blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2007 blaöiö UTAN ÚR HEIMI tyrklandT Flugvél rænt Maður rændi farþegaflugvél á leið frá Diyarbakirtil Istanbúl í Tyrklandi í gær. Maðurinn neyddi flugmanninn til að lenda í höfuðborginni Ankara, en gaf sig fram eftir lendingu. 175 manns voru um borð. ÚKRAÍNA Dómarar undir þrýstingi Fimm af átján dómurum í stjórnlagadómstól Úkra- ínu hafa hótað að draga sig í hlé vegna hótana liðsmanna forsætisráðherrans Viktor Janúkóvítsj. Dómstóllinn ræðir nú hvort Jútsjenkó forseti hafi verið í rétti að rjúfa þing og boða til kosninga. Tveir drepnir í Casablanca Tveir grunaðir hryðjuverkamenn létust í aðgerðum öryggislögreglu í borginni Casablanca í Marokkó um helgina. Annar mannanna var skotinn til bana af lögreglu en hinn sprengdi sjálfan sig í loft upp eftir að lögregla hafði króað hann af. Lögregla handtók átján manns i tengslum við sjálfs- vígssprengjuárás á internetkaffihúsi í borginni í síðasta mánuði. Austur-Tímor: Ramos-Horta leiðir Fyrstu tölur benda til þess að nóbelsverðlaunahafinn Jose Ramos-Horta, forsætisráðherra Austur-Tímor, hafi hlotið flest atkvæði, eða þrjátíu prósent, í forsetakosningum landsins sem fram fóru um helgina. Eftir að fimmtungur atkvæða hefur verið talinn bendir allt til þess að þörf sé á annarri umferð, þar sem enginn frambjóðendanna hefur hlotið yfir helming atkvæða. Erlendir kosningaeftirlitsmenn segjast ánægðir með framkvæmd kosninganna, sem eru þær fyrstu frá því að landið hlaut sjálfstæði frá Indónesíu árið 2002. Reikn- að er með að endanlegar tölur liggi fyrir í upphafi næstu viku, en síðari umferð kosninganna munu fara fram í næsta mánuði. Stríðsglæpadómstóllinn í Serbíu: Serbar dæmdir fyrir aftökur ■ Hent í skurð og skotnir í bakið ■ Myndbandsupptaka af morðunum Eftir Atla fsleifsson atlli@bladid.net Stríðsglæpadómstóllinn í Serbíu dæmdi fjóra serbneska hermenn í margra ára fangelsi í gær fyrir að hafa skotið sex unga bosníska músl- íma til bana í Srebrenica í Bosníu árið 1995. Ódæðið náðist á mynd- band og voru foringi sveitarinnar og samverkamaður hans dæmdir í tuttugu ára fangelsi, en hinir tveir fengu þrettán og fimm ára fangelsi. Fimmti maðurinn sem ákærður var hins vegar sýknaður. Réttar- höldin voru þau fyrstu sem fara fram í Serbíu vegna fjöldamorð- anna í Srebrenica, þar sem nærri átta þúsund múslímskir karlmenn og drengir voru teknir af lífi. Saksóknarar segja hermennina hafa tilheyrt hersveit sem gekk undir nafninu Sporðdrekarnir. Á myndbandinu sést hvernig her- mennirnir hæðast að drengjunum og segja þá hafa verið hreinir sveinar og henda þeim svo ofan í skurð. Fjórir drengjanna voru skotnir í bakið og voru tveir látnir bera likin félaga sinna inn í nálæga hlöðu þar sem þeir voru sjálfir skotnir. Upptakan var upphaflega sýnd i réttarhöldum Alþjóðastríðs- glæpadómstólsins yfir Slobodan Milosevic, fyrrum forseta Júgó- slavíu, í júní árið 2005. Dómarinn sagði liðsforingjann Slobodan Medic hafa skipað hina þrjá ákærðu auk tveggja til við- bótar að taka fangana af lífi, fjar- DÓMAR: lægja líkin úr skurðinum og láta líta út fyrir að þeir hafi látið lifið í átökum. „Ekki er hægt að gefa þeim vægari dóma en þetta, eftir að þeir frömdu þessa hluti gegn varnarlausum borgurum, án þess að sýna nokkra iðrun.“ Ættingjar fórnarlambanna segj- ast harma það að hinir dæmdu hafi ekki hlotið hámarksrefsingu fyrir verknaðinn, eða fjörutíu ára fangelsi. Natasa Kandic, þjóð- þekktur serbneskur lögmaður, tók undir með ættingjunum. „Ef litið er til alvarleika glæpsins, var rétt- lætinu ekki fullnægt með þessum dómum.“ Fréttaskýrendur segja að serb- neska þjóðin hafi verið slegin eftir að myndbandsupptakan birtist á sínum tíma, enda hafi margir Serbar verið í afneitun vegna fjöldamorðanna í Srebrenica og haldið að Bosníumúslímarnir hafi allir látist í átökum við serbneskar hersveitir. Skotnir í bakið Upptakan var upphaflega sýnd í réttarhöldum yfir Slobodan Milosevic, fyrrum Júgóslavíuforseta. Slobodan Medic Branisiav Medic Pera Petrasevic Aleksandar Medic Aleksandar Vukov Ættingjar fornarlambanna Söfnuðust saman á tröppum dómshússins í Belgrad og lýstu yfir óánægju meö dómana. 20 ár 20 ár 13 ár 5 ár Sýknaður AUÐVELD I ÞRIFUM HLJÓÐEINANGRANDI OFNÆMISPROFUÐ TEPPI A STIGAGANGINN Amnesty International: Grimmilegar aðstæður fanga Flestir þeirra fanga sem dvelja í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu er haldið við grimmilegar að- stæður sem virða alþjóðareglur að vettugi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International um aðstæður fanga í fangabúð- unum sem birtist í síðustu viku. 1 skýrslunni segir að flestir fanganna hafi sætt harkalegri meðferð í varðhaldi og haldið í járnbúrum og hámarksöryggis- klefum. Þá segir að ný varðhalds- bygging, Camp 6, sem opnaði í lok síðasta árs, hafi skapað jafnvel harðræðislegri aðstæður sem ein- kennast af skynfæratruflunum og öfgakenndri einangrun, þar sem fangar sjá ekki dagsljós marga daga í röð.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.