blaðið - 11.04.2007, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 2007
folk@bladid.net
rHVAÐ
FINNST
ÞER?
HEYRST HEFUR
Mun Guð fyrirgefa
Hirti Magna?
„Svo sannarlega. Allir eru undir fyrirgefningunni."
Séra Magnús Björnsson
Séra Magnús hefur ásamt sjö öörum
kollegum sínum kært Hjört Magna
Jóhannsson, Fríkirkjuprest, fyrir marg-
vísleg ummæli sln um þjóðkirkjuna og
biskup hennar.
blaðiö
Frumlegt framtak fyrir austan:
BLOGGARINN
STÆRSTA Hagkaupsverslun
íslands kemur til með að rísa
í Holta-
görðum á
næstunni
og mun
opna í
september
sam-
kvæmt seinlygnum almanna-
rómnum. Búðin verður til húsa
þar sem sænski húsgagnarisinn
IKEA var lengstum, Bónus og
Rúmfatalagerinn. Risastórar
verslanir hafa verið að aukast
hér undanfarið og fólk virðist
hafa gaman af því að nota
helgarnar til að spóka sig í þeim.
Að minnsta kosti er gríðarlega
mikil traffík í Kringluna,
Smáralind og IKEA um helgar.
HAGKAUP
FRAMBJÓÐENDUR til Alþing-
iskosninga létu sig ekki vanta
á Rokkhátíð
Alþýðunnar:
Aldrei fór ég
suður, á ísa-
firði um pásk-
ana. Hittust þar
tveir alþingis-
menn og tóku tal
saman. Annar þeirra
hafði orð á dugnaði sínum
daginn áður, er hann gekk yfir
fjöll og firnindi. Hann sagði að
leyndarmálið væri aðeins að
stoppa nógu oft. Þá svaraði hinn
að bragði: „Og þá lengur í senn
væntanlega...?“
ÞAÐ HAFA MARGIR mætir menn
fallið í þá gryfju að gleyma
að geta heimilda. Slíkt hendir
einnig heilu dagblöðin. DV
greinir frá ósæt
presta í blaði
sínu í gær á
bls. 2. Máli
sínu til stuðn-
ings er birt
úrklippa sem
halda mætti að
væri úr gömlu
DV. Svo er nú
ekki því þarna
er á ferðinni
frétt úr Blaðinu. Blaðamaður
DV minnist hvergi einu orði á
þá staðreynd. Venjulega virða
þó menn þá kurteisi að geta
heimilda. Skamm skamm DV...
Rekur vefsíðu fvrir rauðhausa
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Esther Ösp Gunnarsdóttir er ung
framakona fyrir austan. Hún á
það sameiginlegt með 2% mann-
kyns að vera rauðhærð. Hún virðist
hugfangin af rauðhausum því hún
ætlar sér að skrifa BA ritgerð um
málefnið.
„Ég hef verið að blogga síðan 2002
og hef löngum ætlað mér að búa til
eigin heimasíðu svo ég gæti stjórnað
öllu sjálf. Síðan byrjuðu foreldrar
mínir að blogga sem og kærastinn
minn, en þau eru einnig öll rauð-
hærð, nema pabbi reyndar, sem
er sköllóttur! Því lá beinast við að
færa okkur öll undir sama hattinn
og þannig kviknaði nú hugmyndin
að þessari síðu,“ segir Esther.
Esther kemur frá Fáskrúðsfirði
og var í Menntaskólanum á Egils-
stöðum. Var henni strítt á rauða
hárinu sem krakka?
„Nei, nei, það var í raun voðalega
lítið um það. Það voru gerðar ein-
hverjar örfáar tilraunir minnir mig
en þær fóru allar út um þúfur. Ég
held að háraliturinn hafi nú frekar
unnið með mér á jákvæðan hátt
heldur en neikvæðan.“
Esther starfar sem upplýsinga-
fulltrúi Bechtel fyrir austan. Hún
er einnig á lokaári sínu í Háskóla
Islands.
„Ég er nú reyndar að skipta um
starf í næstu viku. Ég er að hætta
hjá Bechtel og taka við sem forstöðu-
maður upplýsingamiðstöðvar Aust-
urlands. í háskólanum lærði ég ís-
lensku og fjölmiðlafræði, sem ég er
reyndar búin með og er nú að reyna
ákveða ritgerðarspurninguna fyrir
BA verkefnið mitt í íslenskunni. Ég
er ekki alveg búin að negla hana
niður en hún mun fjalla um hvernig
og hvort rauðhærðir sæta einhverri
sérmeðferð í þjóðfélaginu. Hún
mun koma inn á þjóðsögur og stað-
alímyndir um rauðhærða sem fólk
þekkir úr daglegu lífi. Til dæmis
að rauðhærðar konur hafi eitthvert
kynferðislegt vald yfir körlum og
séu jafnvel vergjarnari en annað
kvenfólk. Að karlarnir séu oftast
einhverskonar nördar og lúðar og
að rauðhærðir ungir strákar séu
frekir og í raun meiri prakkarar en
aðrir krakkar. Þetta er allt komið
úr gömlum sögum og barnabókum.
