggst fjarlægja. Meðal þess sem boðað er í áætluninni er afnám komugjalda á heilsugæslustöðvar, ókeypis tannvernd til 20 ára aldurs, aukin hlutdeild rikisins í húsa- leigubótum, trygging á námi í heimahéraði til 18 ára aldurs, hækkun grunnlífeyris aldraðra og öryrkja og gjaldfrír leikskóli um land allt. Aðspurður hver sé kostn- aðurinn við þessar tillögur segir Ögmundur hann á bil- inu 10 til 12 milljarðar. „Við bendum hins vegar á að út- gjaldaaukinn er í sumum tilvikum til þess fallinn að spara peninga þegar fram líða stundir, t.d. varðandi tannheilsu barna. Þegar kjör öryrkja og fátækra lífeyrisþega rýmka, skila þau sér aftur inn í efnahagsstarf- semina. Það er því erfitt að reikna upp á krónu og eyri kostnaðinn til lengri tíma litið." Hann ítrekar að ekki verði gripið til skattahækkana umfram það sem verið hefur á und- anförnum árum til að mæta þessum kostnaði. „Við teljum að það sé svig- rúm til þessara ráðstafana. Ég bendi á að það var afgangur af tekjum ríkis- sjóðs á síðasta ári,“segir Ögmundur. Hins vegar segir hann koma til greina að endurskoða dreifingu skattbyrðinnar og er fjármagns- tekjuskatturinn nefndur í því samhengi. „Við höfum sett fram tillögur umaðhækkafjár- magnstekjuskatt úr 10 prósentum í 14 prósent, en þó á þann hátt að sett verði nýtt frí- tekjumark fyrir fjármagns- tekjur sem nemur 120 þúsund krónum á ári. Það myndi undanskilja nánast alla smásparendur í landinu. Það sem breytist er að hákarlarnir, þeir sem hafa gríðarmiklar tekjur af fjármagni, kæmu til með að borga til samfélagsins í sömu átt og launafólk er að greiða. En þegar á heildina er litið og skattastigið er skoðað heil- drænt, þá erum við ekki að tala um að hækka skatta frá því sem verið hefur á undanförnum árurn." Bókin Delicious Iceland: Völundur verðlaunaður Bókin Delicious Iceland eftir Völund Snæ Völundarson, mat- reiðslumann, og Hrein Hreinsson, ljósmyndara, nlaut sérstök heið- ursverðlaun á The Gourmand Cookbook Awards síðustu helgi. Eru þetta virtustu verðlaun heims í matar- og vínbókmenntum og gjarnan kölluð Óskarsverðlaun greinarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sölku bókaútgáfu. í umsögn dómnefndar kom fram að bókin væri sérstaklega glæsileg og tækist á einstakan hatt að sameina matreiðslu, menningu, bókmenntir og sagnfræði sem væri óvenulegt þegar matreiðslubækur væru annars vegar. Þetta væri bók á heimsmælikvarða sem bæri að þýða yfir á sem flest tungumál. Verðlaunaafhendingin fór fram laugardagskvöldið 7. apríl í Peking í Kína en þetta var í tólfta sinn sem þau eru veitt. Árlega eru yfir sex þús- und bækur skráðar í keppnina frá sextíu löndum. Höfundar bókarinnar eru að undirbúa tökur sjónvarpsþátt- anna Delicious Iceland. Unnið verður út frá þeirri hugmyndafræði sem bókin byggir á en megin markmið þáttanna er viðamikil kynning á landi og þjóð með sérstakri áherslu á matarmenningu og matarhefðir landsins. Farið verður á afskekkta staði, fæðunnar aflað, hún unnin og fyigst með hvernig töfraðar eru fram dásemdir úr einni ferskustu matarkistu heims í stórbrotnu landslagi. Lítil veitingahús víða um land verða heimsótt, sem og bestu veitingastaðir Reykjavíkur og leitast verður við að sýna ísland í nýju ljósi.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.