Jafnvel Biblían hefur stuðlað að því
að rauðhærðir séu svikulir og illir,
en Júdas hefur oftar en ekki verið
lýst sem rauðhærðum."
Esther segir aðeins um 2% mann-
kyns séu rauðhærð.
„Það er rétt. En því miður eigum
við undir högg að sækja því okkur
fer fækkandi. Þetta gen sem ræður
„Allir þeir sem rauðhærðir
eru kannast við það að
hafa gert uppreisn gegn
háralitnum. Oftastfylgir
það kynþroskatímabilinu
enda verður flest útlitstengt
viðkvæmt á þeim árum.“
rauða háralitnum fannst í kringum
1997 að mig minnir og er svokallað
víkjandi gen, það er að báðir for-
eldar þurfa að hafa það, en þurfa þó
ekki sjálfir að vera rauðhærðir. En
heimurinn er stöðugt að minnka og
blöndunin orðin meiri og því er úr
vöndu að ráða fyrir okkur!“
Esther segist ekki hafa nein sér-
stök baráttumál að markmiði. Að-
almálið sé að þeir sem rauðhærðir
séu verði ávallt rauðhærðir í hjarta
sér, þrátt fyrir að sumir kjósi að lita
á sér hárið.
„Allir þeir sem rauðhærðir eru
kannast við það að hafa gert upp-
reisn gegn háralitnum. Oftast fylgir
það kynþroskatímabilinu, enda
verður flest útlitstengt viðkvæmt á
þeim árum. Á heldri árunum tekur
fólk þó annaðhvort til við að lýsast
eða dökkna en reyndar eru til sér-
stök sjampó sem eiga að halda við
upprunalega rauða litnum. Svo eru
þeir sem taka þetta skeið út seinna
en aðrir, eins og Eiríkur Hauksson,
en honum er þó fyrirgefið. Ætli
hann og Margrét Vilhjálms séu
ekki þekktustu rauðhausarnir, en
það er spurning hvort Ómar Ragn-
arsson og Steingrímur J falli undir
þennan flokk eða annan,“ segir Est-
her glettin að lokum.
Haarde hlýtur
bágt fyrir
„Mér fannst nett óhuggulegt að
heyra GeirH. Haarde tala í Kastljós-
inu i gær. Maðurinn virðist ekki sjá
neina aðra leið fyrir Islendinga til
verðmætasköpunar en orkufrekan
iðnað. Á hvaða plánetu er maður-
inn? Itrekað setti hann dæmið þann-
ig upp að einungis ein leið væri fær
fyrir Islendinga til þess að viðhalda
velferðarsamfélagi. Álver. [...] Geir
getur ekki boðið upp á svona mál-
flutning. Þetta er viðkunn-
anlegur maður og allt
það, en ég get bara því
miður ekki séð betur en
að hann sé fullkomlega
staðnaður pólitískt.
Guðmundur Steingrímsson
gummisteingrims.blog.is
Bjami og
biblíubeltið
„En heiftarflog einstöku fríkirkju-
presta gegn íslenskri kirkju eru
mér óskiljanleg. Og ef ætlunin er
að brjóta niður islenska ríkiskirkju
með þessum fyrirgangi - vita menn
þá hvað tekurvið. Þúsund prest-
ar sem keppa sín í milli um sem
drama-tískastar lýsingar á logum
vítis eða yfirbjóða hver annan i frelsi
til kynhneigða. Það er ekki það sem
vantar hér á Islandi. Islendingar eru
hættulega veikir fyrir öfgum eins og
við sjáum í virkjanamálum og mörgu
fleiru. Með einkareknum
fjárþurfandi fríkirkjum
gæti á fáum árum orð-
ið hérástand eins og i
Bandaríska Bibliubelt-
inu. Hver vill það???“
Bjarni Harðarsson
3jarnihardar.biog.is
Framsóknar-
traktorinn á skrið
„Framsókn byrjuð, það fer varla fram
hjá nokkrum manni, konu eða barni
að kosningar eru í nánd. Framsóknar-
flokkurinn með sína pr. meistara eru
hreiniega komnir í 3. gír og traktorinn
kominn á skrið. Það er ekki hægt að
þverfóta fyrir annaðhvort auglýsing-
um fyrir þeim td hér á blogginu nú ef
maður skreppur ÍKringluna þá voru
þeirþar fyrir páska að gefa páskaegg
sömuleiðis íSmáralind og í Mjódd.
Þeir eru bara allstaðar, hélt satt best
að segja að það væru
ekki svona margir
framsóknarmenn
til iengur."
Félag Skrúðgaröyrkjumeistara
HELLULOGN
www.meistari.is
' i
Su doku
1 7 8
7 8 1 5
9 2 4 6
8 5 1
2 7 5
3 1 4 2 9
5 3 1
3 6 2
9 1
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HERMAN
eftir Jim Unger